Ekkert heyrst frá íslenskum stjórnvöldum

Íslensk stjórn­völd hafa vitað í rúm tvö ár að þau hafi gerst brot­leg við EES-samn­ing­inn með ólög­legri rík­is­að­stoð. Ríkið var dæmt vegna máls­ins í sumar, en eft­ir­lits­stofnun EFTA hefur ekk­ert heyrt frá stjórn­völdum.

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, hefur ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá íslenskum stjórn­völdum um það hvort stjórn­völd séu byrjuð að end­ur­heimta ólög­mæta rík­is­að­stoð, sem þeim var gert að gera fyrir rúmum tveimur árum síðan.

Þetta kemur fram í svari ESA við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Í lok júlí síð­ast­lið­ins var Ísland dæmt fyrir að end­ur­heimta ekki rík­is­að­stoð til fimm fyr­ir­tækja, Becromal, Verne, Íslenska kís­il­fé­lags­ins, Thorsil og GMR End­ur­vinnsl­unnar. Fyrir rúmum tveimur árum síðan komst ESA að þeirri nið­ur­stöðu að samn­ingar um ívilnun sem voru gerðir við þessi fyr­ir­tæki hafi falið í sér ólög­mæta rík­is­að­stoð. Íslenskum stjórn­völdum var gert að stöðva allar frek­ari greiðslur til þess­ara fyr­ir­tækja og sjá til þess að öll aðstoðin yrði end­ur­greidd innan fjög­urra mán­aða.

Sá frestur rann út þann 9. febr­úar í fyrra. Þá var íslenskum stjórn­­völdum gert að til­­kynna eft­ir­lits­­stofn­un­inni hver heild­­ar­fjár­­hæð ólög­­mætrar rík­­is­að­­stoðar hefði verið veitt og til­­kynna hvernig íslenska ríkið hygð­ist end­­ur­heimta þessa fjár­­hæð. Það var aldrei gert.

Því var íslenska rík­inu stefnt fyrir EFTA dóm­stól­inn, og hann komst að þeirri nið­ur­stöðu í sumar að Ísland hefði gerst brot­legt. Atvinnu­vega­ráðu­neytið gerði lítið úr dóm­inum í frétta­til­kynn­ingu sem það sendi frá sér um málið þegar dóm­ur­inn lá fyrir. Þar kom aðeins fram að EFTA dóm­stóll­inn hafi átalið drátt á end­ur­heimt. Þá sagði ráðu­neytið að íslensk stjórn­völd hafi unnið að lausn máls­ins und­an­farna mán­uði í sam­ráði við umrædd fyr­ir­tæki og stefnt væri að því að ljúka mál­unum á allra næstu vikum. Það var þann 29. júlí síð­ast­lið­inn.

Íslensk stjórn­völd vissu allan tím­ann að þau hefðu gerst brot­leg með íviln­un­ar­samn­ing­unum en sinntu því ekki að end­ur­heimta aðstoð­ina, að því er fram kom í dómi EFTA dóm­stóls­ins. Stjórn­völd hafi ekki lagt fram neinar sann­anir fyrir því fyrir dómi að samn­ing­arnir hafi verið ógildir eða að greiðslum til fyr­ir­tækj­anna hafi verið hætt. Þá hafi Ísland ekki sýnt fram á nákvæmar upp­hæðir sem ætti að end­ur­heimta né heldur hvernig stæði til að standa að end­ur­heimt­un­um.

Í við­tali við Kjarnann í ágúst sagði Gjermund Mathiesen, yfir­maður sam­keppn­is­mála hjá ESA að end­ur­heimtur á ólög­mætri rík­is­að­stoð væru orðnar að við­var­andi vanda­máli á Íslandi og stofn­unin hefði áhyggjur af stöðu mála hér­lendis.

Íslensk stjórn­völd héldu því fram fyrir dómi að upp­hæð­irnar sem um ræðir séu mjög litl­ar. Mathiesen segir að upp­hæð­irnar hafi vissu­lega ekki verið mjög háar, en það veki einmitt upp áhyggjur af því hvað myndi ger­ast í stærri mál­um. „Myndi þá taka ennþá lengri tíma að end­ur­heimta rík­is­að­stoð­ina? Það er það sem við höfum miklar áhyggjur af.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár