Getur ferðaþjónustan lent í vandræðum? Já, hún getur gert það

Ferða­þjón­ustan hefur verið drif­kraft­ur­inn í upp­gangi í efna­hags­líf­inu und­an­farin ár. Hún getur lent í vand­ræðum, eins og aðrir atvinnu­geirar.

Frá árinu 2010 hefur staða efna­hags­mála á Íslandi batnað jafnt og þétt. Ein af meg­in­á­stæð­unum fyrir því er mik­ill og ör vöxtur í þjón­ustu við erlenda ferða­menn en þeim hefur fjölgað mikið á skömmum tíma. Reiknað er með því að fjöldi erlendra ferða­manna á þessu ári verði 1,7 millj­ónir en árið 2010 voru þeir 488 þús­und.

Flestar spár sem hafa birst til þessa, meðal ann­ars hjá grein­endum bank­anna þriggja, Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­anum, gera ráð fyrir áfram­hald­andi vexti á næstu árum. Á næsta ári er til að mynda gert ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekjur vegna ferða­þjón­ustu verði um 500 millj­arðar króna, sem er lang­sam­lega mest af öllum gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­geirum lands­ins.

En eins og í öllum geirum, þá getur staðan breyst til hins verra á skömmum tíma. Margir áhættu­þættir eru í ferða­þjón­ust­unni. Hvaða þættir eru það helst? Kjarninn rýndi í þrjú atriði sem gætu grafið undan ferða­þjón­ust­unni, sem nú er burð­ar­stólp­inn í kröft­ugu hag­vaxt­ar­skeiði hér á landi.

1. Gengi krón­unnar er lík­lega stærsti ein­staki áhættu­þátt­ur­inn þegar kemur að ferða­þjón­ust­unni á Íslandi. Í dag kostar Banda­ríkja­dalur 117 krónur en fyrir ári síðan var verðið um 136 krónur. Verðið á evr­unni er komið í 131 krónu en það var 150 krónur fyrir ári síðan. Mesta breyt­ingin hefur orðið á pund­inu en það er nú komið í 157 krónur, en það var tæp­lega 210 krónur fyrir ári. Þessar styrk­ing krón­unnar gagn­vart erlendum myntum hefur nei­kvæð áhrif á mörg fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu, sem verð­leggja sig í erlendum myntum en eru með stóran hluta kostn­aðar í krónum. Að und­an­förnu hefur þessi þróun því dregið úr fram­legð í rekstri ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja. Fari svo að gengi krón­unnar haldi áfram að styrkj­ast þá gæti það farið að hafa alvar­leg áhrif á fjöl­mörg fyr­ir­tæki, eins og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri benti á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í morgun.

2. Einn af þekktum áhættu­þáttum í ferða­þjón­ustu – sem jafn­framt er alveg ófyr­ir­sjá­an­legur – eru nátt­úru­ham­farir. Eins og við Íslend­ingar þekkjum þá geta þær komið eldsnöggt, t.d. eld­gos eða jarð­skjálftar. Ísland er áhættu­svæði hvað þetta varðar, og ferða­þjón­ustan byggir ekki síst á ein­stakri upp­lifun í íslenskri nátt­úru. Eins og eld­gosið í Eyfjalla­jökli minnti alveg sér­stak­lega á, vorið 2010, þá getur farið svo að eld­gos hafi alvar­leg áhrif á ferða­þjón­ustu, og í ljós þess hve tíð þau hafa verið á und­an­förnum árum, þá gætu þau vel haft áhrif á ferða­þjón­ust­una, einkum með áhrifum á sam­göngur í lofti og á landi. Mörg dæmi eru um að nátt­úru­ham­farir hafi mikil áhrif á ferða­þjón­ustu svæði og má meðal ann­ars nema eyj­una Madeira, úti fyrir Portúgal. Þar búa 280 þús­und manns, en árlega heim­sækja um 1,5 millj­óna manna eyj­una, og er ferða­þjón­ustan burð­ar­stólpi atvinnu­sköp­unar. Á þessu ári hafa skóg­ar­eldar gert ferða­þjón­ust­unni lífið leitt, og raunar valdið gíf­ur­lega miklu tjóni, ekki síst fyrir hót­el­rekstur. Það er kannski til of mik­ils mælst, að ferða­þjón­ustan geti reiknað með nátt­úru­ham­förum, en þetta er samt þáttur sem getur valdið miklu tjóni. Bloomberg gerði til að mynda jarð­skjálfta í Kötlu í gær að umtals­efni, og fjall­aði þar um mögu­lega hættu vegna Kötlu­goss.

3. Of hraður vöxtur getur valdið því, að gengi krón­unnar styrk­ist of hratt, og á því tapa allir. Á þetta minnt­ist Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í dag. Hann sagði það grafa undan ferða­þjón­ust­unni, að allir aðilar í grein­inni væru að vaxa hratt á sama tíma, þar sem það skap­aði mikið gjald­eyr­is­inn­streymi sem síðan væri að grafa undan gengi krón­unnar. Til fram­tíðar litið virð­ist því skyn­samur vöxtur – ekki of hraður – vera lífs­spurs­mál fyrir ferða­þjón­ust­una. En það versta er að það er eng­inn sem veit nákvæm­lega hvað telst verða skyn­samur vöxtur, og hvað óskyn­samur. Kannski ætti samt þessi hraða og mikla styrk­ing krón­unnar – sem seðla­bank­inn hefur þó haldið niðri með miklum gjald­eyr­is­kaupum – að vera vís­bend­ing um að hugs­an­lega sé vöxt­ur­inn nú þegar of mik­ill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár