Sigmundur segir þráhyggju SDG-hópsins á RÚV vera að ágerast

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir SDG-hóp­inn á RÚV hafa séð „ástæðu til að ryðj­ast inn í 100 ára afmæl­is­veislu með dóna­skap og fram­göngu sem ég hef ekki kynnst oft af hálfu frétta­manna.“ Til­gang­ur­inn virð­ist ein­göngu hafa verið sá að ýta undir „ill­deilur í Fram­sókn­ar­flokknum í til­efni dags­ins og búa til frétt um að ég hafi ekki setið nógu mikið í Alþing­is­hús­inu und­an­farna daga.“ Hann segir hóp­inn, sem ekki er skil­greindur nánar, hald­inn þrá­hyggju sem virð­ist vera að áger­ast frekar en hitt. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Sig­mundur Davíð birti á Facebook-síðu sinni í dag.

Ástæða stöðu­upp­færsl­unnar er við­tal sem tekið var á hátíð vegna 100 ára afmælis Fram­sókn­ar­flokks­ins í gær og birt var í heild sinni á vef RÚV fyrr í dag. Þar sést Sig­mundur Davíð bregð­ast illa við þegar Sunna Val­gerð­ar­dóttir, frétta­maður RÚV, spurði hann um ástæður þess að hann hafi ekki mætt í vinn­una það sem af er þingi, en Sig­mundur Davíð er eini þing­maður lands­ins sem hefur ekki mætt á þing­fundi á þessu kjör­tíma­bili. Hann ásak­aði RÚV og frétta­mann­inn um að vera með reiði í sinn garð, sleit svo við­tal­inu og gekk í burt­u.

Í stöðu­upp­færsl­unni segir Sig­mundur Davíð að þing­menn vinni við fleira en að sitja í þing­sal. „S

em betur fer því að jafn­aði sitja tveir til þrír menn í salnum. Þingmenn eiga að fylgj­ast með þing­fundum eins og kostur er en einnig að hitta fólk, kynna sér mik­il­væg mál, sinna flokknum sínum, kjós­endum og öðrum lands­mönnum.

Á Alþingi hafa verið fjórir þing­fund­ar­dagar eftir þing­setn­ingu 6. des­em­ber (sá lengsti rúmir fjórir klukku­tímar). Þar af einn dagur eftir að þing­menn Fram­sóknar fengu skrif­stofur.

Það hefur ekki tek­ist að mynda rík­is­stjórn, það er ekki hægt að skipa í nefndir nema til bráða­birgða og helsta við­fangs­efni þings­ins er mun­að­ar­laust fjár­laga­frum­varp samið af emb­ætt­is­mönnum.

Rík­is­út­varpið hefur hins vegar mestar áhyggjur af því að ég hafi ekki setið í þingsalnum þessa fjóra daga. Eftir því sem ég kemst næst er þetta í fyrsta skipti sem stofn­unin sér ástæðu til að gera slíka frétt. Þó hef ég séð ótal dæmi um að þing­menn hafi ekki aðeins sleppt því að sitja í þing­sal heldur horfið vikum saman án þess þó að vera saknað.

Ég get hins vegar von­and dregið úr áhyggjum á RÚV-AK með því að upp­lýsa um að ég hef fylgst vel með gangi mála á þing­inu þessa skrýtnu daga en um leið náð að sinna öðrum verk­efnum sem falla undir starf þing­manns eins og síðar mun koma í ljós.“


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár