Guðni Ágústsson vill að Sigmundur Davíð hætti sem formaður

Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og áhrifa­maður innan hans um ára­bil, vill að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son víki sem for­maður flokks­ins. Enginn maður sé stærri en flokk­ur­inn og að mik­il­vægt sé að fá frið um for­manns­emb­ætti Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann telur að Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður og for­sæt­is­ráð­herra, eigi að taka við. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir Guðni að þótt mönnum þyki vænt um Sigmund Davíð, sem hann kallar afreks­mann í póli­tík, þá vilji flokk­ur­inn geta lagt verk sín í dóm kjós­enda. Guðni telur ljóst að „þessi vondu mál sem hann hefur orðið fyrir muni yfir­skyggja alla kosn­inga­bar­áttu og skaða árangur flokks­ins í kosn­ingum.“ Þar á Guðni án efa við um Wintris-málið svo­kall­aða, þar sem opin­berað var að Sig­mundur Davíð og eig­in­kona hans ættu miklar eignir í aflands­fé­laga með heim­il­is­festi á Tortóla og að félagið væri kröfu­hafi í bú gömlu bank­anna.

Guðni vill að sem for­maður flokks­ins velj­ist maður sem geti talað við alla án þess að per­sónu­leg mál­efni þvælist fyrir. Sigurður Ingi hafi staðið sig vel og geti talað við alla. „Það eru tveir hjarta­kóngar í spilum Fram­sókn­ar­flokks­ins[...]Sig­mundur Davíð er afreks­maður í póli­tík. Með skulda­lækkun, Icesave og að end­ur­heimta fé fall­inna banka hefur hann sýnt það. En nú eiga Fram­sókn­ar­menn ekki að deila um þessa menn. Þeir verða að meta þetta eins og í fót­bolta. Á Eiður Smári að vera sá sem keyrir liðið áfram og skorar mörkin eða er annar lík­legur til þess að gera það betur í þetta sinn.“

Sigurður Ingi greindi frá því um helg­ina að hann ætl­aði ekki að sækj­ast eftir því að gegna emb­ætti vara­for­manns áfram á kom­andi flokks­þingi, sem fer fram í byrjun októ­ber, vegna sam­skipta­erf­ið­leika í for­yst­unni. Ljóst er að tvær fylk­ingar hafa mynd­ast innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Önnur vill losna við Sigmund Davíð sem for­mann og að Sigurður Ingi taki við. Hin reynir hvað sem hún getur að sjá til þess að Sig­mundur Davíð haldi stöðu sinni og leiði flokk­inn inn í kosn­ingar.

Lofaði Sigmund Davíð og Bjarna

Skoðun Guðna á Sigmundi Davíð sem for­manni hefur ber­sýni­lega breyst vegna Wintris-máls­ins. Fyrir ári síðan skrif­aði hann grein í Morg­un­blaðið þar sem hann sagði flokks­for­mann sinn og Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vera langt komna með að koma Íslandi í fremstu röð allra þjóða í Evr­ópu með aðgerðum sín­um. Hann hefði enga trú á öðru en að hinn almenni kjós­andi væri sam­þykkur þeirra verkum, fyndi breyt­ingu til batn­aðar í vesk­inu sínu og myndi sjá að sér og kjósa þá í næstu þing­kosn­ingum.

„Þeir höfn­uðu Ices­a­ve, þeir stóðu gegn aðild að ESB, þeir höfn­uðu evr­unni, þeir lækk­uðu skuldir heim­il­anna. Þeir lækk­uðu skatta, þeir björg­uðu heil­brigð­is­kerf­inu og hjól atvinnu­lífs­ins eru farin að snú­ast á ný. Og stærsta verk­efnið er komið á fulla ferð að frelsa og losa landið við gjald­eyr­is­höft­in, hirða pen­inga af og skatt­leggja „hrægamma­sjóð­ina,“ og lækka skuldir rík­is­sjóðs,“ sagði Guðni um þá Bjarna og Sig­mund Dav­íð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár