Endalaus GSM ekki endalaust lengur

Frá og með 1.sept­em­ber 2016 þurfa við­skipta­vinir 365 sem eru í áskrift­ar­leið­inni Endalaus GSM að greiða tvö þús­und krónur ef þeir nota meira en 30 GB á mán­uði. Þá hækka þeir þakið upp í 100 GB. Þegar leiðin var var kynnt í febr­úar síð­ast­lið­inn þá kom fram að áskrif­endur hennar myndu „fá ótak­mark­aðar mín­útur og SMS óháð því hvaða sím­fyr­ir­tæki mót­tak­andi sím­tals­ins er. Enda­laust gagna­magn fylgir áskrift­ar­leið­inni en fyrir þetta greiða not­endur 2.990 krónur á mán­uði.“ Þetta kemur fram á til­kynn­inga­síðu 365, þar sem verð­breyt­ingar á vörum og þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins eru birtar.

Á sama tíma mun verð í áskrift­ar­leið­inni Endalaus heima­sími hækka úr 1.990 krónum í 2.490 krónur.

365 hefur boðið upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti frá haustinu 2013. Á far­síma­mark­aði var fyr­ir­tækið með 3,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í lok síð­asta árs og við­skipta­vinir þess sam­tals 14.497 tals­ins, sam­kvæmt töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar. 365 GSM er á dreifi­kerfi Símans, sem þýðir að fyr­ir­tækið kaupir aðgang að því kerfi fyrir við­skipta­vini sína.

Á sama tíma og Enda­laust GSM var kynnt var greint frá því að netá­skrif­endur 365 myndu einnig fá ótak­markað nið­ur­hal. Með völdum til­boðs­pökkum, sem inni­halda einnig áskriftir að sjón­varps­stöðvum 365, býðst við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins nú að greiða eitt þús­und krónur á mán­uði ofan á áskrift­ar­gjald fyrir inter­netið. Við bæt­ist aðgangs­gjald upp á nokkur þús­und krónur.

365 missti mark­aðs­hlut­deild á inter­net­mark­aði á árinu 2015, þegar hlut­fall hennar fór úr 13 pró­sentum í 12,6 pró­sent. Við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins í inter­net­þjón­ustu fjölg­aði úr 15.551 í 15.665, eða um 114 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár