Karolina fund: Tönnin hans Luca

Auður og Pilar eru vin­konur sem báðar búa í Vesturbæ Reykja­víkur ásamt eig­in­mönnum sínum og börnum. Þær eiga sér ólíkan bak­grunn en báðar hafa þær þó kom­ist í kynni við hinn goð­sagna­kennda Peres-mús þegar kemur að því að setja tönn undir kodd­ann.

Hug­myndin að gera saman bók spratt svo upp þegar sonur Pilar, Luca, missti sína fyrstu tönn og því hægt að segja að bókin sé að vissu leyti byggð á sönnum atburðum.

Bókin heitir Tönnin hans Luca / El diente de Luca og er á tveimur tungu­málum, íslensku og spænsku.

Hver er Luca og í hvaða ævin­týrum lendir hann?

Luca er sjö ára strákur sem á býr á Íslandi. Pabbi hans er argent­ínskur en mamma hans er frá Spáni þannig að hann elst upp við tvö tungu­mál og ólíkar menn­ing­ar­hefðir sem sýnir sig þegar hann missir fyrstu tönn­ina og á von á því að Peres mús komi og sæki hana. Vinir hans í skól­anum hafa aldrei heyrt um Peres mús og sum setja heldur ekki tönn­ina undir kodd­ann. En þau þekkja aðrar hefðir sem eru ekk­ert minna skemmti­legar og saman deila vin­irnir hug­myndum sínum um hvað eigi að gera við tönn­ina.

Hvers vegna ákváðuð þið að skrifa tví­tyngda barna­bók?

Af því að fjöl­tyngi er eitt af því sem ein­kennir fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Því sam­fé­lagi sem við búum í á Íslandi í dag þar sem börn alls staðar að úr heim­inum mæt­ast í leik og starfi. Auk þess að það eru ekki til bækur fyrir byrj­endur í lestri á Íslandi sem eru skrif­aðar á tveimur tungu­málum og, eins og sagan okkar gerir, kynnir börnin fyrir hefðum mis­mun­andi menn­ing­ar­heima og stuðla að umburð­ar­lyndi og virð­ingu.

[adspot]

Hverjum sjáið þið fyrir ykkur að bókin muni gagn­ast?

Það er helst tvennt sem ein­kennir bók­ina og gerir hana sér­staka: Það er að þetta er tví­tyngd bók og því hægt að lesa hana á öðru tungu­mál­inu eða báðum, þannig getur hún nýst sem hjálp­ar­gagn fyrir kenn­ara og for­eldra til þess að við­halda og þróa bæði tungu­málin hjá tví­tyngdum börnum.

En ekki síður sagan sjálf sem sýnir okkur hvernig mis­mun­andi menn­ing getur auðgað líf okkar. Við viljum kenna börnum okkar að meta fjöl­breyti­leik­ann og allan þann auð sem honum fylgir og þannig komi þau til með að búa í heimi sem er rík­ari af skiln­ing og umburð­ar­lyndi.

Verk­efnið er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár