Rúmur milljarður í Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Ríflega millj­arður króna er í Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða þrátt fyrir að búið sé að úthluta þessum fjár­munum til verk­efna. Þetta kemur fram í tölum sem Ferða­mála­stofa tók saman um sjóð­inn, eftir síð­ustu úthlutun úr honum.

Úthlutað hefur verið tíu sinnum úr sjóðnum frá því að honum var komið á lagg­irnar árið 2012. Samtals hefur rúm­lega 2,8 millj­örðum króna verið úthlutað úr sjóðnum, en ríf­lega 1,7 millj­arður króna hefur verið greiddur út úr sjóðnum. Það þýðir sem fyrr segir að eft­ir­stöðv­arnar eru um millj­arður króna.

514 verk­efni hafa fengið sam­þykkta fjár­mögnun úr sjóðnum frá upp­hafi, en færri verk­efnum er lokið en ólokið. 243 verk­efni hafa klár­ast en 271 verk­efnum er enn ólokið.

Ólöf Ýrr Atla­dóttir ferða­mála­stjóri segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að ýmsar ástæður séu fyrir því að verk­efni hafi ekki gengið eftir. Meðal þeirra megi nefna erf­ið­leika við að fá verk­taka til að vinna verkin. Miklar fram­kvæmdir út um allt land hafi skapað flösku­hálsa í mönnun fram­kvæmda. Þá þurfi sam­þykki land­eig­enda sem fæst ekki alltaf, skipu­lags­mál geta stöðvað verk­efni og fram­vindu- og loka­skýrslum er ekki skilað til sjóðs­ins. Tafir geti orðið vegna veð­ur­fars og áætl­aður fram­kvæmda­tími sé of stuttur.

Síðast var aug­lýst eftir umsóknum í sjóð­inn í októ­ber síð­ast­liðnum. Stjórn Fram­kvæmda­sjóðs­ins fundar þessa dag­ana reglu­lega til að fara yfir umsóknir, og búist er við að þeirri vinnu ljúki í febr­úar, sam­kvæmt svörum frá Ferða­mála­stofu.

Gengur hægt að úthluta

Ákveðið var að lækka fram­lagið til fram­kvæmda­sjóðs­ins um 600 millj­ónir króna milli umræðna um fjár­laga­frum­varpið á Alþingi fyrir jól. Ástæðan er sú að það hefur tekið mun lengri tíma að ráð­stafa fé sjóðs­ins en gert hafði verið ráð fyr­ir. Kjarn­inn hefur áður greint frá því að miklir fjár­­munir hafi legið óhreyfðir í Fram­­kvæmda­­sjóði ferða­­manna­­staða.

Í fjár­­lögum síð­­asta árs var ákveðið að auka fram­lögin um 517 millj­­ónir króna þrátt fyrir að þá hefðu 1,2 millj­­arður króna legið óhreyfður í sjóðnum um langt skeið. Iðn­­­að­­­ar- og við­­­skipta­ráðu­­­neytið greindi frá því í sept­­­em­ber árið 2015 að við und­ir­­­bún­­­ing fjár­­­laga fyrir 2016 hefði komið í ljós að „um­tals­verðir fjár­­­mun­ir“ eða 1,2 millj­­­arðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðn­­­­­um. Þessum fjár­­­munum hafði ekki enn verið ráð­stafað í þau verk­efni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipu­lagi og fram­­­kvæmd.

Gera ráð fyrir 1,2 millj­arða tekju­aukn­ingu

Gistin­átta­skattur var þre­fald­aður af Alþingi fyrir jól, en breyt­ingin tekur gildi þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Meiri­hluti skatts­ins fer lögum sam­kvæmt í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða.

Frá og með 1. sept­em­ber verður gistin­átta­skatt­ur­inn 300 krónur á hverja selda gistin­átta­ein­ingu í stað 100 króna nú. Sam­kvæmt frum­varpi um ýmsar for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins var gert ráð fyrir því að tekjur rík­is­ins auk­ist um 300 millj­ónir króna á þessu ári vegna breyt­ing­ar­innar en um 1,2 millj­arða króna á því næsta, að með­töldum hlið­ar­á­hrifum á virð­is­auka­skatt.

Sam­kvæmt núgild­andi lögum er það þannig að 3/5 hlutar þeirra tekna sem ríkið fær af gistin­átta­skatti fara í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða. Sjóð­ur­inn mun því að óbreyttu fá tals­vert hærri fram­lög á kom­andi árum með hækkun skatts­ins. Það kemur til við­bótar þess að meira hefur inn­heimst af gistin­átta­skatti með mik­illi fjölgun ferða­manna til lands­ins, og til að mynda fær sjóð­ur­inn auka 45 millj­ónir króna af fjár­auka­lögum síð­asta árs vegna þess að meira inn­heimt­ist af skatt­inum en gert var ráð fyr­ir.

Sveit­ar­fé­lögin vilja hluta en ferða­þjón­ustan ekki

Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga vill að sveit­ar­fé­lög fái helm­ing eða mögu­lega tvo þriðju hluta af gistin­átta­skatti vegna þeirra ferða­manna sem gista innan þeirra marka, og að þær tekjur renni til þess að byggja upp inn­viði ferða­þjón­ust­unnar í því sveit­ar­fé­lagi. Þetta kom meðal ann­ars fram í umsögn sam­bands­ins um ýmsar for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins.

Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar eru á annarri skoð­un, og fóru fram á það í sinni umsögn um sama mál að skatt­ur­inn yrði lát­inn renna óskiptur inn í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða. „Fyr­ir­tæki, ein­stak­ling­ar, stofn­anir eða sveita­fé­lög geta svo sótt um í sjóð­inn til verk­efna til upp­bygg­ingar enda eru fjár­mun­irnir ætl­aðir til upp­bygg­ingar ferða­manna­staða. Með þessu er stjórn­sýslan gagnsæ og skil­virk,“ sögðu sam­tökin í sinni umsögn.

Hvorug umsögnin var tekin til greina þegar málið var afgreitt frá Alþingi fyrir jól­in.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár