Yfir 40 prósent fyrirtækja telja að það vanti fólk í vinnu

Vöxtur í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði gerir það að verkum að eft­ir­spurn eftir starfs­fólki eykst sífellt. Nú telur fjórða hvert fyr­ir­tæki á Íslandi að skortur sé á starfs­fólki hér­lendis. Ný störf eru að mestu mönnum með inn­fluttu vinnu­afli.

Griðarleg aukning í ferðaþjónustu hefur kallað á mikla fjölgun starfa í geiranum. Illa gengur að manna þau störf að fullu.
Grið­ar­leg aukn­ing í ferða­þjón­ustu hefur kallað á mikla fjölgun starfa í geir­anum. Illa gengur að manna þau störf að fullu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um 42 pró­sent fyr­ir­tækja á Íslandi telja að það sé skortur á starfs­fólki á Íslandi. Hlutfall þeirra hefur ekki verið jafn hátt síðan í lok árs 2007. Þetta kemur fram í sum­ar­könnun Gallup meðal 400 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins sem greint er frá í rit­inu Pen­inga­mál, sem Seðla­banki Íslands birti í dag.

Þar segir að fyr­ir­tæki lands­ins virð­ist eiga sífellt erf­ið­ara með að manna störf þrátt fyrir tölu­verðan inn­flutn­ing vinnu­afls til lands­ins. Nú telji rúm­lega fjórða hvert fyr­ir­tæki að það vanti fólk til vinnu og jókst hlut­fall þeirra sem töldu það stöð­una um 22 pró­sentu­stig á milli ára. Um 60 pró­sent fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­iðn­aði og um 40 pró­sent fyr­ir­tækja í flutn­ingum og ferða­þjón­ustu telja sig búa við skort á starfs­fólki, og er skort­ur­inn þar mestur. Önnur fyr­ir­tæki, t.d. í iðn­aði, sjáv­ar­út­vegi og verslun eru hins vegar einnig farin að finna veru­lega fyrir þessum skorti og fjölgar þeim mikið á milli kann­ana. Fyr­ir­tæki virð­ast mæta þess­ari stöðu með því að flytja inn vinnu­afl í auknum mæli og var hreinn flutn­ings­jöfn­uður jákvæður sme nam 1,3 pró­sentum af vinnu­afli á fyrri hluta árs­ins. Til sam­an­burðar var hann 0,3 pró­sent af vinnu­afli á sama tíma í fyrra.

Í Pen­inga­málum segir að nið­ur­stöður könn­unar Gallup bendi til þess að vinnu­afls­eft­ir­spurn muni aukast enn frekar á þessu ári. „Tæplega 40 pró­sent fleiri fyr­ir­tæki vildu frekar fjölga starfs­mönnum en fækka þeim á næstu mán­uðum. Gert er ráð fyrir að vinnu­afls­eft­ir­spurn verði áfram kröftug á næstu miss­erum og er gert ráð fyrir að heild­ar­vinnu­stundum fjölgi að með­al­tali um 2,5 pró­sent á ári á spá­tím­anum sem er svipuð fjölgun og í maí. Eins og í maí er gert ráð fyrir að atvinnu­leysi verði um 3,3 pró­sent í ár og hjaðni lít­il­lega til við­bótar á næsta ári en taki síðan smám saman að þok­ast upp í það sem talið er vera lang­tíma jafn­væg­isat­vinnu­leysi þegar líða tekur á spá­tím­ann.“

Erlendir flykkjast í íslensk láglaunastörf

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að erlendir rík­is­borg­arar séu nú yfir tíu pró­sent þeirra sem greiði skatta á Íslandi. Rúm­lega annar hver nýr skatt­greið­andi hér­lendis á síð­ustu árum hefur komið erlendis frá og á árinu 2015 einu saman voru 74,4 pró­sent allra nýrra skatt­greið­enda erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það þýðir að þrír af hverjum fjórum sem bætt­ist við skatt­grunn­skrá lands­ins í fyrra voru erlendir rík­is­borg­arar en einn af hverjum fjórum var íslenskur rík­is­borg­ari.

Kjarninn hefur einnig fjallað ítar­lega um brott- og aðflutn­ing íslenskra rík­is­borg­ara til lands­ins. Sam­­kvæmt gagna­grunni Hag­­stof­unn­ar hafa brott­­fluttir umfram aðflutta Íslend­inga aðeins verið mark­tækt fleiri í fimm skipti síðan árið 1961, en það var alltaf í kjöl­far kreppu­ára á Íslandi. Sú er hins vegar ekki raunin núna. Íslend­ingar eru að flytja annað þrátt fyrir góð­æri en í stað­inn eru að koma erlendir rík­is­borg­arar sem sækja í þau atvinnu­tæki­færi sem eru að skap­ast á Íslandi, aðal­lega tengd ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði. Í flestum til­fellum er um að ræða lág­launa­störf.

Í nýrri mann­fjölda­spá Hag­stofu Íslands fyrir árin 2016 til 2065 kemur fram að ekki verður nein breyt­ing á ef fram fer sem horf­ir. Þar seg­ir: „­Fjöldi aðfluttra verður meiri en brott­­fluttra á hverju ári, fyrst og fremst vegna erlendra inn­­flytj­enda. Íslenskir rík­­is­­borg­­arar sem flytja frá land­inu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.“ Hag­­stofan gerir ráð fyrir því að að með­­al­tali muni 850 fleiri íslenskir rík­­is­­borg­­arar flytja af landi brott á ári hverju en flytj­ist til bak­a.

Fjöldi aðfluttra umfram brott­­flutta verður hins vegar meiri áfram, en það er fyrst og fremst vegna erlendra inn­­flytj­enda sem sækja í atvinnu­tæki­færi á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár