Ríkisstjórnin setur 250 milljónir í aðstoð við flóttafólk

Fjórar stofn­anir munu ráð­stafa 250 millj­óna króna fram­lagi frá íslenska rík­inu til að styðja við bakið á flótta­fólki, einkum frá Sýrlandi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

250 millj­óna auka­fram­lag til mann­úð­ar­mála var sam­þykkt í fjár­auka­lögum í lok síð­asta árs. Ákveðið hefur verið að stærstur hluti fjár­magns­ins fari til Sam­ræm­ing­ar­skrif­stofu aðgerða Sam­ein­uðu þjóð­anna í mann­úð­ar­málum (OCHA) og Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNHCR). Fyrr­nefnda stofn­unin fær 98 millj­ónir króna, sem renna í neyð­ar­sjóð fyrir Líbanon. Þar er mikil þörf á aðstoð vegna vax­andi fjölda flótta­fólks frá Sýrlandi.

Samkvæmt utan­rík­is­ráðu­neyt­inu er Ísland þar með meðal sex helstu styrkt­ar­að­ila sjóðs­ins, en hin ríkin eru Belgía, Holland, Þýska­land, Danmörk og Svíþjóð.

Flótta­manna­stofn­unin fær 80 millj­ónir króna og Rauði kross­inn mun ráð­stafa 52 millj­ónum til að efla neyð­ar­heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Sýr­lend­inga á flótta í Líbanon. Þá mun Hjálp­ar­starf kirkj­unnar fá 20 millj­ónir króna vegna stuðn­ings við flótta­fólk í Sýrlandi, Jórdaníu og Líbanon.

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra segir að full ástæða sé til að veita fé til þeirra sem veita sýr­lensku flótta­fólki mann­úð­ar­að­stoð á vett­vangi, þar sé mesta neyðin. „Með því að ráð­stafa fjár­magn­inu á þennan hátt erum við að svara kalli Sýr­lend­inga sjálfra en einnig nágranna­ríkj­anna, Líbanons og Jórdaníu, sem hafa mátt axla miklar byrðar vegna komu hund­ruð þús­unda Sýr­lend­inga yfir landa­mærin,“ segir hann í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannavandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár