Íslensk lög um innflutning eggja- og mjólkurvara brjóta gegn EES-samningnum

Íslensk lög um inn­flutn­ing á vörum úr eggjum og mjólk frá öðrum EES-ríkjum eru ekki í sam­ræmi við EES-samn­ing­inn, sam­kvæmt Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA. ESA sendi frá sér rök­stutt álit um málið í dag og segir að inn­flutn­ings­tak­mark­anir geti valdið inn­flutn­ings­að­ilum erf­ið­leikum við að koma vörum sínum á markað.

ESA segir að íslensk lög­gjöf feli í sér inn­flutn­ings­tak­mark­anir á hráum eggjum og vörum úr þeim sem og óger­il­sneyddri mjólk og mjólk­ur­vörum. Inn­flytj­endur verða sam­kvæmt gild­andi lögum að sækja um leyfi og leggja fram marg­vís­leg gögn til Mat­væla­stofn­unar. ESA telur að þessar kröfur stang­ist á við til­skipun um eft­ir­lit með dýra­heil­brigði.

Vörur úr eggjum og mjólk sem við­skipti eru með innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins lúta nákvæmum reglum um heil­brigð­is­eft­ir­lit í fram­leiðslu­rík­inu. Eftirlit í við­töku­ríki er hins vegar tak­markað við stikkprufur. ESA segir að yfir­grips­mikið reglu­verk ESB sé sér­stak­lega hannað til að draga úr áhættu og minnka líkur á að sjúk­dóms­valdar ber­ist milli landa. Víðtækt kerfi var­úð­ar­ráð­staf­ana sé við lýði ef hætta skap­ist á útbreiðslu sjúk­dóms­far­ald­urs innan EES.

ESA telur að þegar kemur að inn­flutn­ings­tak­mörk­unum á mjólkur- og eggja­vörum séu uppi sömu rök­semdir og á inn­flutn­ingi á hráu kjöti. EFTA-dóm­stóll­inn hefur þegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að kröfur íslenska rík­is­ins þegar kemur að inn­flutn­ingi á hráu kjöti brjóti í bága við EES samn­ing­inn.

ESA rekur einnig samn­ings­brota­mál gegn Íslandi vegna inn­flutn­inga á hráu kjöti, hefur sent rök­stutt álit í því máli fyrir tæpum tveimur árum síðan og óskað eftir við­brögðum frá íslenskum stjórn­völdum eftir að EFTA-dóm­stóll­inn komst að sinni nið­ur­stöðu í fyrra. „Enn sem komið er hafa engar laga- eða reglu­breyt­ingar átt sér stað,“ segir ESA.

Rökstutt álit er annað skrefið í með­ferð samn­ings­brota­máls, og ef íslensk stjórn­völd bregð­ast ekki við innan tveggja mán­aða getur ESA vísað mál­inu til EFTA-dóm­stóls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár