Breytingar á fæðingarorlofi gagnast flestum mæðrum ekkert

42 pró­sent kvenna sem fara í fæð­ing­ar­or­lof eru með 300 þús­und krónur eða minna á mán­uði. Nýlegar breyt­ingar á reglum um Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóð gagn­ast þeim ekk­ert. Ef til­lögur starfs­hóps væru inn­leiddar fengju þær 100 pró­sent launa sinna í orlofi.

42 pró­sent þeirra mæðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof frá byrjun þessa árs og út sept­em­ber­mánuð voru með 300 þús­und krónur eða minna í mán­að­ar­tekjur. Alls voru 16 pró­sent feðra með 300 þús­und krónur eða minna í mán­að­ar­tekjur. Þessi hópur mun áfram fá ein­ungis 80 pró­sent af launum sínum þegar hóp­ur­inn fer í fæð­ing­ar­or­lof sam­kvæmt þeim breyt­ingum sem rík­is­stjórnin gerði nýverið.

Ef farið hefði verið eftir þeim til­lögum sem starfs­hópur Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og húnsæð­is­mála­ráð­herra, lagði fram í mars síð­ast­liðnum væru fyrstu 300 þús­und krónur af tekjum þeirra sem fara í fæð­ing­ar­or­lof óskertar. Þessi hópur lægst laun­uð­ustu Íslend­ing­anna sem taka fæð­ing­ar­or­lof, meðal ann­ars rúm­lega fjórða hver kona sem tekur slíkt, hefðu því haldið 100 pró­sent af tekjum sínum ef rík­is­stjórnin hefði farið eftir til­mælum starfs­hóps ráð­herr­ans. Þess í stað fær hann 80 pró­sent launa sinna í kjöl­far þeirrar reglu­gerð­ar­breyt­ingar sem rík­is­stjórnin sam­þykkti nýverið og tók gildi 15. októ­ber. Þetta kemur fram í tölum sem BSRB hefur unnið upp úr upp­lýs­ingum frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði.

Ef farið hefði verið að til­lögum starfs­hóps­ins, og fyrstu 300 þús­und krón­urnar sem nýir for­eldrar afla yrðu óskertir, þá myndu greiðslur til þeirra sem hafa hærri laun en 300 þús­und líka aukast umtals­vert. Þannig myndu þeir sem eru með tekjur á milli 300-400 þús­und fá 97 pró­sent launa sinna í fæð­ing­ar­or­lofi, þeir sem þéna 400-500 þús­und fá 93 pró­sent og þeir sem þéna 500-750 þús­und krónur fá 90 pró­sent launa að með­al­tali á mán­uði. Alls eru rúm­lega 80 pró­sent þeirra mæðra sem hafa tekið fæð­ing­ar­or­lof á þessu ári með mán­að­ar­tekjur undir 500 þús­und krónum á mán­uði. 44 pró­sent feðra sem tekið hafa orlof eru hins vegar með tekjur yfir 500 þús­und krónur á mán­uði.

Greiðslur hækkaðar upp í 500 þúsund

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum 7. októ­ber síð­ast­lið­inn að hækka hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði í 500 þús­und krónur. Greiðsl­urnar höfðu verið skertar mikið eftir hrun og hækkað mjög lítið á und­an­förnum árum. Þær voru 370 þús­und krónur á mán­uði fram að hækk­un­inni fyrr í þessum mán­uði. Til sam­an­burðar má nefna að í árs 2008 voru hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði 535.700 krón­ur. Ef þær greiðslur hefðu fylgt vísi­tölu neyslu­verðs - sem mælir verð­bólgu - þá væru hámarks­greiðslur úr sjóðnum 828.192 krón­ur.

Ákvörðun rík­is­sjóðs var ekki fram­kvæmd með laga­breyt­ingu, heldur reglu­gerð­ar­breyt­ingu. Hún tók gildi 15. októ­ber síð­ast­lið­inn og gerði það að verkum að margar þeirra kvenna sem settar voru dag­anna fyrir þann dag reyndu hvað sem þær gátu til að fresta fæð­ingu, til að fá hærra fæð­ing­ar­or­lof.

Starfs­hópur um fram­tíð­ar­stefnu í fæð­ing­ar­or­lofs­málum skil­aði til­lögum til Eyglóar í mars síð­ast­liðn­um. Þar var lagt til að hámarks­greiðslur yrðu hækk­aðar upp í 600 þús­und krón­ur, að fyrstu 300 þús­und krónur tekna verði óskertar en 80 pró­sent af tekjum umfram það. Þá lagði hóp­ur­inn til að hámarks­greiðsl­urnar myndu breyt­ast í sam­ræmi við launa­vísi­tölu hvers árs og að breyt­ing­arnar myndu taka gildi um næstu ára­mót.

Auk þess var lagt til að fæð­ing­ar­or­lof yrði 12 mán­uðir í stað níu frá og með byrjun árs 2019 og að leik­skóla­dvöl yrði tryggð í fram­haldi af fæð­ing­ar­or­lofi.

Kostn­að­­ur­inn við þessar breyt­ingar yrði tals­verð­­ur. Greiðslur Fæð­ing­­ar­or­lofs­­sjóðs voru 8,5 millj­­arðar í fyrra og gert er ráð fyrir að þær verði 8,8 millj­­arðar á þessu ári. Með því að hækka hámarks­­greiðsl­­urnar í 600 þús­und krónur fer kostn­aður sjóðs­ins upp í um 10,7 millj­­arða á næsta ári og verður um 12,2 millj­­arðar á ári eftir það. Eygló sagð­ist samt sem áður ætla að vinna frum­varp upp úr til­lög­un­um.

Úr því varð ekki og þess í stað var ráð­ist í reglu­gerð­ar­breyt­ingu þremur vikum fyrir kosn­ingar sem hækk­aði hámarks­greiðslur úr 370 þús­und í 500 þús­und krónur.

Kostnaður aukist gríðarlega

Viku áður en að reglu­gerð­ar­breyt­ingin var sam­þykkt greindi Kjarninn frá því að á sama tíma og hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði höfðu dreg­ist saman um rúm­lega 30 pró­sent hefðu laun og útgjöld heim­ila hækkað um tugi pró­senta. Kostn­aður vegna heil­brigð­is­þjón­ustu og lyfja hafði hækkað um 47,7 pró­sent, föt og skór hækkað um 56,6 pró­sent og mat­ar- og drykkj­ar­vörur um 68,7 pró­sent. Þá hafði hús­næð­is­verð hækkað um 20,4 pró­sent og húsa­leiga um heil 84,5 pró­sent. Þetta kom fram í tölum sem BSRB og ASÍ hafa tekið saman ann­ars vegar um þróun hámarks­greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði frá árinu 2008 og hins vegar um hlut­falls­lega hækkun launa og útgjalda heim­il­is­ins frá árinu 2008.

Nið­ur­staðan var skýr. Greiðslur úr fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði höfðu lækkað mikið en allir kostn­að­ar­liðir hækkað veru­lega. Afleið­ingin er sú að færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof, fæð­ing­ar­tíðnin er sú lægsta frá því að mæl­ingar hófust árið 1853 og sá hópur sem á erf­ið­ara með að láta enda ná saman eftir barns­burð hefur vaxið mjög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár