Svíar ósáttir með norskan ráðherra innflytjendamála

Norski inn­flytj­enda­ráð­herr­ann er í heim­sókn í Svíþjóð til að kanna hvað hafi farið úrskeiðis í inn­flytj­enda­málum. Sænski ráð­herr­ann segir kollega sinn bulla og vill ekki taka þátt í kosn­inga­bar­átt­unni í Noregi.

Helene Fritzon (vinstri) er sænski ráðherra innflytjendamála. Sylvi Listhaug (hægri) er norski ráðherra sama málaflokks.
Helene Fritzon (vinstri) er sænski ráð­herra inn­flytj­enda­mála. Sylvi Listhaug (hægri) er norski ráð­herra sama mála­flokks. Mynd: Samsett mynd

Kosn­inga­bar­áttan fyrir þing­kosn­ing­arnar í Noregi hefur teygt anga sína yfir landa­mærin til Sví­þjóðar og inn á borð ráð­herra þar í landi.

Norski inn­flytj­enda­ráð­herr­ann og fram­bjóð­andi norska Fram­fara­flokks­ins, Sylvi Listhaug, er í heim­sókn í Svíþjóð þar sem hún hygg­ist kynna sér stöðu inn­flytj­enda og læra af svo Norðmenn lendi ekki í sömu aðstæðum og Svíar, sem hún segir að glími við gríð­ar­leg ofbeld­is­vanda­mál vegna inn­flytj­enda.

Þessu hefur sænski ráð­herra inn­flytj­enda­mála, Helene Fritzon, hafnað. Vegna máls­ins aflýsti hún fundi sem ráð­herr­arnir ætl­uðu að eiga í dag.

„Það hefur orðið aug­ljóst á síð­ustu dögum að heim­sókn Listhaug er liður í norsku kosn­inga­bar­átt­unni,“ er haft eftir Fritzon á vef norska dag­blaðs­ins VG. „Listhaug virð­ist vera áhuga­sam­ari um að lýsa rangri mynd af Svíþjóð. Það kemur til dæmis skýrt fram í við­tali sem hún veitti VG, að hún telur vera 60 „no-go“ svæði í Svíþjóð, sem er hreint og klárt bull.“

[adspot]

„Ég er til í að hitta kollega minn í norska ráðu­neyt­inu eftir norsku kosn­ing­arnar. Í dag vil ég hins vegar ekki taka þátt í kosn­inga­bar­áttu hennar.“

Hin norska Listhaug sagði í við­tali við VG í morgun að hún ætl­aði að heim­sækja úthverfi Rinkeby nærri Stokk­hólmi og kanna hvað veldur því að „of margir inn­flytj­endur geti ekki aðlag­ast“.

„Það hafa orðið til sams­konar vanda­mál á 60 öðrum stöðum í Svíþjóð,“ segir Listhaug í við­tal­inu. „Þetta eru „no-go“ svæði þar sem orðið hafa til gríð­ar­leg vanda­mál vegna mislukk­aðrar aðlög­unar. Þar ráða glæpa­menn í stað stjórn­valda. Þetta eru alveg ólýð­andi aðstæður.“

Kosningabaráttan í algleymingi

Kosið verður til Stór­þings­ins í Noregi 11. sept­em­ber næst­kom­andi. Stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Hægri­flokk­ur­inn og norski Fram­fara­flokk­ur­inn, hafa starfað í minni­hluta­stjórn í Noregi síðan í kosn­ing­unum 2013 undir for­sæti Ernu Solberg.

Sylvi Listhaug er ráð­herra inn­flytj­enda­mála fyrir norska Fram­fara­flokk­inn. Stefna flokks­ins í inn­flytj­enda­málum hefur verið ein sú rót­tæk­asta í norsku stjórn­mála­lands­lagi á und­an­förnum árum. Flokk­ur­inn telur inn­flytj­enda­stefnu Noregs ekki nógu stranga. Í þessum efnum hefur stefnu flokks­ins verið líkt við stefnu Sví­þjóð­ar­demókrata og Fólks­flokks­ins í Danmörku.

„Ég nenni ekki að ræða rök­semda­færslu ann­ara. Innihald er mik­il­væg­ast. Þá meina ég að það er mik­il­vægt fyrir mig að vera hér og sjá og heyra hvernig þetta er,“ segir Listhaug í Rinkeby um frestun fund­ar­ins við Fritzon. „Kannski finnst henni það vera bull en ég hef rætt við lög­regl­una hér sem hefur útskýrt þau verk­efni sem bíða þeirra. Hér eru svæði sem lög­reglan kemst ekki á nema þung­vopnuð.“

„Við erum hér að læra svo við lendum ekki í sömu aðstæðum,“ útskýrir Listhaug.

Erna Solberg seg­ist ekki hafa áhyggjur af þess­ari upp­á­komu milli inn­flytj­enda­ráð­herrana. „Við skipu­leggjum ekki alltaf fundi þegar við förum í heim­sókn yfir landa­mærin. Ég held að þetta eyði­leggi ekki sam­bandið milli Noregs og Sví­þjóðar,“ segir Solberg.

Spurð hvað henni þykir um ummæli ráð­herr­ans um 60 „no-go“ svæði í Svíþjóð varar Solberg ráð­herr­ann við full­yrð­ingum. „Listhaug verður að passa að það sem hún segir sé í sam­ræmi við það sem stjórn­völd þar í landi segja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannavandi

Fréttir

Rík­is­stjórnin setur 250 millj­ónir í aðstoð við flótta­fólk

Fjórar stofn­anir munu ráð­stafa 250 millj­óna króna fram­lagi frá íslenska rík­inu til að styðja við bakið á flótta­fólki, einkum frá Sýrlandi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 250 millj­óna auka­fram­lag til mann­úð­ar­mála var sam­þykkt í fjár­auka­lögum í lok síð­asta árs. Ákveðið hefur verið að stærstur hluti fjár­magns­ins fari til Sam­ræm­ing­ar­skrif­stofu aðgerða Sam­ein­uðu þjóð­anna í mann­úð­ar­málum (OCHA) og Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár