Ætlar að semja lög fyrir þau sem styrkja hann

Ragnar Ólafsson er margra fjala smiður þegar kemur að tón­list. Á ferl­inum hefur hann feng­ist við allt frá klassík, óperu og djass, yfir í popp, Eurovision og þung­arokk. Ragnar ólst upp og bjó erlendis fyrstu 22 ár ævi sinnar, aðal­lega í Svíþjóð en einnig í Banda­ríkj­unum og á Sval­barða. Hann lét fyrst til sín taka í tón­list á mennta­skóla­ár­unum í Gauta­borg, en þar spil­aði hann með fjölda tón­list­ar­manna á borð við Jens Lekman og Olof Dreijer úr hljóm­sveit­inni The Knife.

Eftir að hann flutt­ist aftur heim til Íslands hefur Ragnar gefið út á annan tug hljóm­platna með mis­mun­andi hljóm­sveitum og tón­list­ar­mönnum, og ferð­ast um heim­inn á tón­leika­ferða­lögum með hljóm­sveit­inni sinni Árstíðir.

Hann vinnur nú að sinni fyrstu sóló­plötu “Urges” og hefur stofnað til hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund henni til styrktar. Kjarninn hitti Ragnar og tók hann tali.

Hver er baksaga þín í tónlist?

„For­eldrar mínir er eru báðir vís­inda­menn en njóta þess að spila á hljóð­færi. Á heim­ili okkar voru alltaf hljóð­færi til staðar og það varð til þess að ég fór snemma að fikta við píanóið hennar mömmu og gít­ar­inn hans pabba.

Á tán­ings­árum fór ég að semja tón­list með félög­unum mínum í Gauta­borg. Þá kvikn­aði þessi ástríða fyrir því að skapa tón­list og ég fór að stofna alls­konar hljóm­sveitir í kjöl­farið. Ég byrj­aði sem trommari í pönk­bandi og fór þaðan yfir að vera gít­ar­leik­ari í fönk­bandi og hljóm­borðs­leik­ari í rokk­bandi. Og svona hefur þetta haldið áfram allar götur síðan.

Það virð­ist alltaf legið fyrir mér að fikta við alls­konar stefnur, helst allt á sama tíma en í mis­mun­andi verk­efnum. Ég hef ein­fald­lega svo gaman af alls­konar tón­list að ég tími ekki að ein­skorða mig við eina stefnu.“

Hvers vegna fórstu út í að gera sólóplötu?

„Síðasta vetur lenti ég í hálf­gerðu þung­lyndi í kjöl­far sam­bands­slita. Ég fór að ein­angra mig og tók að semja lög af allt öðrum toga en ég hef gert áður. Þessi lög voru ekki að passa inn í þær tón­list­ar­stefnur sem hljóm­sveit­irnar mínar eru að fást við, þannig að það lá bein­ast við gera þetta undir eigin nafni.“

Hvaða lag helduru mest uppá á plötunni?

„“Urges” er tit­il­lag plöt­unnar, og er svo­lítið eins og upp­gjör við ást­ina og forn mis­tök. Í raun er platan í heild sinni svona “break-up” plata og lögin svona lit­róf þeirra flóknu til­finn­ing sem maður þarf að glíma við eftir að hafa endað fimm ára sam­band.“

Ragnar Ólafsson er með hóp­fjár­öflun á Karolina Fund til að geta klárað plöt­una. Þeir sem leggja Ragnari lið geta á meðal ann­ars vænst þess að hann frum­semji lag handa við­kom­andi.

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár