Vonin handan hafs – Ný vefsíða um vesturfara

Und­an­farin miss­eri hefur Jónas Þór ásamt áhuga­fólki um íslenska vest­ur­fara unnið að mótun og und­ir­bún­ingi gríð­ar­lega umfangs­mik­ils verk­efnis, sem ætlað er að varð­veita merkan menn­ing­ar­arf vest­ur­ferð­anna og stór­efla áhuga Íslend­inga og afkom­enda vest­ur­fara í Kanada og Banda­ríkj­unum á þess­ari sam­eig­in­legu sögu og arf­leifð.

Verk­efnið byggir á mótun einnar umfangs­mestu vef­síðu um vest­ur­fara og Íslands­tengsl afkom­enda þeirra sem ráð­ist hefur verið í. Vefsíðan verður mið­stöð fróð­leiks, hvers kyns upp­lýs­inga og fræðslu. Hún sinnir öllum þáttum er varða tengslin við Ísland og sam­eig­in­lega, sögu­lega arf­leifð beggja vegna Atl­antsála. Síðan verður á íslensku og ensku.

Jónas hefur um ára­tuga skeið safnað alls kyns fróð­leik og gagn­legum upp­lýs­ingum um vest­ur­fara, líf þeirra og störf í Vest­ur­heimi. Hann hefur skipu­lagt hóp­ferðir á Íslend­inga­slóðir árum saman, „lík­lega hafa tals­vert á fimmta þús­und Íslend­ingar komið með mér í slíkar ferðir,“ segir Jónas. Kjarninn hitti Jónas Þór og tók hann tali.

Fyrir hvern verður heimasíðan?

„Ferð­irnar snú­ast fyrst og fremst um land­nám Íslend­inga í Vest­ur­heimi, ég greini frá í ferð­unum, útskýri hvers vegna til­tekið svæði var valið og hvernig til tókst. Í þessum ferðum hefur komið fram mik­ill áhugi á sög­unni, fólk spyr iðu­lega hvar hægt sé að lesa meira. Þörfin á vef­síðu er aug­ljós. Ég hef líka skipu­lagt ferðir um Íslands fyrir Vestur Íslend­inga. Þeirra heim­sóknir til Íslands eru af allt öðrum toga en venju­legs ferða­manns. Þeir vilja kom­ast í sveit­ina, finna stað­inn þar sem að for­feður þeirra bjuggu. Hug­myndin er að enski hluti síð­unnar fjalli fyrst og frems um Ísland, hverja sýslu, hreppi og sveitir lands­ins. Vefsíðan er því bæði fyrir Íslend­inga og frændur í Vest­ur­heimi“.

Hvaða upplýsingar verða á síðunni?

„Síðan varð­veitir nöfn vest­ur­fara, hvaðan þeir voru og hvert þeir fóru. Algeng­asta spurn­ingin sem ég fæ er hvað tók svo við þegar vestur var komið. Síðan segir sögu sér­hvers land­náms í Kanada og Banda­ríkj­unum, hverjir sett­ust að hvar og hún greinir frá fjöl­skyldum. Í gagna­grunni mínum er um 20 þús­und nöfn vest­ur­fara og afkom­enda þeirra. Ungir ein­hleypir menn og konur fóru vestur, fundu ást­ina þar, stofn­uðu heim­ili og börnin fædd­ust. Hver var afstaða ann­arrar kyn­slóðar Íslend­inga vestan hafs? Hvernig átti hún að rækta tengsl við Ísland og íslenska þjóð sem var for­eldr­unum svo kær?“

Hvaðan koma upplýsingarnar?

„Í áhuga­hópnum eru Vestur Íslend­ingar sem ég hef þekkt um ára­bil. Þeir hafa unnið ótrú­lega mikið og gott starf við gagna­öflun, fólk finnur alls kyns gögn og upp­lýs­ingar sem eru ómet­an­legar. Sendi­bréf hafa verið skönnuð, ljós­myndir kóper­aðar en í mörgum vest­ur­ís­lenskum fjöl­skyldum er gam­alt, íslenskt efni dýr­mæt­asti fjár­sjóður. Margt hefur aldrei komið fyrir almenn­ings­sjónir fyrr.“

Þessa dag­ana stendur yfir fjár­söfnun á Karolina Fund til að vinna geti haf­ist við vef­síðu­gerð­ina. Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár