Kjarninn ætlar að gefa út bók eftir Hrafn Jónsson

Vin­sæl­asti pistla­höf­undur Kjarnans frá upp­hafi hefur greint þjóð­fé­lags­um­ræð­una með beittum hætti allt þetta kjör­tíma­bil. Og nú ætlum við að koma honum á prent með því að safna fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Kjarninn miðlar ehf. til­kynnir um útgáfu á pistla­safni Hrafns Jóns­sonar „Útsýnið úr fíla­beins­turn­inum - Saga af kjör­tíma­bili“. Söfnun fyrir útgáf­unni, og sala á bók­inni, stendur nú yfir á Karolina Fund. Hægt er að leggja henni lið og eign­ast ein­tak hér. Náist sett mark­mið er stefnt að útgáfu bók­ar­innar í kringum kom­andi kosn­ingar.

Hrafn Jónsson (Krummi) eyddi gullár­unum sínum í að vera latur, feitur og óör­uggur. Eina skiptið sem hann hafði eign­ast pen­inga var eftir að hann varð fyrir stræt­is­vagni og fékk miska­bætur. Allt var þetta partur af hans púp­un­ar­ferli og þegar Hrafn hóf að skrifa pistla fyrir Kjarnann í byrjun árs 2014 braust hann loks­ins út og breiddi út væng­ina eins og háruga, föla og sífellt verr tennta fiðr­ildið sem hann er.

[adspot]

Pistl­arnir hafa notið gríð­ar­legra vin­sælda. Í þeim fjallar hann á hæðin hátt - en með beittum und­ir­tón - um þjóð­fé­lags­um­ræðu hvers tíma.

Í ljósi þess að óvissu­tímar eru fram undan í íslenskum stjórn­málum þá var það mat aðstand­enda verk­efn­is­ins að ekki verði hægt að treysta því að Inter­netið verði hér til fram­búðar.

Þess vegna þarf að koma pistlum Hrafns um þjóð­fé­lags­mál, sem eru nú á þriðja tug þús­und orð, á prent. Aðeins þannig tryggjum við að pistl­arnir endi í bundnu máli á Lands­bóka­safn­inu. Og Hrafni inn­göngu i Rit­höf­unda­sam­band Íslands nú þegar búið er að reka hann úr Tel Aviv norð­urs­ins, Plain Vanilla.

Kjarninn ætlar að koma slíku riti út í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga svo Íslend­ingar geti fengið heild­rænt yfir­lit yfir þá atburða­rás sem átt hefur sér stað á þessu kjör­tíma­bili, séð með augum Hrafns Jóns­sonar.

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, mun skrifa inn­gang að hverjum pistli til að setja þá í sam­hengi við þjóð­fé­lags­um­ræð­una hverju sinni og ef nægir pen­ingar safn­ast þá er stefnt að því að fá ein­hvern heims­frægan til að rita inn­gang hennar. Hrafn mun síðan sjálfur rita ódauð­leg loka­orð.

Allar frek­ari upp­lýs­ingar má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár