44% fall í fjölda hælisumsókna

Nær helm­ingi færri hæl­is­um­sóknir bár­ust Evr­ópu­sam­band­inu í fyrra miðað við árið áður, en voru þó mun fleiri en árið 2013.

Algengast er að hælisleitendur séu frá Sýrlandi, líkt og árin áður.
Algeng­ast er að hæl­is­leit­endur séu frá Sýrlandi, líkt og árin áður. Mynd: EPA

Fjöldi hæl­is­um­sókna til Evr­ópu­sam­bands­ríkja árið 2017 minnk­aði um 44% frá því árinu áður og nam tæpum 730,000. Á sama tíma minnk­aði fjöldi umsókna einnig á Íslandi, þó aðeins um 15%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu hæl­is­um­sókna­skrif­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, sem birt­ist í gær.

Kjarninn hefur áður fjallað um fjölda hæl­is­leit­enda á Íslandi, en hann minnk­aði einnig tölu­vert á milli 2016 og 2017. Þá hafa enn færri flótta­menn sótt um hæli hér á landi það sem af er ári en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra. Á öllu síð­asta ári sóttu 1.096 manns um hæli á Íslandi sam­an­borið við 1.293 umsóknir sem feng­ust á árinu áður, en það jafn­gildir 15 pró­senta fækkun.

Samkvæmt frétt Guardian um skýrsl­una var fækk­unin meiri yfir allt Evr­ópu­sam­bandið, en í fyrra sóttu 728,470 manns um alþjóð­lega vernd í sam­bands­ríkjum þess miðað við 1,3 millj­ónir á árinu. Þar með nam fækk­unin alls 44% pró­sent yfir allt sam­bandið milli ára.

Sem áður eru algeng­ustu þjóð­erni hæl­is­leit­enda Sýrland, Írak og Afganistan, en til sam­ans telja umsóknir frá þeim löndum 29% allra umsókna. Líkt og á Íslandi hefur fækk­unin haldið áfram það sem af er ári, þrátt fyrir að fjöldi hæl­is­um­sókna sé enn tölu­vert meiri en fyrir svoköll­uðu flótta­manna­bylgj­una árið 2014 og 2015.

Þýska­land tekur enn á móti mestum fjölda hæl­is­leit­enda, eða um 222,560 umsóknum árið 2017. Á hæla þess koma svo Ítalía, Frakk­land og Grikk­land. Hins vegar eru margar þeirra fastar í kerf­inu, alls eru 954,100 umsóknir sem bíða afgreiðslu í öllu sam­band­inu. Einnig er mik­ill munur á afgreiðslu hæl­is­um­sókna milli landa, en Sviss veitir 90% umsækj­enda sinna hæli á meðan hlut­fallið í Tékk­landi er ein­ungis 12%. Hlut­fallið á Íslandi er enn lægra, en þar fá einn af hverjum tíu umsækj­endum hæli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannavandi

Fréttir

Rík­is­stjórnin setur 250 millj­ónir í aðstoð við flótta­fólk

Fjórar stofn­anir munu ráð­stafa 250 millj­óna króna fram­lagi frá íslenska rík­inu til að styðja við bakið á flótta­fólki, einkum frá Sýrlandi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 250 millj­óna auka­fram­lag til mann­úð­ar­mála var sam­þykkt í fjár­auka­lögum í lok síð­asta árs. Ákveðið hefur verið að stærstur hluti fjár­magns­ins fari til Sam­ræm­ing­ar­skrif­stofu aðgerða Sam­ein­uðu þjóð­anna í mann­úð­ar­málum (OCHA) og Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár