Ríkisstjórnin ætlar ekki að afnema verðtryggingu

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að ekki standi til að afnema verð­trygg­ingu. Þess í stað skoði rík­is­stjórnin að lengja lág­marks­tíma verð­tryggra lána í tíu ár og stytta hámarks­tíma þeirra úr 40 árum í 25 ár. Unnið er að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og mögu­legt er að það verði lagt fram á haust­þingi. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Alls eru verð­tryggð hús­næð­is­lán Íslend­inga um 1.200 millj­arðar króna. Veitt hús­næð­is­lán eru því að langstærstu leyti verð­tryggð, sem tryggir lægri afborg­anir. Und­an­farin miss­eri, sam­hliða lágri verð­bólgu, hefur orðið aukn­ing í töku verð­tryggðra lána. Hjá Lands­bank­anum voru til að mynda 65 pró­sent allra nýrra íbúð­ar­lána sem bank­inn veitti í fyrra verð­tryggð.

Lofuðu afnámi verðtryggingar


Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2013 kom skýrt fram að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum. Undir þeim lið sagði: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Skipaður verði starfs­hópur sér­fræð­inga til að und­ir­búa breyt­ingar á stjórn efna­hags­mála sam­hliða afnámi verð­trygg­ing­ar­innar, meðal ann­ars til að tryggja hags­muni lán­þega gagn­vart of miklum sveiflum á vaxta­stigi óverð­tryggðra lána. Starfs­hóp­ur­inn skili nið­ur­stöðum fyrir árs­lok 2013.“

[caption id="attachment_25651" align="alignnone" width="804"] Í stefnu­skrá Fram­sóknar fyrir síð­ustu kosn­ingar var talað mjög skýrt um að afnema ætti verð­trygg­ingu.[/caption]

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var fjallað nokkuð mikið um verð­trygg­ingu. Þar kom meðal ann­ars fram að leið­rétta ætti verð­tryggð lán sem hefðu orðið fyrir verð­bólgu­skoti og að sam­hliða þeirri skulda­leið­rétt­ingu ætti að „breyta sem flestum verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð“.

Starf­hópur um afnám verð­trygg­ingu skil­aði af sér í fyrra og komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki ætti að afnema verð­trygg­ingu.

Vill auka vægi óverðtryggðra lána


Bjarni Bene­dikts­son talar í takt við þá nið­ur­stöðu í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir hann að ekki verði lagt upp með að afnema verð­trygg­ingar heldur að auka vægi óverð­tryggðra lána. „Við höfum verið að ræða ákveðna hluti, eins og til dæmis hvort rétt væri að lengja lág­marks­tíma verð­tryggðra lána, en þau geta í dag verið að lág­marki í fimm ár. Það hafa komið fram hug­myndir í þessum hópi um að fara með það upp í tíu ár, þannig að það verði ekki veitt skamm­tíma­lán, það er að segja lán til allt að tíu ára, sem eru verð­tryggð. Þetta er eitt atriðið.

Annað var að taka til skoð­unar hvort við ættum að þrengja að 40 ára verð­tryggðum jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár. Það getur gert ákveðnum hópum erf­ið­ara fyrir að stand­ast greiðslu­mat og fá lán og það þarf að gera sér vel grein fyrir því og tíma­setja slíkar aðgerðir vel miðað við stöð­una á hús­næð­is­mark­aðnum, en það er svona hitt atriðið sem við höfum verið að skoða."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár