Segir dómara í Geirfinnsmálinu hafa skapað sér refsiábyrgð

Jón Dan­í­els­son starf­aði lengi sem blaða­maður og skrif­aði m.a. tals­vert um Guð­mundar- og Geir­finns­málin í Helg­ar­póst­inn árið 1997, þegar Hæsti­réttur hafði til með­ferðar end­ur­upp­töku­beiðni Sævars Ciesielski vegna þess­ara mála. Það var á þessum tíma sem áhugi hans á þessum saka­málum kvikn­aði fyrir alvöru og til­urð bók­ar­innar Sá sem flýr undan dýri má þannig rekja aftur á síð­ustu öld. Skipuleg vinna við bók­ina hófst sum­arið 2011. Kjarninn hitti Jón og tók hann tali.

Flestir Íslend­ingar kann­ast við Guð­mundar- og Geir­finns­málin, en fæstir hafa skoðað þau niður í kjöl­inn. Hvað olli því að þú fórst að rann­saka þessi mál?

„Allra fyrst var það nag­andi efi, en síðan vax­andi grun­semdir, sem á end­anum urðu nán­ast að fullri vissu þegar ég fór að skoða máls­gögnin sjálf. Rétt eins og nán­ast allir aðrir Íslend­ingar var ég nokkuð sann­færður um sekt sak­born­ing­anna þegar dóm­arnir voru kveðnir upp. Mér fannst vissu­lega skrýtið að menn sem voru búnir að játa, skyldu allt í einu lýsa sig sak­lausa, þegar þeir komu fyrir dóm. En um 1980 náði þessi hugsun eig­in­lega aldrei lengra.

Á Helg­ar­póst­inum fór ég að skoða máls­gögnin og rak mig fljót­lega á ýmis atriði, sem ekki komu heim og saman við dómana. Það leyndi sér ekki að fjöl­margar vís­bend­ingar um sak­leysi, voru aldrei skoð­aðar, heldur bara látnar liggja eins og þær kæmu mál­inu ekki við. Harð­ræð­is­rann­sóknin frá 1979 vakti líka athygli mína. Ég held að hún sé arfa­vit­laus­asta plagg, sem ég hef lesið á ævinni.“

Á hvaða tíma­punkti fannst þér nauð­syn­legt að gera bók úr þessu efni?

„Sú til­finn­ing leit­aði á mig annað slagið. Mér gafst þó sjaldan veru­legur tími frá brauð­strit­inu, en sum­arið 2011 varð óvenju langt hlé milli verk­efna og þá hófst ég handa. Síðan hef ég varið flestum tóm­stundum í þessa vinnu, reyndar með sívax­andi þunga og síð­asta árið hef ég mest­an­part ein­beitt mér að þessu verki.“

Hverjar eru helstu nið­ur­stöður þínar eftir þessa vinnu?

„Nið­ur­stöð­urnar eru bæði fleiri og umfram allt óhugn­an­legri, en mig óraði fyrir. Þótt ég hefði strax ákveðnar hug­myndir um að sitt­hvað hefði farið alvar­lega úrskeiðis, hvarfl­aði í raun­inni ekki að mér að menn hefðu bein­línis brotið meg­in­reglur saka­mála­rétt­ar­fars og vís­vit­andi kveðið upp ranga dóma. En að verki loknu er erfitt að koma auga á aðrar skýr­ingar.

Slík til­vik reynd­ust ofan á allt annað vera fjölda­mörg. Ég fann vís­bend­ingar um beinar fals­anir, en einkum er áber­andi að öllum vís­bend­ingum, sem bentu til þess að sak­born­ingar væru í raun­inni sak­lausir, var bein­línis ýtt til hliðar. Slík hegðun er hrein­lega bönnuð við rann­sóknir saka­mála. Mönnum er skylt að rann­saka jafnt það sem bendir til sýknu og það sem bendir til sektar. Bókin er nán­ast troð­full af dæmum um slíka van­rækslu. Í lang­flestum til­vikum var þetta vís­vit­andi gert og í þeim til­gangi fá sak­born­ing­ana dæmda.

Alvar­leg­ast af öllu var senni­lega, að dóm­ar­arnir sjálfir skyldu vís­vit­andi van­rækja að athuga mögu­lega fjar­vist­ar­sönnun Sævars Ciesielski í Geir­finns­mál­inu, þegar hún kom fram 1977. Filma, sem þeim bar skylda til að skoða, er ekki lengur til hjá sjón­varp­inu, en eitt papp­írs­blað varð­veitt­ist og kom í leit­irn­arnar við vinnslu þess­arar bókar. Þetta eina papp­írs­blað sannar ótví­rætt að Sævar var að horfa á sjón­varpið þegar dóm­ar­arnir full­yrtu að hann hefði verið að berja Geirfinn Ein­ars­son með spýtu.

Alveg burt­séð frá sönn­un­inni sjálfri, sköp­uðu dóm­ar­arnir sjálfum sér refsi­á­byrgð með þess­ari van­rækslu og hefðu átt að fá að lág­marki tveggja ára dóm sam­kvæmt refsiramm­anum, sem reyndar nær upp í sextán ár.“

Hverju von­ast þú til að fá áorkað með þess­ari bók?

„Mér finnst ein­fald­lega kom­inn tími að gera þessi saka­mál upp í eitt skipti fyrir öll. Þar á ég reyndar ekki við manns­hvörfin, sem þau eru kennd við. Þau verða vænt­an­lega ekki upp­lýst úr þessu. En saka­málin tengd­ust þessum manns­hvörfum aldrei neitt. Hinn ein­faldi sann­leikur er sá, að í hvor­ugu til­vik­inu verður séð, að lög­reglan hafi haft nokk­urt til­efni til að hefja rann­sókn. Bæði saka­málin voru til­bún­ingur og heila­spuni frá upp­hafi til enda. Og mér finnst kom­inn tími til að rétt­ar­kerfið við­ur­kenni það. Um leið þarf allur almenn­ingur skýr­ingar á því hvernig þetta gat gerst.“

Hér er teng­ill á útgáfu­söfnun bók­ar­innar Sá sem flýr undan dýri á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár