Vilja framlengja landamæraeftirlitið

Málefni inn­flytj­enda og flótta­manna eru eld­fim í Danmörku. Borgþór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarnans í Danmörku, hefur fylgst náið með umræðu um landamæra­eft­ir­lit.

Danmörk, Noregur, Þýska­land og Aust­ur­ríki ætla að óska eftir að landamæra­eft­ir­litið á Schengen svæð­inu verði fram­lengt en núver­andi heim­ild rennur út um miðjan nóv­em­ber. Löndin fjögur hyggj­ast senda fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins erindi þess efnis á næstu dögum. Svíar hafa ekki ákveðið hvort þeir vilja halda eft­ir­lit­inu áfram eftir þann tíma. Danski inn­flytj­enda­ráð­herr­ann segir landamæra­eft­ir­litið nauð­syn­legt til að stemma stigu við straumi flótta­fólks og til að koma í veg fyrir að hryðju­verka­menn geti óhindrað ferð­ast milli landa.

Schengen samn­ing­ur­inn varð til árið 1990, fyrir til­stuðlan Evr­ópu­sam­bands­ins. Ekki eiga öll ríki innan ESB aðild að samn­ingnum, til dæmis Bretland, og nokkur ríki, þar á meðal Ísland og Noregur, eru aðilar að Schengen þótt þau standi utan ESB. Schengen samn­ing­ur­inn snýst um frjálsa för innan Schengen svæð­is­ins, án landamæra­eft­ir­lits. Íbúum aðild­ar­ríkj­anna er hins­vegar skylt að fram­vísa full­gildum per­sónu­skil­ríkjum sé þess óskað (stikkprufur) þegar þeir ferð­ast milli landa. Einnig er heim­ilt, við sér­stakar aðstæður að taka upp tíma­bundið landamæra­eft­ir­lit. Stjórn­völd í Schengen lönd­unum (eins og þau eru iðu­lega kölluð) nýttu sér þessa sér­stöku heim­ild þegar eft­ir­litið var tekið upp og heim­ildin hefur síðan verið fram­lengd nokkrum sinnum.

Brýn nauðsyn að eftirlitið verði áfram

Inger Stöjberg, ráð­herra inn­flytj­enda­mála í Danmörku hefur haft for­ystu um að fara fram á að leyfi til áfram­hald­andi landamæra­gæslu verði heim­iluð. Í við­tali við Danska útvarpið fyrir tveim dögum sagði ráð­herr­ann brýna nauð­syn að landamæra­eft­ir­litið verði áfram við lýði um óákveð­inn tíma. „Eft­ir­litið við ytri landa­mæri Schengen svæð­is­ins er í ólestri og það eru þús­undir óskráðra flótta­manna í Evrópu. Meðan svo er teljum við nauð­syn­legt að landamæra­eft­ir­litið verði áfram í gildi” sagði ráð­herr­ann. „Hryðju­verkaógnin er líka enn til staðar og þess vegna er bráð­nauð­syn­legt að vita, og fylgj­ast með, hverjir það eru sem koma til Evrópu. Við vitum líka mög dæmi þess að t.d. Danir sem hafa tekið þátt í stríð­inu í Sýrlandi, og víðar, hafa bæði kunn­áttu og vilja til að fremja hryðju­verk í Evrópu” sagði ráð­herr­ann. Þýski inn­an­rík­is­ráð­herr­ann, Thomas de Maiziére hefur tekið í sama streng og sagt nauð­syn­legt að landamæra­eft­ir­litið haldi áfram um sinn. Utan­rík­is­ráð­herra Aust­ur­ríkis, Wolfgang Sobotka, sagði í við­tali fyrir nokkrum dögum að eft­ir­litið verði að halda áfram „ann­ars verðum við að hugsa um aðrar lausnir” bætti hann við án þess að útskýra nánar hvað hann ætti við. “Í Grikk­landi eru 50 þús­und flótta­menn og í löndum á Balkanskag­anum mik­ill fjöldi, við vitum ekki hve margir.” Dimitris Avramopoulos fram­kvæmda­stjóri inn­flytj­enda­mála hjá Evr­ópu­sam­band­inu sagði í við­tali við dönsku Ritzau frétta­stof­una að ef nauð­syn­legt reynd­ist að við­halda landamæra­eft­ir­lit­inu yrði beiðni um slíkt að lík­indum sam­þykkt. „Beiðni um það hefur ekki borist og fyrr en það ger­ist tökum við ekki neina ákvörðun” sagði fram­kvæmda­stjór­inn.

Danir í vandræðum vegna Europol

Flótta­manna­straum­ur­inn er ekki það eina sem veldur dönskum stjórn­völdum áhyggjum. Þátttaka Dana í Evr­ópu­lög­regl­unni, Europol, er í upp­námi eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una 3. des­em­ber í fyrra. Þá völdu Danir að sleppa ekki und­an­þágu­á­kvæðum Maastricht samn­ings­ins (kosn­ing­arnar varð að halda vegna breyt­inga á samn­ingnum) sem hafði í för með sér að eftir 1. maí á næsta ári verða þeir ekki aðilar að Europol. Þetta þýðir að Danmörk verður ekki þátt­tak­andi í sam­starfi í dóms og lög­reglu­málum, nema samn­ingar náist um slíkt við Evr­ópu­sam­bandið. Þar á bæ er samn­ings­vilj­inn tak­mark­aður þótt ýmsir danskir stjórn­mála­menn (einkum þing­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins) hafi haldið öðru fram.

Europol aðildin sterkasta vopnið í baráttunni við glæpamenn

Danska lög­reglan hefur miklar áhyggjur af því sem við tekur þegar Europol aðild Dana lýkur í lok apríl á næsta ári. Þótt ef til vill tak­ist að semja um aðild Dana að skrán­ing­ar­kerfi Europol, sem er þó alls kostar óvíst, er ljóst að danska lög­reglan hefur ekki sömu mögu­leika og áður í bar­átt­unni við glæpa­gengi sem ætla sér að kom­ast til Dan­merkur. Michael Kjeld­gaard, yfir­maður alþjóða­deildar dönsku lög­regl­unnar sagði í við­tali að eitt mik­il­væg­asta tækið í þeirri bar­áttu væri sam­skipta- og upp­lýs­inga­kerfi Europol. „Ef við höfum ekki aðgang að þessu kerfi eftir 1. maí á þessu ári er það mikil aft­ur­för” sagði Michael Kjeld­gaard. „Við flettum 71 þús­und sinnum upp í skrán­ing­ar­kerfi Europol á síð­asta ári og gátum í tengslum við það leitað í sam­skipta- og upp­lýs­inga­kerf­inu. Skrán­ing­ar­kerfið er út af fyrir sig gagn­legt en upp­lýs­inga­sam­skiptin eru ekki síður mik­il­væg” sagði yfir­maður alþjóða­deildar dönsku lög­regl­unnar og bætti við að danska lög­reglan hefði einkum átt mikið og gott sam­starf við Hol­lend­inga og Þjóð­verja. Þetta sam­starf verður allt í upp­námi og það er ein­ungis einn hópur sem græðir á því. Nefni­lega glæpa­menn­irnir” sagði Michael Kjeld­gaard.

Ekki er ljóst hvenær form­legar við­ræður danskra stjórn­valda og Evr­ópu­sam­bands­ins vegna Europol hefj­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannavandi

Fréttir

Rík­is­stjórnin setur 250 millj­ónir í aðstoð við flótta­fólk

Fjórar stofn­anir munu ráð­stafa 250 millj­óna króna fram­lagi frá íslenska rík­inu til að styðja við bakið á flótta­fólki, einkum frá Sýrlandi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 250 millj­óna auka­fram­lag til mann­úð­ar­mála var sam­þykkt í fjár­auka­lögum í lok síð­asta árs. Ákveðið hefur verið að stærstur hluti fjár­magns­ins fari til Sam­ræm­ing­ar­skrif­stofu aðgerða Sam­ein­uðu þjóð­anna í mann­úð­ar­málum (OCHA) og Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár