Synti með bát í eftirdragi til Grikklands og keppir nú á Ólympíuleikum

Sund­konan Yusra Mardini flúði stríðið í Sýrlandi fyrir ári síðan. Hún komst til Þýska­lands í sept­em­ber. Hún verður fyrsti kepp­andi keppn­isliðs flótta­fólks á Ólymp­íu­leik­unum til að keppa í sinni grein.

Yusra Mardini hefur verið í sviðsljósinu síðan hún kom til Ríó á dögunum. Hún verður fyrsti keppandi ólympíuliðs flóttafólks til að keppa í sinni keppnisgrein.
Yusra Mardini hefur verið í sviðs­ljós­inu síðan hún kom til Ríó á dög­unum. Hún verður fyrsti kepp­andi ólymp­íuliðs flótta­fólks til að keppa í sinni keppn­is­grein. Mynd: EPA

Hin átján ára gamla Yusra Mardini verður fyrsti íþrótta­mað­ur­inn í keppn­isliði flótta­manna sem keppir á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó í dag. Hún hefur æft stíft und­an­farið í sund­höllum Berlínar í Þýska­landi, þangað sem hún komst eftir meira en mán­aðar flótta frá heima­landi sínu Sýrlandi fyrir réttu ári síðan.

Í ágúst í fyrra lagði hún á flótta ásamt systur sinni frá heim­ili sínu í úthverfi í Damaskus, höf­uð­borg Sýrlands, með það að mark­miði að kom­ast til Evrópu í von um betra líf, langt í burtu frá hryll­ingi stríðs­ins og sífelldri hættu á að verða fyrir spreng­ingum. Hún segir líf sitt hafa breyst hratt eftir að stríðið braust út árið 2011. „Allt í einu gat maður ekki farið það sem maður vildi,“ segir hún í sam­tali við New York Times. Skólinn var lok­aður svo dögum skipti og skot­hríðir heyrð­ust oft svo hún þurfti að hlaupa í skjól.

Árið 2012 var heim­ili þeirra lagt í rúst í Darayya-fjöldamorð­unum þar sem tveir af hennar bestu vinum úr sund­inu lét­ust. Síðar reif sprengja þakið af sund­höll­inni þar sem þau æfðu sund. Það gerði úts­lagið fyrir hana sem bað móður sína um leyfi til að leggja á flótta. „Allt í lagi. Nú er nóg komið, sagði ég við mömmu,“ lýsir Mardini. „Hún sagði að það væri í lagi ef ég fyndi ein­hvern sem hún gæti treyst til að fara með.“

Hinn 12. ágúst 2015 flaug Mardini ásamt systur sinni og tveimur frændum sínum frá Damaskus til Beirút í Líbanon. Þaðan komust þau til Istanbúl í Tyrk­landi og komust í sam­band við smygl­ara. Í hópi 30 ann­arra flótta­manna voru þau flutt í rútu inn í þéttan skóg nærri vest­ur­strönd Tyrk­lands þar sem beðið var færis á að sigla til grísku eyj­ar­innar Lesbos. „Við héldum að þetta væri eina rútan á svæð­inu en það komu fjórar eða fimm rútur fullar af fólki á dag. Það biðu tvö til þrjú hund­ruð manns eftir færi á að kom­ast óséð af lög­regl­unni á haf út,“ lýsir Mardini.

Fjórum dögum síðar var Mardini-systrum komið fyrir á litlum sex manna báti ásamt 18 öðrum. Í hópnum var fólk á öllum aldri. Til­raunir þeirra til að kom­ast fram hjá lög­reglu og landamæra­vörðum gengu ekki þrauta­laust. Í fyrsta sinn náð­ust þau og voru send til baka. Í seinni til­raun­inni varð bát­ur­inn vél­ar­vana eftir um 20 mín­útna sigl­ingu. Veðrið var ekki gott og sjór­inn úfinn.

Syst­urnar gripu til þess ráðs að stökkva frá borði ásamt tveimur öðrum strákum sem kunnu að synda og hófu að ýta bátnum. „Allir fóru með bænir og köll­uðu til tyrk­neskra eða grískra lög­reglu­manna og ósk­uðu eftir hjálp. Þeir svör­uðu með því að benda okkur til baka,“ segir Yusra Mardini. Þau héldu hins vegar áfram og stýrðu bátnum á sundi í hátt í fjórar klukku­stundir. Strák­arnir gáfust mun fyrr upp.

Mardini segir að þetta hafi verið ótrú­lega erfið raun. Saltið úr sjónum brann í augun og á húð­inni hennar. Það var kalt og fötin héldu aftur af henni. Á einum tíma­punkti seg­ist hún hafa velt fyrir sér hvað hún væri að hugsa. „Ég er sund­kona. Mun ég deyja í vatn­inu eftir allt saman?“

Grét mest í biðröð eftir leyfum

Hópurinn náði loks landi á Lesbos. Þær systur höfðu sett stefn­una á Þýska­land svo ferð þeirra var rétt að byrja. Þær gengu langar leiðir, jafn­vel svo dögum skipti og gistu á engjum og í kirkjum. Leigu­bílar stöðv­uðu ekki fyrir þeim og veit­inga­hús vildu sum ekki veita þeim þjón­ustu, jafn­vel þó þær ættu pen­inga.

Þær hittu samt gott fólk inn á milli. Mardini rifjar upp stutt kynni sín af grískri stelpu sem hún heldur að hafi verið jafn gömul og hún. „Þegar ég komst Grikk­lands hafði ég tapað skónum mínum. Það var þarna grísk stelpa — ég held að hún hafi verið á svip­uðum aldri og ég — og hún gaf mér skóna sína og gaf ungu barni peys­una sína.“

Leið þeirra systra lá í gegnum Makedóníu og Serbíu þar til þær komust á lest­ar­stöð­ina í Búdapest í Ung­ver­landi í sept­em­ber. Eftir að þær höfðu keypt lest­ar­miða til Þýska­lands fyrir mörg hund­ruð evrur lok­uðu ung­versk yfir­völd lest­ar­stöð­inni svo mið­arnir voru ónýtir. Mikil mót­mæli urðu fyrir utan lest­ar­stöð­ina meðal flótta­fólks í sömu stöðu og Mardini-systur. Á end­anum komust þær til Þýska­lands í gegnum Aust­ur­ríki og lentu þær í flótta­manna­búðum í Berlín. Þar deildu þær tjaldi með sex mönnum sem þær höfðu ferð­ast með.

Mardini seg­ist hafa orðið glöð með að komst loks á leið­ar­enda. „Það voru engin vanda­mál. Ég var í Þýska­landi með systur minni. Þetta var mark­miðið.“ Við tók langur vetur þar sem þær stóðu í löngum bið­röðum til þess að geta skráð sig sem flótta­menn hjá þýska rík­inu og til að sækja um hæli. Þeim var oft vísað í burtu eftir átta klukku­stunda bið í frosti og sagt að koma aftur dag­inn eftir. „Ég grét meira þar heldur en á meðan ferða­lag­inu stóð,“ segir Mardini.

For­eldrar Mardini-systra flúðu síðar frá Sýrlandi og hafa kom­ist til Þýska­lands til barna sinna. Yusra býr með systur sinni í íbúð í Berlín og hefur þeim verið veitt tíma­bundið hæli.

Þurfti að komast aftur í laugina

Faðir Yursru Mardini er sund­þjálf­ari og kenndi henni að synda þegar hún var þriggja ára gömul. Hún hefur síðan keppt á alþjóð­legum sund­mótum. Síðasta mótið sem hún tók þátt í var Heims­meist­ar­mótið í sundi á vefum alþjóða sund­sam­bands­ins árið 2012 í Istanbúl. Þá keppti hún í 200 metra fjór­sundi, 200 metra skrið­sundi og 400 metra skrið­sundi.

Mardini segir að það hafi ekki verið for­gangs­at­riði hjá henni að kom­ast aftur í laug­ina en eftir að hún heyrði af sigri keppi­nautar síns í sund­keppni í Asíu þá hafi hún fengið löng­un­ina aftur. Egypskur túlkur í flótta­manna­búð­unum í Berlín kom henni í sam­band við sund­þjálf­ara þýska sund­fé­lags­ins Wasserfreunde Spandau 04 sem féllst á að leyfa henni að spreyta sig.

Þjálf­ar­anum, Sven Spann­ekrebs, leist vel á tækni­lega getu Yusru Mardini í laug­inni en sá strax að tveggja ára fjar­vera úr laug­inni hafði haft slæm áhrif á þolið. Eftir að hafa synt með sund­fé­lag­inu í nokkrar vikur varð Spann­ekrebs viss um að Mardini gæti átt mögu­leika á að ná lág­mörkum fyrir Ólymp­íu­leik­ana í Tókýó árið 2020.

Alþjóða ólymp­íu­nefndin til­kynnti í mars að fimm til tíu íþrótta­mönnum yrði boðið til að keppa á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó undir merkjum Ólymp­íu­leik­anna vegna flótta­manna­vand­ans í heim­inum. Fólkið sem yrði valið væri íþrótta­fólk á flótta frá heima­landi sínu vegna stríðs eða útskúf­unar.

Mardini hlaut íþrótta­tengdan skóla­styrk frá Alþjóða ólymp­íu­nefnd­inni í jan­úar sem Mardini notar til að borga leigu á íbúð. Spann­ekrebs hefur haft hana á ströngum æfingum fyrir Ólymp­íu­leik­ana; Á hverjum degi eru tvær tveggja stunda langar sun­dæf­ingar auk klukku­tíma langrar æfingar á bakk­anum. Á milli æfinga fer hún í skól­ann.

Sund­konan unga frá Sýrlandi mun stinga sér til sund á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó síð­degis í dag. Mardini syndir fyrir sér­stakt ólymp­íulið flótta­fólks í Ríó, eins og greint var frá hér að ofan, og verður fyrst kepp­enda liðs­ins til að keppa á leik­unum. Þetta er enn fremur í fyrsta sinn sem sér­stakt lið er skipað flótta­fólki sem getur ekki, vegna stríðs eða útskúf­unar, keppt fyrir heima­land sitt.

Mardini keppir í tveimur greinum á Óymp­íu­leik­unum: 100 metra flugsundi og 100 metra skrið­sundi. Hún hefur hins vegar ekki náð lág­mörk­unum sem þarf til að öðl­ast þátt­töku­rétt á Ólymp­íu­leikum í þessum greinum. Besti tími Mardini í 100 metra flugsundi er ein mín­úta og átta sek­úndur og í 100 metra skrið­sundi er besti tím­inn hennar ein mín­úta og tvær sek­úndur. Lág­mörkin eru níu sek­úndum hrað­ari í flugsund­inu og ell­efu sek­úndum hrað­ari í skrið­sund­inu.

Í keppn­is­grein­inni í dag, 100 metra flugsundi, er hún í riðli tvö. Áætlað er að Mardini verði ræst af stað klukkan 16:31 að íslenskum tíma. Sýnt verður frá sund­keppn­inni á aðal­rás RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannavandi

Fréttir

Rík­is­stjórnin setur 250 millj­ónir í aðstoð við flótta­fólk

Fjórar stofn­anir munu ráð­stafa 250 millj­óna króna fram­lagi frá íslenska rík­inu til að styðja við bakið á flótta­fólki, einkum frá Sýrlandi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 250 millj­óna auka­fram­lag til mann­úð­ar­mála var sam­þykkt í fjár­auka­lögum í lok síð­asta árs. Ákveðið hefur verið að stærstur hluti fjár­magns­ins fari til Sam­ræm­ing­ar­skrif­stofu aðgerða Sam­ein­uðu þjóð­anna í mann­úð­ar­málum (OCHA) og Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár