Karolina fund: Freista þess að fá frænkur og vini til að tæma baukana

Hljóm­sveitin Þrír kom fram á sjón­ar­sviðið sem hljóm­sveit árið 2014. Hún hefur fram að þessu haft nokkuð hægt um sig og hyggst gera það áfram ef þess er nokkur kostur. Þvert á yfir­lýst áform sín safna Þrír­verjar nú fyrir útgáfu fyrstu hljóm­skífu sinnar, Allt er þegar ÞRÍR er, hjá Karolina fund og freista þess að fá frænkur sínar og vini til að tæma bauk­ana fyrir hlut­deild í snilld­inni. Þrír spilar ann­ars frum­samda ástríðu­söngva og pín­ing­ar­ræla og umfjöll­un­ar­efni þeirra eru eftir því. Sveitin er skipuð þeim Þórdísi Claessen á trommum, Sig­ur­björgu Maríu Jós­eps­dóttur á kontra­bassa og Jóni Torfa Arasyni söngv­ara og gít­ar­leik­ara. Kjarninn heyrði í Sig­ur­björgu Maríu og Jóni Torfa í Stykk­is­hólmi.

Hvað kom til að hljómsveitin Þrír var stofnuð?

Jón Torfi: Vorið 2014 vorum við Sig­ur­björg farin að hitt­ast til að spila tón­list og djamma í kring um leik­sýn­ingu sem Bjarki vinur okkar Hjör­leifs­son var í óða önn að skrifa fyrir leik­fé­lagið í Stykk­is­hólmi. Hann vildi að ég gerði nokkra texta fyrir sig, en allt í einu var til fullt af lögum.

Sig­ur­björg María: Síðan spil­aði ég í sýn­ing­unni, og þú líka Jón þarna í rest­ina, og svo þegar það var allt búið lang­aði okkur bara að gera hljóm­sveit.

Jón Torfi: Já, það var þá sem við lugum okkur inn á Durginn!

Sig­ur­björg María: Þú laugst að Kela verti að við værum Bubba Morthens koverlaga hljóm­sveit og hann gleypti ein­hvern veg­inn við þessu hjá okkur, þó hann tryði þessu tæp­lega.

Jón Torfi: Svo á Durginum, sem er alþýð­leg tón­list­ar­há­tíð á Langa­holti í Stað­ar­sveit, hittum við Þórdísi trommara loks­ins.

Sig­ur­björg María: Það var ást við fyrsta áslátt!

Jón Torfi: Hún lét plata sig í soundcheck með okkur, og mátti svo spila með okkur heilt pró­gramm strax um kvöldið. Nokkuð gott að spila fullt sett eftir að hafa aðeins heyrt tvö þrjú lög.

Hvað er á döfinni hjá ykkur þessa dagana?

Jón Torfi: Hmm.. þetta er rosa full­orð­ins spurn­ing.

Sig­ur­björg María: Já, við gáfum plöt­una okkar út á Spotify í nóv­em­ber og núna erum við að safna fyrir útgáfu hennar á bæði vinyl og geisla­diski.

Jón Torfi: Við ætlum auð­vitað að halda útgáfu­tón­leika ef að söfn­unin gengur upp, bæði í Reykja­vík og Stykk­is­hólmi auð­vitað. Þetta verður svona með hækk­andi sól.

Sig­ur­björg María: Svo erum við að spila á Reykja­vík Folk Festival 2-4. mars á KEX.

Hvers konar tónlist mun hljóma af nýja diskinum ykkar?

Jón Torfi: Jah, ég hvet nú alla til að athuga með okkur á Spotify.

Sig­ur­björg María: Hver var það sem sagði að þetta væri in your face folk music?

Jón Torfi: Ábyggi­lega ekki sá sem kall­aði þetta frumpolka. Nei ég veit það ekki, þetta er bara það sem við gerum. Þetta er okkar tón­list, bæði frum­samdir ástríðu­söngvar og pín­ing­ar­rælar.

Hvað með umslagið, hvernig kom það til?

Sig­ur­björg María: Ég var búin að vera að perla eitt­hvað, og ákvað að fiffa til ein­hverja mynd af okkur og sjá hvernig hún kæmi út. Sex­þús­und­fimm­hund­ruð­sex­tíuogeinni perlu seinna var þetta orðið að því sem prýðir nú fram­hlið plöt­unnar.

Jón Torfi: Stefán Karlsson sér­legur vinur hljóm­sveit­ar­innar tók reyndar mynd­ina, fyr­ir­mynd­ina. En Sig­ur­björg var ekk­ert hætt því hún perl­aði líka bak­hlið­ina með öðrum 6798 perlum eða eitt­hvað.

Sig­ur­björg María: Já, og þú laugst því að mér að það væri staf­setn­ing­ar­villa á henni. Það tók mig marga daga að jafna mig.

Jón Torfi: Já ég er lyg­ari, það er alveg rétt. Annars er þetta mikið heima­vinnu­verk­efni og allt unnið af vinum og vanda­mönnum. Þórdís trymb­ill sá um graf­ík­ina að öðru leyti, bæk­ling og þess háttar og Daniel Pollock vinur okkar sá um upp­tökur og hljóð­blöndun.

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár