280 Kjólar - Kjólagjörningur í níu mánuði

Thora Karls­dottir mynd­list­ar­maður útskrif­að­ist frá Evrópsku Lista­aka­dem­í­unni í Trier í Þýska­landi 2013. Thora var búsett erlendis í 20 ár, og bjó m.a. í Svíþjóð Lúx­em­borg og á Spáni. Hún flutti heim 2013 og stundar mynd­list á Lifandi Vinnu­stofu í Lista­gil­inu á Akureyri.

Kjóla­gjörn­ing­ur­inn hennar Thoru stóð yfir í 280 daga, 40 vikur, eða níu mán­uði. Eins­konar kjóla með­ganga, Hún byrj­aði að safna kjólum og var með þema mán­uði. Í upp­hafi voru ein­ungis 30-40 kjólar á slánni en bætt­ust við smátt og smátt. Kjól­arnir komu allir frá fólki sem gáfu þá í nafni list­ar­innar. Thora var með síð­una 280 kjólar á Facebook, þar gat fólk fylgst með og séð myndir af kjól dags­ins.

Hvers konar list­gjörn­ingur er 280 kjólar?

„List­gjörn­ing­ur­inn fjallar um list­ræna skuld­bind­ingu, þ.e. end­ur­tekn­ingu sem reynir á úthald og elju. Gjörn­ing­ur­inn stóð yfir frá mars til des­em­ber 2015. Að klæða sig í nýja kjól á hverjum morgni dag­lega og klæð­ast kjól til allra verka í 280 daga, 40 vikur, níu mán­uði er áskorun sem þarfn­ast úthalds og elju. Allt getur gerst, spenn­andi og lif­andi dag­leg skap­andi skuld­bind­ing. Kjól­arnir komu frá fólki sem gaf þá í nafni list­ar­innar í kjóla­gjörn­ing­inn. Björn Jónsson tók dag­lega ljós­myndir af lista­kon­unni í kjól. Hann átti stóran þátt, hafði áhrif og átti oft hug­myndir varð­andi stað­setn­ingu fyrir tökur og vinnslu mynd­anna. Í sam­ein­ingu gefa þau út bók um Kjóla­gjörn­ing­inn og núna stendur yfir söfnun á Karolina Fund.“

Út frá hverju ákvaðstu hvaða kjóll hent­aði hverjum degi?

„Stundum átti ég ekki úr miklu að velja, en kjól­arnir voru að ber­ast jafn og þétt alla níu mán­uð­ina. En oft var það veðrið sem spil­aði inní. Stundum átti ég bara síð­kjól og var svo föst í skafli af því að hann var líka þröngur að néðan. En það var oft erfitt að vera í kjól sem var úr gömlu efni sem gaf ekk­ert eftir og oft var verið að vinna að verkum sem þurfti að hreyfa sig mikið. En þetta er hluti af því að skuld­binda sig og halda út.“

Hverju viltu koma á fram­færi með bók­inni þinni?

„List­gjörn­ingur stendur yfir í ákveðin tíma og mis­jafnt hversu mikið er skjal­fest af við­kom­andi gjörn­ingi. Kjóla­gjörn­ing­ur­inn var skjal­festur með mynda­töku dag­lega í 280 dag ásamt því sem var að ger­ast. En mynd­irnar sjálfar segja sína sögu og sýna bæði stemn­ingu og árs­tíðir. Til­gang­ur­inn með bók­inni er fyrst og fremst sá, að verk­efnið lifi áfram. Það er kannski ást mín á bókum um menn­ingu og listir sem fær mig taka þetta verk­efni alla leið og enda með bók.“

Verk­efnið er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár