Verðtryggingin ekki afnumin af sitjandi ríkisstjórn

Bjarni Bene­dikts­son segir að verð­trygg­ingin verði ekki afnumin af sitj­andi rík­is­stjórn. Frumvarp sem á að draga úr vægi verð­trygg­ingar er í und­ir­bún­ingi.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór

Frumvarp sem lagt verður fyrir Alþingi á að draga úr vægi verð­trygg­ingar í íslensku efna­hags­lífi. Þetta var haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Verð­trygg­ing verður ekki afnumin af þeirri rík­is­stjórn sem situr nú. Bjarni seg­ist aldrei hafa ætlað að fara í „ein­falt afnám verð­trygg­ingar“ eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði á dög­unum að væri ein for­senda þess að kosið yrði í haust.

Frumvarp um breyt­ingar á hús­næðis- og lána­málum verður lagt fyrir Alþingi „í tengslum við“ það þegar þing kemur saman á ný seinni­part­inn í ágúst, að sögn Bjarna. Ekki hafi verið ákveðið hvenær frum­varp­inu verði deilt á Alþingi. Í þessu frum­varpi er ætl­unin að minnka vægi verð­trygg­ingar til þess að auð­velda fólki að greiða niður höf­uð­stól hús­næð­is­lána og fjár­magna ný lán.

„Aðgerðir í hús­næð­is­málum og lána­málum sem tengj­ast verð­trygg­ingu eru mál sem við höfum verið að skoða,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra í við­tali á tröppum Stjórn­ar­ráðs­ins eftir rík­is­stjórn­ar­fund í morg­unn. Var það fyrsti rík­is­stjórn­ar­fund­ur­inn sem hald­inn hefur verið í mánuð.

„Það er ekki hægt að segja að við séum að fara í ein­falt afnám verð­trygg­ingar. Það get ég ekki sagt. Ég hef aldrei talað fyrir því að á íslandi verði hægt, með einu penna­striki, að afnema verð­trygg­ingu,“ sagði Bjarni.

Greint var frá því í jan­úar að unnið hafi verið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár.

Í útvarps­við­tali á dög­unum sagði Sig­mundur Davíð að þegar hann hafi sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra hafi verið búið að und­ir­búa kynn­ingu á afnámi verð­trygg­ing­ar­innar. Kynna hefði átt „mjög flott plan“ í Hörpu í sept­em­ber á þessu ári. Hann segir að nú sé kom­inn upp sú staða að ekk­ert standi í vegi fyrir því að „klára þetta verð­trygg­ing­ar­mál“.

„Fyrri part árs 2014 gerði rík­is­stjórnin sam­þykkt um með hvaða hætti yrði unnið að afnámi verð­trygg­ing­ar...Fjár­mála­ráðu­neytið átti þar að klára ákveðin verk­efni, það dróst nú langt fram yfir þann tíma sem rík­is­stjórnin hafði sam­þykkt, en það voru rök fyrir því. Þau rök voru að það væri eðli­legt að setja þetta í sam­hengi við aðra stóra hluti sem verið væri að vinna að, eins og hafta­mál og hús­næð­is­mál,“ sagði Sig­mundur Dav­íð.

Hann sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn ekki hafa verið sam­mála um verð­trygg­ing­ar­málin og tók undir það sem Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður fram­sókn­ar, sagði um síð­ustu helgi, að til greina komi að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn leggi fram frum­varp um afnám verð­trygg­ing­ar­innar fram hjá Sjálf­stæð­is­flokknum ef „þetta gangi ekki nógu hratt hjá rík­is­stjórn­inn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár