Sveitarfélögin tapa 15 milljörðum á úrræðum ríkisstjórnar

Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son er borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sveit­ar­fé­lög lands­ins gætu farið á mis við útsvar­tekjur sem nema 15 millj­örðum króna vegna sér­eign­ar­sparn­að­ar­leiðar rík­is­stjórnar Íslands, sem heim­ilar fólki að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn skatt- og útsvars­frjálst í nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána. Þrátt fyrir vil­yrði um að sveit­ar­fé­lögum lands­ins verði bætt þetta tekju­tap hefur ekki verið samið um neitt slíkt. Þetta kemur fram í minn­is­blaði um áhrif aðgerð­anna sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hefur unnið og var kynnt í borg­ar­ráði Reykja­víkur í morgun og Kjarninn hefur undir höndum.

Þar kemur fram að núgild­andi ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar í nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána, sem gildir frá miðju ári 2014 og út júní á næsta ári, kostar sveit­ar­fé­lög lands­ins sam­tals 4,8 millj­arða króna. Það er sá hluti aðgerð­anna sem kynntar voru sem hluti „Leið­rétt­ing­ar­innar“ fyrir rúmum tveimur árum síðan. Tekjutap sveit­ar­fé­lag­anna yrði mun meira ef nýt­ing á aðgerð­inni væri í takt við það sem lagt var upp með, en við kynn­ingu á henni kom fram að búist væri við að Íslend­ingar myndu nota 70 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði til að lækka skuldir sínar. Nú þegar rúm­lega 2/3 hluti af gild­is­tíma aðgerð­ar­innar er lið­inn er sam­an­lögð greiðsla sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán vegna aðgerð­ar­innar þó ein­ungis um 24 millj­arðar króna.

„Fyrsta fasteign· eykur tekjutap sveitarfélaga

Á mánu­dag kynnti rík­is­stjórnin við­bót­ar­úr­ræði þar sem fólk er gert kleift að nota sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­skuldir. Annað þeirra úrræða snýst um að lengja „Leið­rétt­ingar“-tíma­bilið sem allir sér­eign­ar­spar­endur geta nýtt sér fram á mitt ár 2019. Hitt snýst um að fyrstu fast­eigna­kaup­endur geti notað sér­eign­ar­sparnað skatt- og útsvars­frjálst í tíu ár til að borga niður lán, safna sér fyrir hús­næði eða nið­ur­greiða afborg­anir. Í minn­is­blaðið Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að fram­leng­ing úrræð­is­ins muni kosta sveit­ar­fé­lög lands­ins sam­tals 3,2 millj­arða króna í tap­aðar útsvars­tekjur og að úrræðið „Fyrsta fast­eign“ muni kosta 7,2 millj­arða króna yfir tíu ára tíma­bil. Samtals muni sveit­ar­fé­lög lands­ins því fara á mis við útsvars­tekjur upp á 15 millj­arða króna vegna sér­eign­ar­sparn­að­ar­að­gerða rík­is­stjórn­ar­innar.

Sveitarfélögin una ekki bótaleysi

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, fjallar um málið í stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar bendir hann á að tapið dreif­ist víða. „Hlut­falls­lega mest tap er í Kópavogi, Hafn­ar­firði og Mos­fellsbæ. Hlut­falls­lega mikið tap Grýtu­bakka­hrepps vekur reyndar sér­staka athygli. Sem dæmi má nefna að borgin verður af meira en 600 mkr króna útsvars­tekjum í fyrra vegna þessa. Ljóst er að sveit­ar­fé­lögin í land­inu munu ekki una því að þetta verði ekki bætt, líkt og lýst hefur verið yfir.“

Dagur á þar við yfir­lýs­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að útsvar­stap sveit­ar­fé­laga yrði bætt. Það hafi ekki gengið eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár