Sigmundur Davíð gekk út úr viðtali við RÚV

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður hans, brást illa við þegar frétta­maður RÚV spurði hann um ástæður þess að hann hafi ekki mætt í vinn­una það sem af er þingi, en Sig­mundur Davíð er eini þing­maður lands­ins sem hefur ekki mætt á þing­fundi á þessu kjör­tíma­bili. Hann ásak­aði RÚV og frétta­mann­inn um að vera með reiði í sinn garð, sleit svo við­tal­inu og gekk í burtu. Viðtalið hefur nú verið birt í heild sinni á vef RÚV.

Sunna Val­gerð­ar­dóttir, frétta­maður RÚV á Akureyri, tók við­tal við Sigmund Davíð í gær á hátíð sem haldin var vegna 100 ára afmæli flokks­ins. Á sama tíma fór fram afmæl­is­há­tíð í Þjóð­leik­hús­inu þar sem flestir þing­manna og for­ystu­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins voru sam­an­komnir. Í gær­kvöldi birti RÚV hluta við­tals­ins þar sem sem Sig­mundur Davíð svar­aði flestum spurn­ingum um stöð­una sem upp er komin í Fram­sókn­ar­flokknum – en miklir sam­starfsörðu­leikar eru milli hans og for­ystu flokks­ins – með því að segja að RÚV bæri mesta ábyrgð á þeim flokksá­tökum sem ættu sér stað.

Nú hefur RÚV birt allt við­talið á vef sínum. Þar var Sig­mundur Davíð einnig spurður út í fjar­veru sína úr vinnu, en Sig­mundur Davíð hefur ekki mætt í þing­sal til þing­starfa það sem af er kjör­tíma­bili. Hann er eini þing­mað­ur­inn sem hefur ekki gert það. Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, mætti við þing­setn­ingu en kall­aði svo inn vara­mann fyrir sig vegna veik­inda.

Aðspurður um af hverju hann hefur ekki mætt í vinn­una gerði Sig­mundur Davíð athuga­semd við nálgun frétta­manns RÚV á við­talið við hann. Þegar frétta­maður sagði að sér þætti það eðli­leg spurn­ing að spyrja í ljósi þess að hann hefði ekk­ert mætt í vinn­una. „Þá get­urðu beðið mig um við­tal um það. Þú kemur ekki hingað og biður mig um við­tal um afmæli flokks­ins og kemur með svona útúr­snún­inga eins og þetta.“ Í hádeg­is­fréttum RÚV var tekið fram að aldrei hafi samið um að ein­ungis yrði spurt út í 100 ára afmæli flokks­ins í við­tal­inu. Sig­mundur Davíð félst lokst á að svara spurn­ing­unni ef hún yrði umorðuð.

Þá sagð­ist hann hafa fylgst vel með þing­fundum og gangi mála á þeim, eins og aðrir þing­menn. Þegar frétta­maður RÚV benti á að aðrir þing­menn hefðu mætt í þing­sal svar­aði hann: „Voðaleg reiði er þetta í Rík­is­út­varp­inu og sér­stak­lega þér í minn garð.Ég hef fylgst með umræðum í þing­inu og stör­f­unum þar eins og aðrir þing­menn. Segjum þetta gott.“ Í kjöl­farið sleit hann við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár