#smilewithme

Brosið er eina tungu­málið sem fólk frá öllum heims­hornum skilur. #Smilewithme er sam­starfs­verk­efni Bene­dikts Bene­dikts­sonar og Rauða kross­ins.

Benedikt ætlar að gefa út bók með myndum af fólki brosa. Ágóðinn rennur til styrtkar Tómstundasjóðs flóttabarna.
Benedikt ætlar að gefa út bók með myndum af fólki brosa. Ágóðinn rennur til styrtkar Tóm­stunda­sjóðs flótta­barna.

Benedikt Bene­dikts­son er ungur ævin­týra­maður sem fór í heims­reisu í byrjun árs með fríðu föru­neyti og ferð­að­ist til fimm heims­álfa. Þar skoð­uðu þau sig um í 17 mis­mun­andi löndum og sköp­uðu minn­ingar sem munu lifa lengur en sæskjald­baka. Þegar heim var komið eftir ævin­týra­ferð­ina var Benedikt með mynda­vél­ina fulla af myndum og nokkrar þeirra voru sér­stak­ari en aðrar. Það voru #smilewithme-mynd­irnar. Á þeim myndum heldur Benedikt í hönd­ina á fólki frá lönd­unum sem hann heim­sótti og er fólkið bros­andi á mynd­inni. Í bak­grunni er eitt­hvað fal­legt lands­lag eða eitt­hvað ein­kenn­andi fyrir landið.

Benedikt fékk þá hug­mynd að sam­eina ljós­mynd­irnar í ljós­mynda­bók og datt honum í hug að selja bók­ina til styrktar góðs mál­efnis. Hann ákvað að hafa sam­band við Rauða kross­inn og voru þau mjög spennt fyrir þess­ari hug­mynd og út frá því hófst sam­starfið á milli þeirra. Allur ágóði bók­söl­unnar sem fer fram á Karolina Fund fer í Tóm­stunda­sjóð flótta­barna. Rauða kross­inum og Benedikt fannst þessi sjóður við hæfi því á mynd­unum er fólk frá allskyns löndum bros­andi og með því að styrkja Tóm­stunda­sjóð flótta­barna fáum við börn sem koma frá mis­mun­andi löndum til þess að brosa.

Hvað er #smilewithme?

Smilewithme er nafn verk­efn­is­ins og ljós­mynda­ser­í­unnar sem varð til í heims­reis­unni minni. Nafnið kemur út frá því að ég fæ allskyns fólk til þess að brosa með mér á ferða­lagi mínu um heim­inn og smelli svo mynd af því. Mér fannst brosið til­valið til þess að vera ein­kenn­andi fyrir verk­efnið vegna þess að brosið er eina tungu­málið sem fólk frá öllum heims­hornum skilur.

Hvaðan kemur hug­myndin að þessu verki?

Áður en ég fór af stað í þessa reisu lang­aði mig að gera spenn­andi verk­efni út frá henni. Ég hafði lengi vel fylgst með pari á Instagram sem ferð­ast um heim­inn og tekur kærast­inn myndir af því þegar hann heldur í hönd­ina á döm­unni sinni með eitt­hvað ótrú­lega fal­legt í bak­grunni. Hún snýr baki í mynda­vél­ina og klæð­ist fötum í stíl við landið. Þeirra verk­efni kall­ast #followmeto. Mér leist ótrú­lega vel á þeirra hug­mynd og ákvað að breyta henni aðeins. Í stað­inn fyrir að fötin séu í stíl við landið ákvað ég í flestum til­fellum að fá ein­hvern heima­mann til þess að brosa með mér, það tókst ekki alltaf og þá fékk ég ferða­langa mína til þess að koma í stað­inn.

Ertu að vinna að þessu einn eða koma fleiri að verk­inu?

Margir aðilar komu að verk­efn­inu. Rauði kross­inn á stóran þátt í að gera þetta að veru­leika og rennur allur ágóð­inn til þeirra. Einnig fékk ég vin minn hann Hauk Krist­ins­son til þess að hjálpa mér með upp­setn­ing­una á bók­inni. For­síð­una gerði Rán Ísold vin­kona mín og pabbi minn hjálp­aði mér að vinna mynd­irnar. Ég hef fengið frá­bærar við­tökur við þessu verk­efni og hafa margir góð­hjart­aðir ein­stak­lingar styrkt eða hjálpað til með að deila verk­efn­inu áfram og er ég afar þakk­látur fyrir það. Einnig verður að þakka fyr­ir­sæt­unum því án þeirra væri engin bók.

Hvað kom til að þú ákvaðst að nota verk­efnið til að styrkja Tóm­stunda­sjóð flótta­barna á Íslandi?

Það var ein­fald­lega sá sjóður sem mér og Rauða kross­inum leist best á og okkur fannst hann tengj­ast verk­efn­inu. Einnig þykir okkur mik­il­vægt að börn sem koma til Íslands frá erf­iðum aðstæðum í heima­landi sínu fái tæki­færi til að aðlag­ast nýju sam­fé­lagi. Tóm­stunda­iðkun gæti verið eitt af lyk­il­at­riðum til þess að kom­ast inn í ókunn­ugt sam­fé­lag og að líða vel í því, það þykir okkur afar mik­il­vægt.

Að lokum vil ég taka það fram fyrir alla þá sem hafa áhuga á að styrkja verk­efnið að sjóð­ur­inn er ennþá opinn og verður það til og með 8. des­em­ber. Hægt er að kaupa ljós­mynda­bók­ina eða styrkja með frjálsu fram­lagi inn á Karolina Fund síð­unni. Hér er verk­efnið á Karolina fund fyrir áhuga­sama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár