Mesti hagvöxtur sem mælst hefur síðan árið 2007

Á hverjum degi fljúga inn tugir flugvéla til Íslands fullar af gjaldeyristekjuskapandi ferðamönnum.
Á hverjum degi fljúga inn tugir flug­véla til Íslands fullar af gjald­eyr­is­tekju­skap­andi ferða­mönnum. Mynd: Úr safni

Lands­fram­leiðsla á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2016 jókst um 10,2 pró­sent á Íslandi frá sama árs­fjórð­ungi árs­ins áður. Það er mesta aukn­ing sem mælst hefur á lands­fram­leiðslu milli sömu árs­fjórð­unga á einu ári frá því á hámarki banka­góð­ær­is­ins fyrir hrun, eða á fjórða árs­fjórð­ungi 2007. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar.

Þar segir að magnaukn­ing lands­fram­leiðsl­unnar nú skýrist að veru­legu leyti af fram­lagi utan­rík­is­við­skipta en útflutn­ingur jókst að raun­gildi um 16,4 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil árið 2015. Þar skiptir mestu máli gríð­ar­leg, og áfram­hald­andi aukn­ing ferða­manna sem sækja Ísland heim. Í nýlegri frétt á Gestur.is kom fram að búist sé við 40,3 pró­sent aukn­ingu á fjölda far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl á þessu ári frá því sem var á árinu 2015. Í far­þeg­a­spá Isa­via fyrir næsta ár er reiknað með 24,7 pró­sent fjölgun erlendra ferða­manna á milli ára. Gangi sú spá eftir verður heild­ar­fjöldi erlendra brott­faraf­ar­þega um 2.241 þús­und alls.

Hag­stofan segir að hag­vöxtur á fyrstu níu mán­uðum árs­ins hafi sam­tals auk­ist um 6,2 pró­sent að raun­gildi þegar hann er bor­inn saman við sama tíma­bil árið 2015. Á sama tíma juk­ust þjóð­ar­út­gjöld, neysla og fram­kvæmdir, um 9,3 pró­sent. Þar af jókst einka­neysla um 6,7 pró­sent, sam­neyslan um 1,1 pró­sent og fjár­fest­ing um heil 27,4 pró­sent. Útflutn­ingur jókst um tíu pró­sent en inn­flutn­ingur umtals­vert meira, eða um 16,6 pró­sent.

Aukin einka­neyslu og inn­flutn­ingur sést vel á tölum um vöru­við­skipti í nóv­em­ber, sem Hag­stofan birti í gær. Þar kom fram að Íslend­ingar fluttu inn vörur fyrir 53,5 millj­arða króna í mán­uð­inum en út vörur fyrir 41,2 millj­arða króna. Vöru­við­skiptin voru því óhag­stæð um 12,3 millj­arða króna. Til sam­an­buðar voru þau hag­stæð um 800 millj­ónir króna í nóv­em­ber 2015. Við­snún­ing­ur­inn á einu ári er því rúm­lega 13 millj­arðar króna. Ástæða þessa er sam­blanda af mik­illi styrk­ingu krón­unnar sem gerir það að verkum að erlendar vörur eru nú mun ódýr­ari og auk­inn kaup­máttur sem leiðir til aukn­ingar á einka­neyslu. Þjón­ustu­við­skipti vega þennan mun síðan upp, enda tekjur Íslend­inga af útfluttri þjón­ustu, að lang­mestu leyti vegna ferða­þjón­ustu, eru mun hærri en inn­flutn­ingur á henni. Þjón­ustu­jöfn­uður var til að mynda jákvæður um 121,6 millj­arða króna á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2016. Þar af var 72,8 millj­arðar króna af afgangnum vegna ferða­þjón­ustu. Alls var þjón­ustu­jöfn­uður á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2016 um 216 millj­arðar króna. Þar af komu 123,1 millj­arðar króna til vegna afgangs að við­skiptum með ferða­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár