Fleiri Íslendingar á öllum aldri flutt burt en heim

Tæplega 26 þús­und Íslend­ingar hafa flutt úr landi frá byrjun árs­ins 2010, á meðan að ríf­lega 19 þús­und hafa flutt til Íslands. Brott­fluttir Íslend­ingar eru því 6.410 fleiri en aðfluttir á þessu tíma­bili, sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarnans upp úr mann­fjölda­tölum Hagstofu Íslands.

Líkt og greint var frá í Kjarn­anum í síð­ustu viku hafa 270 fleiri Íslend­ingar flutt burt af land­inu það sem af er ári en flutt hafa heim. Útlit er fyrir tals­vert brott­flutn­ingsár í ár, þó lík­legt sé að það verði ekki eins mikið og í fyrra. Fyrstu níu mán­uði árs­ins fluttu 2.695 Íslend­ingar úr landi, en 2.425 fluttu heim. Allt árið í fyrra fluttu 2.380 Íslend­ingar heim til Íslands á meðan 3.785 fluttu burt.

Samkvæmt því fluttu því 1.305 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar úr landi en fluttu til lands­ins. Árið í fyrra var eitt mesta brott­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar hófust, og aðeins fimm sinnum áður frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­fluttir verið umfram aðflutta. Í öll hin skiptin var það í kjöl­far kreppu­ára hér á landi. Hafa ber í huga að fyrstu árin í þess­ari umfjöllun, 2010 og 2011, telj­ast til kreppu­ára og eru meðal mestu brott­flutn­ings­ár­anna.

Hag­stofan hefur spáð því að þró­unin verði á þessa leið áfram og fleiri Íslend­ingar muni flytja burt en heim á hverju ári fram til árs­ins 2065.

Stærsti hópurinn fólk undir 30

Kjarninn ákvað að kafa dýpra ofan í töl­urnar eftir aldri, en þær eru greindar árs­fjórð­ungs­lega eftir ald­urs­bilum aftur til árs­ins 2010.

Mesta hreyf­ingin er hjá fólki á aldr­inum 20 til 29 ára, sem kemur kannski ekki á óvart, enda fyrsti ára­tugur full­orðn­is­ára og sá tími sem flestir Íslend­ingar ljúka námi og eru lík­legir til að fara utan til vinnu eða frekara náms.

Það sem af er þessu ári eru 380 fleiri Íslend­ingar á þessu ald­urs­bili fluttir burt en heim. Tæplega þrjú þús­und fleiri Íslend­ingar á aldr­inum 20 til 29 hafa flutt í burtu en heim á þessu tæp­lega sex ára tíma­bili. 7.770 hafa flutt burt á meðan 4.840 hafa komið heim. Öll árin frá 2010 er þessi hópur stærstur bæði meðal brott­fluttra og aðfluttra.

Þegar sagt var frá því í lok síð­asta árs að árið væri eitt mesta brott­flutn­ingsár íslenskra rík­is­borg­ara, sagði Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands að vís­bend­ingar væru um að margt háskóla­fólk flytti úr land­inu. Eitthvað djúp­stæð­ara væri á ferð­inni en kreppu­flutn­ingar. Batinn á vinnu­mark­aði sem átt hafi sér stað á und­an­förnum árum hafi ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti. „Þá má minna á að sam­kvæmt Hag­stof­unni er munur á ráð­stöf­un­ar­tekj­um ­mennt­aðs og ómennt­aðs fólks hér einn sá minnsti í Evr­ópu,“ sagði Ásgeir við Morg­un­blað­ið í lok síð­asta árs. Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofnun, tók þá í svip­aðan streng og sagði vís­bend­ingar um að margir finni ekki vinnu sem henti námi og bak­grunni, og nokkur fjöldi háskóla­mennt­aðra væru á atvinnu­leys­is­skrá. Þá voru 1.207 atvinnu­lausir með háskóla­próf. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum voru 1.038 háskóla­mennt­aðir á atvinnu­leys­is­skrá, af 3.580 manns, sem gerir tæp­lega þriðj­ung.

Fleiri fluttir burt í öllum aldurshópum

Þótt flestir brott- og aðfluttir Íslend­ingar séu milli tví­tugs og þrí­tugs eru fleiri brott­fluttir en aðfluttir í öllum ald­urs­hópum á þessum árum. Minnstur er mun­ur­inn á brott­fluttum og aðfluttum meðal fólks yfir sex­tugu, 35 fleiri hafa flutt burt en heim frá árinu 2010.

Fólk milli þrí­tugs og fer­tugs er ekki svo langt frá ald­urs­hópnum fyrir neðan, ríf­lega fjögur þús­und manns á þessum aldri hafa flutt heim á tíma­bil­inu en 5.260 hafa flutt í burtu, sem gerir mun upp á 1.250 manns. Ekki er ólík­legt að þessi hópur eigi að ein­hverju leyti börnin undir 10 ára aldri sem hafa flust til og frá land­inu á þessu tíma­bili. 3.830 börn undir tíu ára hafa flutt til Íslands en 4.670 hafa flutt burt, sem gerir börn undir tíu ára að þriðja stærsta hópi þeirra sem flutt hafa burt umfram þá sem komið hafa heim. 840 fleiri börn hafa flutt úr landi en heim.

714 fleiri Íslend­ingar á aldr­inum 40 til 49 ára hafa svo flutt burt á tíma­bil­inu, 2.940 burt á meðan 2.225 hafa flutt heim. Hjá 50 til 59 ára er mun­ur­inn 385 ein­stak­lingar, 1.260 hafa flutt heim en 1.645 burt. Og að lokum er mun­ur­inn 255 ein­stak­lingar hjá börnum á aldr­inum 10 til 19 ára, 2.840 hafa flutt úr landi en 2.585 heim.

Börn að flytja heim

Það sem af er þessu ári hafa 130 fleiri börn og ung­menni á aldr­inum 0-19 ára flutt heim til Íslands heldur en farið hafa burt. Líkt og fyrr segir hafa 380 fleiri ein­stak­lingar á aldr­inum 20 til 29 ára flutt burt en heim, og 40 fleiri á aldr­inum 30 til 39 ára. Hins vegar hafa 10 fleiri Íslend­ingar á aldr­inum 40 til 49 ára flutt heim en burt á þessu ári og 20 á aldr­inum 50 til 59 ára. Fleiri Íslend­ingar sex­tíu ára og eldri hafa aftur á móti flutt burt heldur en heim, eða 10 fleiri það sem af er ári. Hafa ber í huga að allar tölur fyrir þetta ár gilda auð­vitað bara um fyrstu níu mán­uði árs­ins og geta því árs­töl­urnar breyst tals­vert þegar síð­asti árs­fjórð­ungur er lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár