Guðni Ágústsson: Bjarni og Sigmundur Davíð við það að koma Íslandi í fremstu röð þjóða

Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir Bjarna Bene­dikts­son og Sigmund Davíð Gunn­laugs­son vera langt komna með að koma Íslandi í fremstu röð allra þjóða í Evrópu með aðgerðum sínum. Hann hafi enga trú á öðru en að hinn almenni kjós­andi sé sam­þykkur þeirra verkum og finni breyt­ingu til batn­aðar í vesk­inu sínu. "Þeir höfn­uðu Icesave, þeir stóðu gegn aðild að ESB, þeir höfn­uðu evr­unni, þeir lækk­uðu skuldir heim­il­anna. Þeir lækk­uðu skatta, þeir björg­uðu heil­brigð­is­kerf­inu og hjól atvinnu­lífs­ins eru farin að snú­ast á ný. Og stærsta verk­efnið er komið á fulla ferð að frelsa og losa landið við gjald­eyr­is­höftin, hirða pen­inga af og skatt­leggja "hrægamma­sjóð­ina," og lækka skuldir rík­is­sjóðs," segir Guðni um þá Bjarna og Sigmund Davíð.

Þetta kemur fram í grein sem Guðni skrifar í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann greinir stöðu mála í íslenskum stjórn­málum eftir eigin nefi.

Hæðist að róteringu Guðmundar Steingrímssonar


Í grein­inni hæð­ist Guðni að til­lögu Guð­mundar Stein­gríms­sonar, for­manns Bjartrar fram­tíðar, um að rótera flokks­for­yst­unni og segir hana við­bragð við því að fylgi flokks hans sé komið niður fyrir pilsner­styrk­leika. "Við þekkjum þó þá umræðu að karl­inn í brúnni eigi að víkja sé hann hættur að fiska, hvað þá róa. Við vitum líka að í áhöfn fiski­báts færi ekki vel ef klukk­stefnan yrði tekin upp því skip­stjór­inn er leið­togi og ekki öllum í áhöfn­inni fært að leysa hann af. Nákvæm­lega er þetta eins í stjórn­mála­flokki, enda for­maður jafnan val­inn á flokks­þingum af flokks­mönnum. En Guð­mundur leggur til að það verði hlaupið í skarðið og þegar for­mað­ur­inn nýjasti hefur stýrt flokknum stutta stund hlaupi hann í kringum þing­flokk­inn og berji á boss­ann á einum og segji "klukk, klukk, þú ert for­maður". Auðvitað vitum við öll að þetta er bara sagt út í loftið af for­manni í vand­ræðum."

Pólitískur skringileiki skýrir fylgi Pírata


Guðni víkur því næst að stjórn­ar­and­stöð­unni og segir að ef hann væri enn í póli­tík og í minni­hluta þá myndi hann hafa áhyggjur vegna þess að eng­inn þeirra flokka mælist nú með yfir tíu pró­sent fylgi. Þar skilur hann Pírata eftir utan mengin og segir að ástæða stöðu hinna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna vera þá að "ein­hver póli­tískur skringi­leiki gerir það að verkum að þriðji hver kjós­andi hótar að kjósa Pírata næst. Hvers vegna, það veit eng­inn."

Því næst tekur Guðni stöðu stjórn­ar­flokk­anna fyrir og segir stöðu þeirra vera afar góða. "Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að rísa eftir mestu dýfu sem hann hefur tekið í 86 ára sögu sinni. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður flokks­ins, kemur vel fyrir, hefur gengið í gegnum margt og reynt erf­ið­leika og árásir en eng­inn ógnar honum lengur, hann er rísandi stjórn­mála­maður, prúður og sann­gjarn. Sama er um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra að segja, hann tók við Fram­sókn­ar­flokknum í dauða­teygj­unum, klofnum og sundruðum en með stefnu­festu og sterkri sýn og nýju fólki vann hann stærsta kosn­inga­sigur flokks­ins í hans hund­rað ára sögu vorið 2013."

Telur að kjósendur muni sá að sér


Að mati Guðna eru þessir ungu stjórn­mála­menn, með sínum "gömlu flokkum", langt komnir með að koma Íslandi á ný í fremstu röð allra þjóða í Evrópu. "Þeir höfn­uðu Icesave, þeir stóðu gegn aðild að ESB, þeir höfn­uðu evr­unni, þeir lækk­uðu skuldir heim­il­anna. Þeir lækk­uðu skatta, þeir björg­uðu heil­brigð­is­kerf­inu og hjól atvinnu­lífs­ins eru farin að snú­ast á ný. Og stærsta verk­efnið er komið á fulla ferð að frelsa og losa landið við gjald­eyr­is­höftin, hirða pen­inga af og skatt­leggja "hrægamma­sjóð­ina," og lækka skuldir rík­is­sjóðs. Ég hef enga trú á öðru en hinn almenni kjós­andi sé sam­þykkur þessu öllu og finni breyt­ingu til batn­aðar á vesk­inu sínu."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár