Nova orðið stærst á farsímamarkaði og gagnamagn fjórfaldaðist á tveimur árum

Síminn er ekki lengur með mesta mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði á Íslandi, en hann hefur hafst slíka frá upp­hafi far­síma­væð­ingar. 4G hefur leitt af sér gríð­ar­lega gagna­magns­notkun. 365 gengur hægt að fjölga við­skipta­vinum í fjar­skipta­rekstri sínum.

Nova er orðið það fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem er með mesta mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Alls eru 34 pró­sent allra áskrifta á far­síma­neti hjá Nova en 33,8 pró­sent hjá Símanum. Vodafone er í þriðja sæti með 28,1 pró­sent og 365, sem boðið hefur upp á fjar­skipta­þjón­ustu með síma og inter­neti frá haustinu 2013, er með 3,4 pró­sent hlut­deild.

Staðan á þessum mark­aði hefur breyst hratt á und­an­förnum árum. Um mitt ár 2008 var Síminn með 56,6 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði og Vodafone með 36,4 pró­sent. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tækj­anna tveggja var því 93 pró­sent. Nú er hún um 62 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn sem birt var á þriðju­dag.

Síminn er enn með lang­flesta við­skipta­vini í fastri áskrift, en þar er hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins 42,5 pró­sent og nærri þrír af hverjum fjórum við­skipta­vinum Símans eru í fastri áskrift. Vodafone er með 31,5 pró­sent af þeim mark­aði og Nova með 19 pró­sent. Þá er uppi­staðan af þeim við­skipta­vinum sem 365 er með í far­síma­þjón­ustu með fasta áskrift.

68 pró­sent við­skipta­vina Nova eru hins vegar með svo­kallað frelsi, eða fyr­ir­fram­greidda far­síma­þjón­ustu.

4G-byltingin breytti öllu

Fjar­skipta­mark­að­ur­inn hefur tekið miklum breyt­ingum á und­an­förnum árum og snýst nú um svo miklu meira en bara sím­töl. Aðal­á­herslan nú er á gagna­magn, sem sést vel á þeirri aukn­ingu sem orðið hefur á gagna­magni á far­síma­net­inu á und­an­förnum árum. Á árinu 2013 not­uðu Íslend­inga 2,7 millj­ónir gíga­bæta á far­síma­net­inu. Í fyrra not­uðu þeir 10,2 millj­ónir gíga­bæta, eða tæp­lega fjórum sinnum meira magn.

Ástæðan fyrir þess­ari miklu breyt­ingu er sú að far­síma­tíma­bil fjar­skipta­geirans er að líða undir lok og gagna­flutn­inga­tíma­bilið að taka við. Tíðni­heim­ildir fyrir 3G, ­fyrsta háhraða­kyn­slóð far­síma­nets­kerf­ið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­kerfi en far­síma­kerfi og gerð­i ­gagna­flutn­ing mögu­leg­an.

Næsti fasi stend­ur nú yfir, skrefið yfir í 4G-­kerf­ið. Skrefið sem verður tekið upp á við með henn­i er stærra en margir átta sig á. Hrað­inn á 4G-teng­ingu er tíu sinnum hrað­ari en í 3G og um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADS­L-teng­ing­ar.

4G-væð­ingin á Ísland­i hófst af alvöru á árinu 2014 þegar fjöldi 4G-korta í símum fimm­fald­að­ist.

Í fyrra urðu 4G-kort í fyrsta sinn fleiri en 3G-kort. Nú eru 43,3 pró­sent útgef­inna far­síma­korta 4G en 39,4 pró­sent þeirra 3G. Til sam­an­burðar má nefna að í árs­lok 2013 voru sex pró­sent Íslend­inga með 4G-kort í sím­anum sínum.

Viðskiptavinum 365 í interneti fjölgaði um 114

Nova er með lang­sterk­ustu stöð­una þegar kemur að notkun gagna­magns á far­síma­neti. Mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði er 64,6 pró­sent á meðan að Síminn er með 18,3 pró­sent og Vodafone með 12,8 pró­sent. Einungis 4,1 pró­sent af gagna­magns­notkun á far­síma­neti í fyrra var á meðal við­skipta­vina 365.

Þessi notkun segir þó ekki alla sög­una. Uppi­staðan af gagna­magns­notkun Íslend­inga á sér stað á fasta­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­neti heima hjá sér og á vinnu­stöðum frekar en að not­ast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­net­inu er Síminn með mjög sterka stöðu. Alls eru 48,8 pró­sent allra inter­netteng­inga á Íslandi hjá Símanum. Vodafone er með 29 pró­sent og eru þessir tveir aðilar með tölu­verða yfir­burði á mark­aðnum. Þannig hefur staðan hald­ist und­an­farin ár. 365 missti mark­aðs­hlut­deild á inter­net­mark­aði í fyrra þegar hlut­fall hennar fór úr 13 pró­sentum í 12,6 pró­sent. Við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins í inter­net­þjón­ustu fjölg­aði úr 15.551 í 15.665, eða um 114 tals­ins. Hringdu bætti hins vegar vel við sig á síð­asta ári og jók mark­aðs­hlut­deild sína úr 3,7 pró­sent í 5,4 pró­sent. Alls voru við­skipta­vinir Hringdu í inter­net­þjón­ustu 6.741 um síð­ustu ára­mót, eða 2.308 fleiri en þeir voru ári áður.

Nova hefur ekki selt inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi á und­an­förnum árum. Á því varð breyt­ing í síð­asta mán­uði þegar að fyr­ir­tækið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ustu. Því mun sam­keppnin þar aukast til muna á næst­unni.

Sex af hverjum tíu hjá Símanum

Í töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar er nú birt yfir­lit yfir heild­ar­fjölda á­skrif­enda með sjón­varp yfir IP-­net. Þ.e. hvernig „sjón­varps­box­in“ skipt­ast á milli­ þeirra aðila sem bjóða við­skipta­vinum sínum upp á að vera með sjón­varp í gegn­um ­netteng­ing­ar. Þeir aðilar eru tveir, Sím­inn og Voda­fone og þeir virð­ast hafa ­skipt mark­aðnum nokkuð bróð­ur­lega á milli sín á und­an­förnum árum. Sím­inn er með­ um 61 pró­sent mark­aðs­hlut­deild en Voda­fone um 39 pró­sent. Og þannig hef­ur ­staðan verið árum sam­an.

Þar skipt­ir ugg­laust miklu máli að ekki er hægt að tengj­ast sjón­varpi Sím­ans í gegn­um ­ljós­leið­ara­net, sem byggst hefur upp á und­an­förnum árum, heldur bara sjón­varpi Voda­fo­ne. Þess í stað býður Sím­inn upp á svo­kallað ljós­net, sem teng­ist inn í heim­ili í gegnum kop­ar­taug.

Tekjur vegna fjarskipta vaxa milli ára

Í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar er birt yfir­lit yfir heild­ar­tekjur af fjar­skipta­starf­sem­i. Tekjur af fjar­skipta­starf­semi voru sam­tals 54.834 millj­ónir króna í fyrra og juk­ust um rúman 2,5 millj­arða króna á milli ára. Þær voru tæp­lega sex millj­örðum krónum hærri en þær voru árið 2012. Mestar tekj­urnar koma vegna far­síma­rekstur (16,1 millj­arðar króna) en tekjur vegna gagna­flutn­ings og inter­net­þjón­ustu juk­ust úr 8,9 í 9,8 millj­arða króna. Þá skil­aði sjón­varps­þjón­usta 3,3 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár