Karolina Fund: Tales from a poplar tree

Þjóðlaga- og jazz söng­konan Ösp Eldjárn hefur verið búsett í London síðan haustið 2011 en þangað hélt hún til að stunda nám í tón­list og útskrif­að­ist frá Institute of Contemporary Music Performance árið 2014. Síðan þá hefur hún verið iðin við að semja og flytja tón­list, bæði sem partur af jazz hljóm­sveit­inni Good as Gold, sem söng­kona í folk-raf sveit­inni Hrím, sem alt­rödd í kórnum London Contemporary voices og nú sem þjóð­laga­söng­kona og laga­smiður með frum­samið efni.

Á þessum fimm árum sem Ösp hefur verið búsett í London hefur hún kynnst og starfað með ótal tón­list­ar­fólki úr ýmsum áttum og hefur nú fengið með sér frá­bæran hóp til að aðstoða hana við gerð fyrstu sóló­plötu sinnar. Platan er tekin upp í Café Music Studios, af upp­töku­stjór­anum og raf­tón­list­ar­mann­inum Cherif Hashizume (sem er einnig með­limur í Hrím). Bróðir Aspar, Örn Eldjárn, sér um útsetn­ingar með henni og leikur á gítar. Aðrir sem spila á plöt­unni eru Helga Ragn­ars­dóttir, Sam Pegg, Marit Røkeberg, Anil Sebast­ian, Valeria Pozzo og Stefan Knapik. Platan mun koma út á vínyl og á asp­ar­við­ar­skífum úr garð­inum á Tjörn, en um er að ræða raf­rænt ein­tak, prentað á við. Kjarninn hitti Ösp og tók hana tali.

Hvað hefur drifið á daga þína undanfarið?

„Ég var að klára tón­list­ar­ver­tíð sum­ars­ins og er búin að vera að koma fram á þónokkrum tón­list­ar­há­tíðum, bæði með sóló verk­efnið mitt sem og með öðrum tón­list­ar­verk­efnum sem ég tek þátt í. Sem dæmi var ég að syngja með kórnum mínum, London Contemporary Voices á fest­vali í Frakk­landi, svo var ég á Cambridge folk festi­val með frum­samið efni ásamt Helgu, tón­list­ar­systur minni og sam­býl­ingi, og Maiken Sundby, norskri söng­konu og góðri vin­konu. Í byrjun sept­em­ber var ég svo að syngja ásamt félögum mínum í Hrím á hátíð í Norður Wales. Svo er ég bara á fullu að vinna að plöt­unni minni og kynna hana. Inn á milli kenni ég litlum börnum tón­list og hreyf­ingu og swinga svo á sunnu­dögum með jazz band­inu mínu, Good as Gold. Semsagt nóg að gera!“

Hvað er í bígerð hjá þér núna?

„Næst á dag­skrá er að fara aftur í stúd­íóið um næstu mán­aða­mót og klára plöt­una! Svo er að koma henni út og þá tekur við að kynna hana með tón­leika­haldi og þess­háttar. Ég stefni á að fara í smá tón­leika­ferða­lag um Bretland sem og meg­in­landið í byrjun næsta árs, og svo auð­vitað heima á Íslandi. Við í Hrím erum auk þess að vinna að smá­skífu og stefnum á að koma henni út ein­hvern tím­ann á næsta ári. Svo er ég reyndar að koma til lands­ins um helg­ina, en pabbi minn varð sex­tugur um dag­inn og er að halda upp á það á laug­ar­dag­inn. En hann veit ekki að ég er að koma.. svo ekki segja neinum!“

Hvernig tónlist verður að finna á nýju plötunni?

„Platan mun geyma 10 frum­samin lög og á ég einnig flesta text­ana en þó fæ ég að láni tvö ljóð eftir Pál Ólafsson og Davíð Stef­áns­son, sem og laga­texta eftir vin­konu mína, Lindu Guð­munds­dóttur. Við­fangs­efnið er nokkuð fjöl­breytt en þó er rauði þráð­ur­inn ein­hvers­konar sökn­uður, hvort sem það er heim­þrá eða for­tíð­ar­þrá. Svo leikur ástin auð­vitað stórt hlut­verk. Og tré! Sjálf heiti ég eftir fal­legu háu asp­ar­trjánum og finn fyrir sterkri teng­ingu við þau á sama tíma og ég finn stundum fyrir rót­leysi og útþrá. Þessi teng­ing mín við aspirnar kveikti þá hug­mynd að gefa lögin út á tré (raf­rænt ein­tak með nið­ur­hal­skóða), nánar til­tekið á aspar tré­skífur úr garð­inum mínum heima í Svarf­að­ar­dal. Fékk ég því for­eldra mína til að fara út í garð og saga þær asp­ar­greinar sem höfðu farið illa undan vetri og hefur þeim því nú verið gefið fram­halds­líf. Platan nefn­ist Tales from a poplar tree.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár