Minni matarsóun og aukin verðmæti með framleiðslu á lambainnmat

Markmið Pure Natura er að nota slátr­un­araf­ganga sem ann­ars færu til förg­unar til fram­leiðslu á bæti­efnum úr lamba­inn­mat. Betri nýt­ing þýðir á end­anum hærra verð fyrir hvert lamb sem bóndi leiðir til slátr­unar.

Pure Natura er íslenskt nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu á bæti­efnum úr lamba­inn­mat, lamba­kirtlum og jurtum. Fyr­ir­tækið var stofnað í sept­em­ber 2015 af frum­kvöðl­unum Hildi Þóru Magn­ús­dóttur, Rúnu Kristínu Sig­urð­ar­dóttur og Sigríði Ævars­dóttur og er stað­sett á Sauð­ár­króki.

Hug­mynd­ina má rekja til hug­mynda­fræði sem nú er að ryðja sér til rúms í Banda­ríkj­unum og víðar og snýr að því að betri og nýt­an­legri vítamín og bæti­efni komi úr mat en úr gervi­efnum sem búin eru til á til­rauna­stofum. Þessi nýja teg­und bæti­efna er því unnin úr raun­veru­legum mat­vælum, með öllum þeim efnum og sam­virkni sem í þeim finn­ast og sett fram sem heild­ar­pakki en ekki sem ein­stök, ein­angruð efni.

En af hverju inn­matur, hvað gerir hann að ákjós­an­legu hrá­efni?

„Þegar við fórum af stað með að þróa vör­urnar okkar, ákváðum við að nota inn­mat sem uppi­stöðu í þeim öllum því þar er van­nýtt auð­lind á ferð. Þrátt fyrir að inn­mat­ur­inn sé ein­hver nær­ing­ar­rík­asta fæða sem völ er á, þá hefur dregið mjög úr neyslu hans á und­an­förnum ára­tugum. Það má nán­ast segja að hann sé að detta alveg út hjá yngri kyn­slóðum hins vest­ræna heims,“ segir Hildur Þóra einn frum­kvöðl­anna sem standa að þessu verk­efni.

[adspot]

„Það er eins og hann hafi hrein­lega gleymst í umræð­unni um holl­ustu sem verið hefur í gangi und­an­farna ára­tugi, en það er raun­veru­lega ekk­ert sem kemur þó í stað­inn fyrir nákvæm­lega þennan mat þó margt gott sé til. Lifur, hjörtu og fleiri líf­færi eru í raun eins og risa­stór fjölvítamíntafla með öllu til­heyr­andi og inn­matur inni­heldur á bil­inu 10-100 sinnum meira magn nær­ing­ar­efna en vöðvar sama dýrs. Þessi matur var áður mik­il­vægur hluti matar­æðis okkar, þeir sem komnir eru af barns­aldri muna það að þeir þurftu að borða lifur reglu­lega þó þeim þætti hún oft vond en mæður okkar og ömmur tóku ekki annað í mál, enda aldar upp við að nýta allt og vissu að þessi matur var hollur þó þær hefðu ekki í höndum rann­sókn­ar­nið­ur­stöður þar um. Auk þess eru efnin á formi sem lík­am­inn þekkir og getur nýtt nær­ing­ar­efnin úr, sem ekki er alltaf raunin með til­búin vítamín.“

„Pure Natura leggur áherslu á að best sé að neyta matar og fá nær­ing­ar­efni úr sem ferskustum mat­vælum og sem minnst unnum. Hins vegar sé það stað­reynd að allt of margir borði ekki inn­mat og því sé í raun nauð­syn­legt að auka aðgengi og áhuga á slíkri ofur­fæðu með öðrum hætti en hingað til hefur tíðkast. Pure Natura býður því uppá afurð sem hægt er að taka inn sem hylki og gleypa með mat eða vatns­glasi og fá þannig skammt­inn sinn reglu­lega af öllum þeim góðu nær­ing­ar­efnum sem í þessu hrá­efni er að finna.“

Eru ein­hverja sér­stöðu þá að finna í íslenskum inn­mat, sem ekki finnst í inn­mat frá öðrum löndum?

„Fyr­ir­tækið nýtir eins og áður sagði inn­mat og kirtla úr íslenskum lömbum í sína fram­leiðslu auk þess að nýta einnig íslenskar hand­týndar villi­jurtir eins og fífla­rót, æti­hvanna­fræ, birki, vall­humal, burni­rót, bald­urs­brá og fl. í blöndur sínar. Íslenska lamba­kjötið er í sér­flokki hvað varðar hrein­leika og það sama má segja um villtu jurt­irnar okkar. Við höfum hreint vatn, loft og jarð­veg, hér er sýkla­lyfja­notkun og notkun á skor­dýra­eitri lítil sem engin og má því í raun bera því við að íslenska hrá­efnið sé á heimsklassa.“

Hvaða vörur eru þið að vinna úr þessu hrá­efni? Fyrir hverja eru þær hugs­aðar?

„Fyr­ir­tækið hefur unnið að þróun bæti­efn­anna í rúm tvö ár og eru fjórar vöru­teg­undir afrakstur starfs­ins. Pure Liver sem er hugsað sem blanda af lifur og völdum jurtum til styrk­ingar fyrir lifr­ina, Pure Heart er sams­konar blanda nema fyrir hjartað, Pure Nutrition sem hentar vel sem nær­ing­ar­upp­bót fyrir alla og Pure Power sem sér­stak­lega er hugsuð fyrir fólk sem vill meiri orku, er í lík­am­legri erf­ið­is­vinnu, lík­ams­rækt og þess háttar.“

Hvað er það sem drífur ykkur áfram í þessu frum­kvöðla­starfi?

„Við viljum að sjálf­sögðu gefa fólki kost á því að hugsa sem best um sig sjálft og þá sem því þykir vænt um. Það gerum við með því að bjóða upp á hágæða bæti­efni sem inni­halda mikið magn nær­ing­ar­efna í bland við þekktar lækn­inga­jurtir sem eru án allra auka­efna og lyfjaresta. Einnig hefur það skipt okkur máli að í dag eyða slát­ur­hús tölu­verðu fjár­magni árlega í förgun á hrá­efni eins og inn­mat og kirtlum sem Pure Natura vill nýta í vörur sínar. Í stað þess að farga þessu hrá­efni er hægt að vinna úr því hágæða fæðu­bót og búa þar með til pen­ing í stað sóunar. Við viljum styðja við aukna sjálf­bærni í dilka­slátrun. Minnka sóun, auka með­vit­und neyt­enda og stuðla að full­nýt­ingu afurð­anna í heima­byggð“ segir Hildur.

Einnig bendir hún á að verk­efni sem þetta sé atvinnu­skap­andi og það sé mik­il­vægt að finna lausnir til að fjölga störfum í byggðum sem hafa átt við fólks­fækkun að etja. „Ef sala afurð­anna gengur vel skilar það, og von­andi bónd­anum, hærri greiðslum fyrir hvert lamb sem hann leggur inn til slátr­unar. Hug­myndin er sú að ef allt gengur upp þá græði allir á þessu verk­efni,“ segir Hildur.

Hver eru svo næstu skref hjá Pure Natura?

„Svona frum­kvöðla­starf kostar heil­mikla vinnu og fjár­muni og nú er farið í fjár­mögn­un­ar­verk­efni á Karolina fund til að standa straum af fyrstu fram­leiðslu­lotu fyr­ir­tæk­is­ins. Við höfum fengið vel á annan tug millj­óna í styrki til þess að þróa vör­urnar okkar. Auk þess lán­aði Byggða­stofnun félag­inu fyrir upp­setn­ingu á vinnslu­lín­unni, en annar kost­aður eins og laun og rekstur hefur verið greiddur af eig­endum. Nú eru vör­urnar hins vegar til­búnar og tími til komin að fá fjár­festa að borð­inu með okkur, svo hægt sé að leggja út fyrir í mark­aðs­setn­ingu á erlenda mark­aði. Vörurnar verða að sjálf­sögðu einnig til sölu inn­an­lands þó þær séu ekki komnar í versl­anir ennþá. Þeir sem vilja nálg­ast þær núna eða styðja við þetta áhuga­verða verk­efni er bent á áheita­söfnun okkar á Karolina fund, en þar getur fólk tryggt sér vörur úr fyrstu fram­leiðslu­lot­unni okkar og stutt við bakið á okkur.“

Söfnunin á Karolina fund stendur yfir til 10. febr­úar og er hægt að kynna sér hana betur og taka þátt á síðu verk­efn­is­ins hjá Karolina fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár