Hættir Trump við allt saman á endanum?

Donald Trump átti vonda viku sem leið. Nú meta spálíkön mögu­leika hans á að verða for­seti aðeins um 18 pró­sent.

Donald Trump hefur komið sér í allskonar klandur undanfarna daga.
Donald Trump hefur komið sér í alls­konar klandur und­an­farna daga. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seta­fram­bjóð­enda repúblik­ana í Banda­ríkj­unum, átti slæma viku í vik­unni sem leið. Hann varð upp­vís af röð atvika sem komu honum illa. Honum tókst að kasta grát­andi barni á dyr á kosn­inga­fundi, réðst að for­eldrum banda­rísks her­manns sem féll í bar­daga og lét furðu­leg ummæli falla um átökin í Úkraínu sem voru aðeins til þess fallin að sýna van­þekk­ingu Trump á alþjóða­málum. Og vara­for­seta­efnið Mike Pence komst í klandur þegar ell­efu ára drengur spurði hann erfðra spurn­inga.

Trump reyndi svo að klóra í bakk­ann í lok viku og sam­þykkti loks að styðja við Paul Ryan, for­seta banda­ríska þings­ins og einn æðsta mann innan Repúblikana­flokks­ins. Áður hafði hann sagst ekki geta stutt við Ryan og John McCain, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­anda flokks­ins. Hér hafa opin­berir atburðir aðeins verið taldir til. Bak við tjöldin virð­ist spila­borgin vera að hrynja í kringum for­seta­fram­bjóð­and­ann einnig.

Kosn­inga­spálík­önin eru farin að sýna flan Trumps svart á hvítu: Hillary Clinton, fram­bjóð­andi demókrata, er mun lík­legri til að standa uppi sem sig­ur­veg­ari en Donald Trump þegar hér er komið við sögu og enn rúm­lega þrír mán­uðir til kosn­inga. Staðan er raun­veru­lega orðin þannig í spá­ritum fyrir kosn­ing­arnar vest­an­hafs að ef Donald Trump væri til upp­boðs í kaup­höll­inni á Wall Street væri öllum hlut­höfum ráð­lagt að „selja, selja, selja!“.

Á vefnum FiveT­hir­tyEight.com má finna kosn­inga­spá Nate Silver. Hún er ekki ósvipuð því kosn­inga­spálík­ani sem Kjarninn birtir hér á landi, enda er kosn­inga­spá Silver fyr­ir­mynd kosn­inga­spár Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Þegar þetta er skrifað eru 81,5 pró­sent líkur á að Hillary Clinton verði for­seti Banda­ríkj­anna eftir kosn­ing­arnar í byrjun nóv­em­ber. Líkurnar sem kosn­inga­spáin gefur Donald Trump eru 18,4 pró­sent. Það skal áréttað að hér eru taldar til lík­urnar á því hver standi uppi sem sig­ur­veg­ari en ekki hversu mikið fylgi hver fram­bjóð­andi mælist með.

Þetta þykir nokkuð mik­ill munur enda hefur hann orðið til á mjög skömmum tíma. Við mán­aða­mótin var mun­ur­inn á Clinton og Trump sára lít­ill: Taldar voru 50,1 pró­sent líkur á að Clinton yrði for­seti og 49,9 pró­sent líkur á að Trump hreppti emb­ættið. Á réttri viku hefur staðan breyst ævin­týra­lega.

Þessi hraða þróun hefur orðið til þess að frétta­skýrendur vest­an­hafs hafa velt upp þeim mögu­leika að Donald Trump hætti á end­anum við allt saman. Donald Trump muni sjá sæng sína upp reidda og draga sig í hlé vegna þess að það muni aðeins kosta hann pen­inga að halda áfram án nokk­urs ávinn­ings.

Æðstu herrar í Repúblikana­flokks­ins eru jafn­vel byrj­aðir að velta fyrir sér mögu­leik­unum ef svo fer að Trump hætti við. Slíkt væri óhugs­andi í venju­legri kosn­inga­bar­áttu en nú eru for­víg­is­menn orðnir pirraðir á óút­reikn­an­legri hegðun fram­bjóð­and­ans.

Í veð­bönkum er farið að sjá merki þess að Repúblikanar muni eiga erfitt upp­dráttar með Trump í for­sæt­inu. Á vef The New York Times er rýnt í veð­bank­ana og þeir sagðir með áreið­an­leg­ustu krist­alskúlum í þessum efnum því „þegar pen­ingar eru í húfi muni fólk yfir­leitt gefa ósvikið svar við spurn­ing­unum sem lagðar eru fyrir“. Hjá Betfair er repúblikönum gefnar 25,8 pró­sent líkur á því að kom­ast yfir for­seta­emb­ættið. Donald Trump er hins vegar gefnar 24,1 pró­sent líkur á að verða for­seti. Hér er hróp­andi ósam­ræmi í töl­unum.

Donald Trump er eins og allir vita ólík­inda­tól. Hefð­bundnir repúblikanar hafa reynt allt til að hindra leið hans. Þeir mok­uðu pen­ingum í kosn­inga­bar­áttu Jeb Bush í for­vali flokks­ins, réð­ust í aug­lýs­inga­her­ferð þar sem þeir sögðu hann ekki vera raun­veru­legan íhalds­mann og þeir bjuggu til hashtagg á sam­fé­lags­miðlum. Ekkert hefur virkað. En nú eygja þeir mögu­leika enn á ný.

Hug­myndin er auð­vitað lang­sótt og, í allri hrein­skilni, ólík­legt að spilin rað­ist þannig á hendur íhalds­samra repúblik­ana. En sé mögu­leik­inn skoð­aður gaum­gæfi­lega þarf að athuga ýmis­legt áður: Nokkuð í lík­ingu við þetta hefur aldrei skeð áður, Trump myndi með því að hætta við­ur­kenna ósigur og sé litið til fylgiskann­anna þá virð­ist Trump ekki vera svo mörgum pró­sentu­stigum á eftir Clinton í kapp­hlaup­inu.

Það má einnig ímynda sér ástæður fyrir því að Trump vilji gef­ast upp. Hann hefur aldrei áður verið eins mikið undir smá­sjá fjöl­miðla. Hann gæti hugsað sér að þetta væri ekki þess virði ef hann er að fara að tapa á annað borð og kasta sér af lest­inni. Slík hefur hann auð­vitað gert áður; Fréttir af gjald­þrotum fyr­ir­tækja hans eru þekktar.

Hann gæti einnig talið sér trú um að nú væri hans verk­efni lokið. Hann, besti við­skipta­maður í heimi, væri búinn að kynna sig í bestu kosn­inga­her­ferð í sögu Banda­ríkj­anna og nú væri komið að öðrum að taka við. Svo gæti hann auð­vitað spunnið sögu um að hann hafi verið svik­inn af óvinum sínum í flokknum.

Ef Trump ákveður að hætta er hins vegar næsta víst að Hillary Clinton verði kjör­inn for­seti. Í reglum Repúblikana­flokks­ins segir að ef fram­bjóð­andi sem lands­þing hefur valið hættir við fram­boðið þá sé það kjör­manna úr öllum ríkjum að kjósa nýjan fram­bjóð­anda. Slíkt hljómar auð­velt í fram­kvæmd en ringul­reiðin sem mundi skap­ast fyrir utan þennan fund kjör­mann­anna yrði eflaust óyf­ir­stíg­an­leg. Hver ætti að taka þetta verk­efni að sér? Paul Ryan mun eflaust ekki láta sér detta það í hug. Mike Pence, vara­for­seta­efnið, verður að öllum lík­indum sjálf­gef­inn kostur.

Það er mik­il­vægt að árétta að Trump hefur ekki gefið neitt upp um það hvort hann ætli að hætta við fram­boðið. Hann hugsar eflaust enn að hann geti unnið. En það má víst ekki úti­loka neitt þegar Donald Trump er ann­ars vegar. Það er ekki eins og hann hafi verið að gera hlut­ina eftir bók­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár