Vaxandi markaður fyrir hágæðasúkkulaði

SÖLVA Chocolates sam­anstendur af fimm ein­stak­lingum, Láru Borg Lár­us­dóttur, Unni Svölu Vil­hjálms­dóttur, Jórunni Maríu Þor­steins­dóttur, Sveini Ólafi Lúð­víks­syni og Áshildi Frið­riks­dóttur, og eru þau öll nýút­skrifuð úr Verzlunarskóla Íslands. Kjarninn hitti Láru Borg og tók hana tali.

Hvaðan kemur hug­myndin að því að fram­leiða súkkulaði?

Hug­myndin um að gera súkkulaði kom upp í frum­kvöðla­á­fanga í Verzlunarskólanum í jan­úar á þessu ári. Það sem okkur fannst vanta á íslenska mark­að­inn var hágæða súkkulaði unnið beint frá kakó­baun­inni. Ekki er mikið um þetta hér­lendis en er þetta vax­andi mark­aður erlendis. Við ákváðum að við vildum gera súkkulaði sem myndi vekja athygli vegna gæða og einnig vegna útlits vör­unnar. Við leggjum mikla áherslu á hönnun vör­unnar, bæði á pakkn­ingum og á súkkulað­inu sjálfu.

Hvað kom til að þið ákváðuð að fara í Startup Reykja­vík og hvernig mót­aði það starfið ykkar?

Við sóttum um í Startup Reykja­vík í vor vegna þess að við höfðum heyrt mikið um starf­sem­ina og hvað hún hefði góð áhrif á sprota­fyr­ir­tæki. Við fengum við­tal í kjöl­farið á sigri okkar í keppni ungra frum­kvöðla, fyr­ir­tæki árs­ins 2016. Þegar við komumst svo inn vorum við him­in­lif­andi. En á þeim tíma­punkti gerðum við okkur ekki grein fyrir því hversu mikið Startup Reykja­vík myndi gera fyrir okkur. Við fengum að fara á alls kyns fyr­ir­lestra, hitta mentora og fá hjálp við hin ýmsu verk­efni og erf­ið­leika. Við höfum lært ótrú­lega mikið og komum frá þessu með ómet­an­lega reynslu og þekk­ingu sem við hefðum ann­ars ekki geta fengið ann­ars­staðar.

Hvaða nýj­ung er súkkulaðið ykkar að koma með á mark­að­inn?

Það sem okkar súkkulaði hefur fram á að færa er að það er 100% líf­rænt. Öll hrá­efni sem við notum eru vand­lega valin og eru laus við öll auka­efni. Þar að auki stundum við ein­ungis sið­ferð­is­leg við­skipti og til dæmis verslum við okkar kakó­baunir frá fyr­ir­tæki í Tanzaníu sem hjálpar til við sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu í sínu landi. Þeir borga sínum bændum 24% hærri laun en telst venju­legt til að þeir geti átt gott líf. Þeir vinna einnig með alls kyns sam­tökum sem byggja upp skóla, spít­ala og mun­að­ar­leys­ingja­hæli í Tanzaníu. Við viljum leggja mikla áherslu á mik­il­vægi þess að stunda ein­ungis sið­ferð­is­leg við­skipti.

Það sem er svo á döf­inni hjá okkur núna er að fá vél­arnar í nýja hús­næðið okkar í Askalind og hefja fram­leiðslu í lok sept­em­ber. Við verðum með fjórar bragð­teg­undir til að byrja með og eru þær mjólk­ursúkkulaði með salt­kara­mellu, mjólk­ursúkkulaði með lakk­ríssalti, dökkt súkkulaði með hind­berjum og hvítt súkkulaði með vanillu og núggati.

Verk­efnið er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár