Sigmundur Davíð greiddi síðast atkvæði í þingsal 8. júní

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, greiddi síð­ast atkvæði um mál í þing­sal Alþingis 8. júní síð­ast­lið­inn. Eftir að hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í byrjun apríl og varð óbreyttur þing­maður tók hann aldrei sæti í neinni nefnd á vegum þings­ins, og sinnti þar af leið­andi ekki nefnd­ar­störfum líkt og aðrir almennir þing­menn gera. Sig­mundur Davíð greiddi atkvæði með ýmsum málum þann 2. júní, meðal ann­ars með breyt­ingum á lögum um gjald­eyr­is­mál og með banni á verk­fall flug­um­ferð­ar­stjóra. Hann greiddi svo atkvæði með frestun á fundum Alþingis 8. júní, en þeim var þá frestað fram í miðjan ágúst. Síðan hefur hann ekki tekið þátt í einni ein­ustu atkvæða­greiðslu á þing­inu. Þetta er hægt að sjá á vef Alþingis.

Sig­mundur Davíð hefur verið með skráða fjar­vist í einni atkvæða­greiðslu sem fram hefur farið á Alþingi frá 8. júní. Það var í atkvæða­greiðslu um ramma­á­ætlun þann 14. sept­em­ber 2016. Í öðrum atkvæða­greiðslum hefur hann ein­fald­lega verið fjar­ver­andi. Tugir mála hafa verið til atkvæða­greiðslu á þessu tíma­bili. Atkvæða­greiðsl­urnar sjálfar eru mörg hund­ruð. Sig­mundur Davíð er eini þing­mað­ur­inn sem hefur ekki mætt á þing­fundi á þessu kjör­tíma­bili.

Þingmönnum er skylt að sækja þingfundi

Samkvæmt vefnum thing­menn.is, sem tók saman ýmsa töl­fræði um þing­menn á síð­asta kjör­tíma­bili, mætti Sig­mundur Davíð næst verst allra þing­manna í atkvæða­greiðslur. Hann tók ein­ungis þátt í 56,7 pró­sent þeirra. Sá eini sem mætti verr en Sig­mundur Davíð var Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna. Hann mætti í 52,5 pró­sent atkvæða­greiðslna.

Í 65. grein þing­skap­a­laga segir: „Skylt er þing­mönnum að sækja alla þing­fundi nema nauð­syn banni. Forföll skal til­kynna for­seta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauð­syn­ina.“ Þar segir einnig að ef þing­maður for­fall­ist svo að nauð­syn krefji skuli vara­maður taka sæti hans. Sig­mundur Davíð hefur ekki kallað inn vara­mann fyrir sig í fjar­veru sinni. Í 78. grein sömu laga segir að þing­manni sé skylt „að vera við­staddur og taka þátt í atkvæða­greiðslu nema hann hafi lög­mæt for­föll eða far­ar­leyfi“.

Gekk út úr viðtali

Sig­mundur Davíð var spurður út í fjar­veru sínaúr þing­sal af frétta­manni RÚV síð­ast­lið­inn föstu­dag. Aðspurður um af hverju hann hefur ekki mætt í vinn­una gerði Sig­mundur Davíð athuga­semd við nálgun frétta­manns RÚV á við­talið við hann. Þegar frétta­maður sagði að sér þætti það eðli­leg spurn­ing að spyrja í ljósi þess að hann hefði ekk­ert mætt í vinn­una. „Þá get­urðu beðið mig um við­tal um það. Þú kemur ekki hingað og biður mig um við­tal um afmæli flokks­ins og kemur með svona útúr­snún­inga eins og þetta.“ Í hádeg­is­fréttum RÚV var tekið fram að aldrei hafi samið um að ein­ungis yrði spurt út í 100 ára afmæli flokks­ins í við­tal­inu. Sig­mundur Davíð féllst loks á að svara spurn­ing­unni ef hún yrði umorð­uð.

Þá sagð­ist hann hafa fylgst vel með þing­fundum og gangi mála á þeim, eins og aðrir þing­menn. Þegar frétta­maður RÚV benti á að aðrir þing­menn hefðu mætt í þing­sal svar­aði hann: „Voða­leg reiði er þetta í Rík­is­út­varp­inu og sér­stak­lega þér í minn garð. Ég hef fylgst með umræðum í þing­inu og stör­f­unum þar eins og aðrir þing­menn. Segjum þetta gott.“ Í kjöl­farið sleit hann við­tal­inu og gekk í burtu.

Í gær birti Sig­mundur Davíð stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann ásak­aði ótil­greindan SDG-hóp á RÚV að vera með þrá­hyggju gagn­vart sér og að hún væri að áger­ast.

Sig­mundur Davíð sagði enn fremur að þing­menn vinni við fleira en að sitja í þing­sal. „Sem betur fer því að jafn­aði sitja tveir til þrír menn í saln­um. Þing­menn eiga að fylgj­ast með þing­fundum eins og kostur er en einnig að hitta fólk, kynna sér mik­il­væg mál, sinna flokknum sín­um, kjós­endum og öðrum lands­mönn­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár