Fæðingarorlofið hækkað í 500 þúsund með reglugerð

Fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur verða hækk­aðar í 500 þús­und krónur frá og með 15. októ­ber næst­kom­andi. Þetta var sam­þykkt á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag, að til­lögu Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Hámarks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi eru nú 370 þús­und krónur, en verða hækk­aðar í 500 þús­und krónur sem fyrr segir. Fæð­ing­ar­styrkur og lág­marks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi hækka einnig.

Eygló hafði áður áformað að leggja fram frum­varp til breyt­inga á lögum um fæð­ing­ar­or­lof, sem byggði á til­lögum starfs­hóps sem hún skip­aði árið 2014 til að móta fram­tíð­ar­stefnu stjórn­valda í þessum málum. Samkvæmt því frum­varpi átti að hækka hámarks­greiðslur í 600 þús­und krónur, auk þess sem lengja átti fæð­ing­ar­or­lofið í áföngum. Þá liggur fyrir frum­varp inni í þing­inu frá þing­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar þar sem lagt er til að hámarks­greiðslur hækki í 500 þús­und krónur, auk þess sem fæð­ing­ar­or­lof yrði lengt í áföngum. Það frum­varp hefur verið í vel­ferð­ar­nefnd þings­ins frá því í mars.

Í til­kynn­ingu frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu kemur fram að Eygló sé ánægð með að geta ráð­ist í þessa hækkun. Í rík­is­fjár­mála­á­ætlun áranna 2016-2019 sé gert ráð fyrir að auka við einum millj­arði króna til fæð­ing­ar­or­lofs á árunum 2017 – 2018 og eins hafi ákveðið svig­rúm skap­ast þar sem greiðslur fæð­ing­ar­or­lofs og fæð­ing­ars­styrkja á þessu ári verði nokkuð innan heim­ilda.

Kveðið verður á um þessar hækk­anir með reglu­gerð, en ekki með lögum frá Alþingi eins og venjan er. Breyt­ing­arnar eiga að taka gildi 15. októ­ber, á laug­ar­dag­inn eftir rúma viku, og gildir aðeins um for­eldra barna sem fæð­ast, verða ætt­leidd eða tekin í var­an­legt fóstur þann dag eða síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár