Trump kann að hafa komist undan skattgreiðslum í 18 ár

Vondri viku í kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump lauk ekki vel því fjöl­miðlar komust yfir skatta­skýrslu hans frá árinu 1995.

Donald Trump tapaði næstum því einum milljarði bandaríkjadala árið 1995 og gæti þess vegna hafa komist hjá því að borga skatta fram til ársins 2013.
Donald Trump tap­aði næstum því einum millj­arði banda­ríkja­dala árið 1995 og gæti þess vegna hafa kom­ist hjá því að borga skatta fram til árs­ins 2013. Mynd: EPA

Líklegt er talið að Donald Trump, auð­jöfur og for­seta­fram­bjóð­andi í Banda­ríkj­unum, hafi kom­ist undan því að borga alrík­is­skatt í Banda­ríkj­unum í allt að 18 ár frá árinu 1995 til 2013. Trump hefur ekki gert skatt­skýrslur sínar opin­berar, þvert á þá venju að for­seta­fram­bjóð­endur geri slíkt, og fer undan í flæm­ingi þegar hann er inntur eftir svörum.

Ástæða þess að Trump er tal­inn hafa kom­ist undan því að greiða skatt er að hann lýsti 916 millj­óna doll­ara tapi á skatt­skýrslum fyr­ir­tækja sinna árið 1995. Banda­ríska dag­blaðið The New York Times seg­ist hafa skatt­skýrslur for­seta­fram­bjóð­and­ans frá 1995 undir höndum. Skatta­sér­fræð­ingar sem rýnt hafa í gögnin segja að í banda­rískum lögum sé gert ráð fyrir að ekki þurfi að borga skatta eftir risatap á borð við þetta.

Frétta­skýrendur vest­an­hafs segja þessar fregnir The New York Times setja upp­hrópun­ar­merki við eina verstu viku nokk­urs for­seta­fram­bjóð­enda í manna minnum.

Alrík­is­skatta­reglur í Banda­ríkj­unum hygla auð­ugum sér­stak­lega í þessu til­liti og þess vegna getur verið að Trump hafi notað þetta risatap til þess að núlla út allar skatt­greiðslur fram til árs­ins 2013. Áætlað er að það séu um það bil 50 millj­ónir doll­arar á ári sem hann hafi kom­ist undan að greiða.

Trump hefur borið það fyrir sig að hann sæti nú skatt­rann­sókn og þess vegna geti hann ekki gefið út skatt­skýrslur sínar. Ítrekað hefur verið sýnt fram á að það sé rangt að skatt­rann­sóknir komi í veg fyrir að hann geti birt skýrsl­urnar. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur til að mynda lýst því opin­ber­lega að Trump hafi rangt fyrir sér.

Í yfir­lýs­ingu frá kosn­inga­stjórn Trump segir að hann sé „mjög fær kaup­sýslu­maður sem hafi fjár­sýslu­skyldur gagn­vart fyr­ir­tækjum sínum, fjöl­skyldu sinni og starfs­fólki“. Þess vegna borgi hann alls ekki meira í skatta en hann lög­lega þarf.

Samkvæmt FiveT­hir­tyEight hefur Donald Trump dreg­ist aft­urúr und­an­farna viku, eftir kapp­ræður þeirra Trump og Hillary Clinton á mánu­dags­kvöld. Nú eru taldar 67,3 pró­sent líkur á því að Clinton verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna en aðeins 32,7 pró­sent líkur á því að Trump taki við emb­ætt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár