Ljóð með raftónlist

Berglind Ósk er þrjá­tíu og eins árs tölv­un­ar­fræð­ingur en hana hefur dreymt um að vera rit­höf­undur frá unga aldri. Berglind hefur alltaf lesið mikið og hefur skrifað sjálf ljóð síðan hún var ung­lingur. Nú hefur hún sett af stað hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund fyrir útgáfu fyrstu ljóða­bókar hennar, Berorðað, sem hefur verið í mörg ár í vinnslu. Síðast liðið ár hefur Berglind unnið hörðum höndum að því að klára hand­ritið auk þess að semja við þau tón­list og flytja þá sam­suðu á ljóða­tón­leikum. Berglind fékk til liðs við sig Heiðrúnu Ólafs­dóttir skáld sem rit­stjóra og Bjarka Fannar Atlason graf­ískan hönnuð við umbrot og hönnun bók­ar­kápu. Bókin er tæp­lega 50 blað­síður og snertir á mörgum við­fangs­efnum eins og að vera ást­fangin, ein­hleyp, með lítið sjálfs­traust, ung móðir, og um vegan­isma, mínímal­isma og endar á ádeilu á íslenskt sam­fé­lag.

Hvernig koma ljóðin til þín?

„Ég skrifa oft ljóð til að vinna úr til­finn­ingum mínum þannig að þau koma oft þegar mér líður illa eða mér verður hugsað til ástands þar sem mér leið illa og finnst að það gæti gagn­ast öðrum að upp­lifa það með mér gegnum ljóðin. Einnig þegar ein­hver mál­efni liggja þungt á mér sem mér finnst skipta miklu máli fæ ég þessa þörf fyrir að tjá það með ljóða­skrifum. Svo sest ég líka stundum niður, í sófann eða við stofu­borðið, gagn­gert í þeim til­gangi að skrifa án þess að vera endi­lega búin að ákveða efni. Þá reyni ég að finna nokkur efni sem mér dettur í hug og byrja að skrifa. Stundum gengur það vel og ég held áfram með það ljóð, en stundum verður það kannski ekk­ert meira en ein­hver orð á blaði. Mér finnst lang erf­ið­ast að skrifa ham­ingju­söm ljóð, það þarf svo lítið til að þau verði klisju­kennd eða væmin.“

Hvernig finn­urðu að ljóðið sé til­búið?

„Þetta er mjög góð spurn­ing en erfitt að svara. Á mínum yngri árum bun­aði ég bara ljóði úr mér í einni atrennu og varð nokkuð sátt við það strax. En ég hef lært núna að maður þarf að öðl­ast smá fjar­lægð frá ljóð­inu áður en maður klárar það alveg. Fín­pússningin sjálf tekur miklu lengri tíma en að skrifa fyrsta upp­kastið. Ég er ótrú­lega ánægð að ég hafi ákveðið að fá rit­stjóra með mér því eftir það ferli urðu ljóðin mín svo ótrú­lega þétt og komu merk­ing­unni miklu betur til skila. Heiðrún fékk mig til að pæla í mein­ing­unni á bak við nán­ast hvert ein­asta orð. Bestu ljóðin nota sem fæst orð til að koma sem mestu frá sér. Svo er þetta oft spurn­ing um til­finn­ingu. Ef mér finnst eitt­hvað óþægi­legt við að deila ljóði með öðrum er það merki sem að ljóðið sé ekki til­búið.“

[adspot]

Hverju finnst þér breyta að vinna ljóðin með raf­tón­list?

„Það var svipað ferli og að vinna með rit­stjóra að því leyti að ég nálg­að­ist ljóðin frá annarri átt og fór að hugsa dýpra um merk­ing­una. Maður verður svo blindur á orð í ljóði sem maður hefur kannski skrifað fyrir mörgum árum og hefur lesið yfir milljón sinnum. Með því að semja tón­list við ljóðin fór ég að hugsa meira út í hvernig þau hljóma upp­hátt og komst t.d. að því að skipt­ingar á milli lína eða erinda voru kannski ekki í flæði við upp­lest­ur­inn eða að setn­ing var óþjál. Þótt tón­listin undir sé bara ein­föld, gefur það ljóð­unum alveg nýja vídd og dregur fram und­ir­liggj­andi til­finn­ingu ljóðs­ins. Mér finnst ótrú­lega gaman að heyra ljóð­skáld lesa upp sín ljóð því þegar það er gert vel verður ljóðið svo miklu áhrifa­rík­ara. Ég skil eig­in­lega ekki af hverju það eru ekki fleiri sem gera meira af því að lesa þau upp eða hafi tón­list undir. Mér langar líka að taka þetta svo lengra og gera sjón­ræna list líka við ljóðin, mér finnst eins og það sé loka púslið sem vantar.“

Er bóka­út­gáfa deyj­andi form?

„Með til­komu Inter­nets­ins hefur for­sendan fyrir listút­gáfu breyst. Það er miklu auð­veld­ara að nálg­ast list á staf­rænu formi og það krefst ekki eins mik­ils kostn­aðar. En ég held að bóka­út­gáfan sé alls ekki að deyja því það er allt öðru­vísi upp­lifun að fletta gegnum raun­veru­legt ein­tak af bók heldur en með les­bretti eða á tölvu­skjá. Allavega er ég hardcore bókanörd í þeim skiln­ingi. En mér finnst þá líka mik­il­vægt að bók­ar­ein­takið sjálft sé mjög fal­legt og eigu­legt. Aftur á móti finnst mér geisla­diska­út­gáfa deyj­andi form því geisla­spil­arar eru á und­an­haldi og geisla­disk­ur­inn sjálfur ekki gerður til þess að end­ast. Þess vegna verður bara hlekkur á tón­list­ina mína í bók­inni svo að fólk geti nálg­ast hana á net­inu. Einnig er ég með frekar rót­tækar hug­myndir í sam­bandi við höf­und­ar­rétt og finnst mér núver­andi fyr­ir­komu­lag langt á eftir sinni sam­tíð, vera letj­andi fyrir list­ina í heild sinni og skerða frelsi lista­fólks og neyt­enda. Mér finnst t.d. sjálf­sagt að geta deilt staf­rænum ein­tökum með vinum mínum alveg eins og raunein­tökum. Einnig skil ég ekki þessi til­búnu landa­mæri á net­inu sem höf­und­ar­réttur býr til. Þess vegna ætla ég að gefa Berorðað út með Creative Commons höf­und­ar­rétt­ar­leyfi sem gefur fólki leyfi til að nota ljóðin og tón­list­ina mína eins og það vill, á meðan það nefnir mig sem höf­und.“

Hér er hlekkur á söfn­un­ar­síðu Berg­lindar á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár