Skin og skúrir í ferðaþjónustunni

Skoðun á góðum og slæmum sviðs­myndum í ferða­þjón­ust­unni leiðir í ljós að margir áhættu­þættir eru í grein­inni sem gefa þarf meiri gaum.

Það geta skipst á skin og skúrir í ferða­þjón­ust­unni eins og í öðrum geirum, jafn­vel þó lítið annað en gott útlit sé um þessar mundir. Við getum látið ferða­þjón­ust­una blómstra, en hún getur líka hrunið eins og spila­borg. Sú sviðs­mynd er raun­hæfur mögu­leiki.

Þetta má lesa úr úr ítar­legri vinnu KPMG um ferða­þjón­ust­una, þar sem fjallað er um stöðu mála út frá sviðs­myndum, en nið­ur­stöður þess­arar vinnu voru kynntar í gær.

Fjallað er um nokkra þætti, sem komu til umræðu í vinnu KPMG, í nýjasta hlað­varps­þætti Mark­aðsvarps­ins en þar er Einar Bárð­ar­son, hjá Reykja­vík Excursions, gestur.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, Iðnaðar- og við­skipta­ráð­herra opn­aði kynn­ing­ar­fund um málið og fór meðal ann­ars yfir áherslur ráðu­neyt­is­ins í tengslum við starf­semi Stjórn­stöðvar ferða­mála. Einnig tóku Halldór Hall­dórs­son for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Helga Árna­dóttir fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) ásamt Óskari Jós­efs­syni fram­kvæmda­stjóra Stjórn­stöðvar ferða­mála, einnig til máls. Fund­ar­stjóri var Grímur Sæmund­sen for­stjóri Bláa lóns­ins og for­maður SAF.

Áhættugreining

Á fund­inum voru kynntar tvær nýjar skýrslur um mál­efni ferða­þjón­ust­unnar. Annars vegar um „Hæfni og gæði í ferða­þjón­ustu“ sem Dr. Guðfinna S. Bjarna­dóttir kynnti og hins­vegar nið­ur­stöður sviðs­mynda­vinnu og áhættu­grein­ingar KPMG á mögu­legri fram­tíð ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi árið 2030.

Sævar Krist­ins­son ráð­gjafi frá KPMG fór yfir hlut­verk, til­gang og verk­lag við sviðs­mynda­gerð­ina og áhættu­grein­ing­una. Þær Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir, sviðs­stjóri menn­ingar- og ferða­mála­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og Kristín Linda Árna­dóttir, for­stjóri Umhverf­is­stofn­unar kynntu nið­ur­stöður sviðs­mynda­grein­ing­ar­innar og Gunnar Har­alds­son hag­fræð­ingur fór yfir nið­ur­stöður áhættu­grein­ing­ar­innar.

Viðhorfið getur skipt sköpum fyrir framhaldið

Eitt af því sem grein­ing KPMG leiddi í ljós, er að það er sér­stak­lega við­kvæmur áhættu­þáttur, þegar kemur að ferða­þjón­ustu hér á landi, að við­horf heima­manna sé gott.

Rann­sóknar sýna að ferða­menn eru sér­stak­lega næmir fyrir við­horfi heima­manna og þeirra sem eru að veita þjón­ustu. Í einni sviðs­mynd­inni, Ferða­menn – nei takk, er þetta sér­tak­lega dregið fram sem áhættu­þáttur.

Sviðs­mynd­irnar sem skoð­aðar voru sér­stak­lega, skipt­ust í þessar fjórar:

„Niceland“ –

— Innviðir sam­fé­lags­ins eru vel í stakk búnir til að taka á móti og standa undir aukn­ingu ferða­manna

„Ferða­menn – nei takk“

— Landið er vin­sæll áfanga­staður en hefur sprengt af sér veikar grunn­stoðir

„Laus her­bergi“

— Nýja­brumið farið af Íslandi, ferða­mönnum fer fækk­andi og afkasta­geta er umfram eft­ir­spurn

„Fram af bjarg­brún­inni“

— Orðspor Íslands sem áfanga­staðar fer versn­andi, inn­viðir eru að hruni komnir eftir mikla ásókn ferða­manna

Í grein­ing­unni voru ýmsir þættir skoð­aðir sem telj­ast til drif­krafta grein­ar­innar, og einni óvissu­þátta. Mik­il­væg­ustu drif­kraftar og óvissu­þættir ferða­þjón­ust­unnar, sam­kvæmt grein­ing­unni, eru:

— Sam­keppn­is­hæfni Íslands sem áfanga­staðar ferða­manna þ.e. hversu eft­ir­sókn­ar­vert Ísland er heim að sækja.

— Þolmörk lands og þjóðar, en þau eru mæli­kvarði á það hversu vel í stakk búið sam­fé­lagið og nátt­úran eru til að taka á móti ferða­mönnum. Þessum óvissu­þætti má þannig á vissan hátt líkja við afkasta­getu Íslands sem ferða­manna­staðar.

Hvað getur gerst í framtíðinni?

Grein­ingin dregur vel fram þann mikla vöxt sem ferða­þjón­ustan hefur gengið í gegnum að und­an­förnu. Árið 2010 voru 488 þús­und ferða­menn, sem heim­sóttu landið, en á þessu ári verða þeir 1,7 millj­ónir. Þó mikil upp­bygg­ing haf átt sér stað, ekki síst þegar kemur að gisti- og veit­inga­þjón­ustu, þá hefur þessi mikli vöxtur reynt á inn­viði víða. Þannig hefur mikil mann­mergð á vin­sælum stöðum skapað vanda­mál, til dæmis þegar kemur að því að vernda nátt­úr­una.

En einnig við að ná fram sem bestri rekstr­ar­fram­legð af ferða­þjón­ust­unni. Aðgangs­stýr­ing með gjald­töku, á fleiri stöðum, virð­ist þar aug­ljós leið, en sem kunn­ugt er hefur ekki tek­ist að stilla saman strengi milli hags­muna­að­ila í ferða­þjónst­unni þegar kemur að stefnu í þeim efnum.

Gengi krónunnar er áhættuþáttur

Eins og fram hefur komið í umfjöllun­Kjarn­ans þá er geng­is­þróun stór áhættu­þáttur þegar kemur að upp­gangi ferða­þjón­ust­unnar. Krónan hefur styrkst um meira en tíu pró­sent á einu ári, þegar með­al­talið gagn­vart evru og Banda­ríkja­dal er skoðað, og það hefur mikil áhrif á mörg fyr­ir­tæki. Í versta falli getur frek­ari styrk­ing krón­unnar leitt til þess að fyr­ir­tæki þurfa að draga saman seglin

Gjald­eyr­is­tekjur vegna komu erlendra ferða­manna til Íslands eru áætl­aðar 430 millj­arðar á þessu ári en tæp­lega 500 millj­arðar á því næsta, gangi spár um fjölgun ferða­manna eftir. Til sam­an­burðar eru gjald­eyr­is­tekjur vegna sjáv­ar­út­vegs á milli 200 og 300 millj­arðar á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár