Karolina Fund: Iceland Writers Retreat Alumni Award

Rit­list­ar­búð­irnar „The Iceland Writers Retreat“ er röð menn­ing­ar­legra ferða og rit­list­ar­nám­skeiða undir for­ystu róm­aðra höf­unda hvaðanæva úr heim­inum, segir Eliza Reid for­seta­frú um hugð­ar­efnið sitt. „Hóp­fjár­mögn­un­ar­verk­efn­inu á Karolina Fund er ætlað til að gera okkur kleift að veita ein­stak­lingi, á grund­velli þarfa og verð­leika, tæki­færi til fyrir sækja ráð­stefn­una í Reykja­vík í apríl 2017.“

Út á hvað gengur The Iceland Writers Retreat?

Ráð­stefnan er árlegur við­burður sem sam­anstendur af ritsmiðjum, menn­ing­ar­ferðum og les­efni sem ætlað er til að kynna gesti fyrir hinum ríka bók­mennta­arfi Íslend­inga. Gest­irnir koma alls­staðar að úr heim­inum og sækja m.a. fimm 90 mín­útna ritsmiðjur með að hámarki 15 þátt­tak­endum, fara í bók­mennta­göngu­ferðir, mæta í ýmsar mót­tökur og máls­verði, fara í heils­dags­ferð upp í sveit undir for­ystu íslensks rit­höf­undar og eyða kvöld­stund á bar þar sem verður boðið upp á tón­list og upp­lestur íslenskra lista­manna.

[adspot]

Hverju eru þið að safna fyrir?

Við erum að safna fyrir því að geta boðið þátt­tak­endum að sækja ráð­stefn­una án end­ur­gjalds. Þau verð­laun verða veitt á grund­velli verð­leika og fjár­hags­legrar stöðu. Árið 2016 gátum við fengið konu frá Suður-Afríku og aðra frá Los Angeles til að sækja ráð­stefn­una. Hér má lesa um eina reynslu af ráð­stefn­unni. Einnig má finna fleiri sögur á heima­síðu okkar.

Ég get einnig minnst á – svona almennt – að við munum halda upp­lestur með mik­il­virkum höf­undum, sem verður frítt inn á og opinn öllum. Árið 2016 höldum við fleiri opna við­burði og von­umst til að geta bætt enn frekar í árið 2017. Við von­umst eftir að fá nokkra heima­menn til að vinna með okkur að þessum opnu við­burðum í sjálf­boða­starfi og fá í stað­inn að taka þátt í allri ráð­stefn­unni. Svo ef les­andi hefur áhuga á að ger­ast sjálf­boða­liði þá má hann endi­lega hafa sam­band. Sú sem sér um sjálf­boða­starfið heitir Lisa Shannon og hægt að senda henni með því að smella hér.

Hvaða tæki­færi sérðu í starf­semi sem þess­ari?

Allir okkar þátt­tak­endur tala um hversu mik­inn inn­blástur þau fengu og hversu hvetj­andi áhrif það hafði að vera á Íslandi með fólki í svip­uðum sporum. Aftur á móti er kostn­að­ar­samt að halda við­burði sem þessa og margir rit­höf­undar, ef ekki flestir, hafa ekki mikið auka­lega milli hand­anna sem myndi gera þeim kleift að taka þátt í við­burðum sem þessum. Við erum stöðugt að reyna að halda niðri kostn­aði og opna við­burð­ina fyrir eins marga og mögu­legt er. Að hafa þessi verð­laun er ein af þeim leiðum. Andri Snær Magnason, sem tal­aði á ráð­stefn­unni árið 2015, sagði að hún væri „mik­ill hval­reki fyrir íslenska bók­menn­ingu“ og að ráð­stefna sem þessi hjálp­aði til við að byggja upp traust tengsl milli þjóð­fé­laga. Gott dæmi um það er þegar Gerður Kristný, sem tal­aði einnig á ráð­stefn­unni 2015, fékk í kjöl­farið boð um að mæta á bók­mennta­há­tíð á Möltu. En ein af þátt­tak­endum Iceland Writers Retreat var skipu­leggj­andi þeirrar hátíðar.

Á okkar eigin hóg­væra hátt, von­umst við til að auka þekk­ingu íslenskra bók­mennta úti í heimi, þar sem þær eiga skilið víð­feðma við­ur­kenn­ingu.

Verk­efnið er að finna á vef Karolina fund, eða með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár