Sérfræðingur í loftslagsmálum telur Trump ekki geta fellt Parísarsáttmálann

Lofts­lags­breyt­ingar eru ein helsta ógn mann­kyns­ins um þessar mundir. Margir hafa því áhyggjur af því að for­seta­kjör Donald Trump komi til með að hafa slæmar afleið­ingar fyrir fram­tíð Par­ís­ar­sátt­mál­ans sem und­ir­rit­aður var í fyrra.

Áhyggj­urnar verða að telj­ast nokkuð eðli­legar, sér í lagi vegna yfir­lýstrar and­stöðu Trump gegn lofts­lags­málum og með óend­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Ef marka má orð sér­staks sendi­manns lofts­lags­mála í Banda­ríkj­unum, Dr. Jonathan Pershing, mun Par­ís­ar­sátt­mál­inn þó lifa af kjör­tíma­bil Trump, þrátt fyrir fyr­ir­séða mót­stöðu hans.

Áfram­hald­andi við­ræður eftir Par­ís­ar­sátt­málan standa nú yfir í Marokkó og til­kynnti Dr. Pershing á fundi þar í gær að hann teldi að sú ástríða sem kom Par­ís­ar­sátt­mál­anum í gegn sé nógu sterk til að stand­ast mót­læti frá for­seta Banda­ríkj­anna ef til þess komi. Hann bætti við að „þjóð­höfð­ingjar geta og munu breyt­ast en ég er full­viss um að við munum halda uppi var­an­legu alþjóð­legu verk­efni til að berj­ast gegn lofts­lags­breyt­ingum“.

Donald Trump hefur verið stór­orður í garð mál­efna sem snúa að lofts­lags­breyt­ingum og sagð­ist meðal ann­ars ætla að slíta Par­ís­ar­sátt­mál­anum yrði hann for­seti auk þess að neita að láta af hendi fjár­mögnun til Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna lofslags­mála.

Síðan hann var kjör­inn fyrir um viku hefur Trump þegar stigið skref gegn lofts­lags­málum með því að skipa Myron Ebell, sem kall­aður hefur verið versti óvinur mál­staðs­ins, til að leiða breyt­inga á Umhverf­is­vernd­ar­stofnun Banda­ríkj­anna.

Þessi frétt birt­ist upp­haf­lega á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár