Sigmundur Davíð vill þjóðaratkvæðagreiðslu um verðtryggingu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist sjá fyrir sér að hægt sé að setja verð­trygg­ingu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Sú atkvæða­greiða yrði að minnsta kosti ráð­gef­andi. Þetta kom fram í

þætt­inum Eyjunni

, sem sýndur er á

Stöð 2

og er stýrt af Birni Inga Hrafns­syni.

Þar ræddi for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur og sagð­ist hlynntur því að þjóðin fengi oftar að segja skoðun sína í slíkum. „Tökum dæmi af stóru og umdeildu máli eins og verð­trygg­ing­unni. Þar hafa menn tek­ist á árum saman og ekki náð að leiða það til lykta í rök­ræðu. Rík­is­stjórnin er með ákveðin áform í því efni sem hún vinnur að. Við finnum fyrir mót­þróa á ýmsum stöðum og höldum áfram að reyna að ýta þessu áfram og breyta og bæta fjár­mála­kerfið. [...] Þetta er mál sem maður sæi fyrir sér að væri hægt að setja í að minnsta kosti ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þannig að stjórn­völd hefðu þá þjóð­ina á bak­við sig í því að fylgja þessu eftir."Sig­mundur Davíð sagð­ist sann­færður um að hann fengi stuðn­ing þjóð­ar­innar við afstöðu sína gagn­vart verð­trygg­ingu, en hann hefur ítrekað talað fyrir afnámi hennar.

Átti að mynda ríkisstjórn um afnám verðtryggingar

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ræddi mikið um afnám verð­trygg­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í pistli fyrir kosn­ing­arnar, sem nefnd­ist Fram­sókn­ar­stjórn eða verð­trygg­ing­ar­stjórn, sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði rík­is­stjórn mynduð um skulda­leið­rétt­ingu, afnám verð­trygg­ingar og heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi, eða rík­is­stjórn þeirra sem væru gegn þessum málum.

Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var þessi stefna einnig tíunduð. Þar sagði að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum. Undir þeim lið sem fjall­aði um þá aðgerð sagði m.a.: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána". Slíkt þak hefur ekki verið sett það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var þess vegna fjallað nokkuð mikið um verð­trygg­ingu. Þar kom meðal ann­ars fram að leið­rétta ætti verð­tryggð lán sem hefðu orðið fyrir verð­bólgu­skoti og að sam­hliða þeirri skulda­leið­rétt­ingu ætti að „breyta sem flestum verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð“. Ekkert var hins vegar skjal­fest þar um afnám verð­trygg­ingar.

For­sæt­is­ráðu­neytið skip­aði þó starfs­hóp til að und­ir­búa afnám verð­trygg­ingar skömmu eftir að rík­is­stjórnin tók til starfa. Hann komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2014 að það ætti ekki að afnema verð­trygg­ingu.

Bjarni segir að verðtrygging verði alls ekki afnumin

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur sagt opin­ber­lega að það standi alls ekki til að afnema verð­trygg­ingu. Þó hefur verið unnið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár. Það frum­varp hefur ekki verið á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Stjórn­ar­and­staðan kall­aði ítrekað eftir því á haust­þing­inu að Sig­mundur Davíð myndi ræða afnám verð­trygg­ingar við hana á Alþingi. Við því vildi for­sæt­is­ráð­herra ekki verða. Hann lítur svo á að afnám verð­trygg­ing­ar­innar sé á borði Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár