Forsætisráðherra mun ekki ræða verðtrygginguna við Alþingi

Dag­skrár­til­laga um að fá sér­staka umræðu um afnám verð­trygg­ingar var felld á Alþingi rétt í þessu með 32 atkvæðum gegn 24. Óskað hafði verið eftir því að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra myndi taka þátt í slíkri umræðu.

Kjarninn greindi frá því í gær að Sig­mundur Davíð ætli ekki að ræða við þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar um afnám verð­trygg­ing­ar­innar, eins og þeir hafa ítrekað óskað eftir. Þetta kom fram í máli Einars K. Guð­finns­sonar, for­seta Alþingis, í störfum þings­ins í gær. Samkvæmt Einari höfðu þær upp­lýs­ingar borist frá Sigmundi Davíð að hann líti svo á að afnám verð­trygg­ing­ar­innar sé á borði Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Sig­mundur Davíð mætti hins vegar í við­tal við morg­un­þátt­inn í Bítið á Bylgj­unni í morgun þar sem hann sagð­ist vera til­bú­inn að ræða verð­trygg­ingu við hvern sem er hvenær sem er. En í sér­stakri umræðu um málið væri það ráð­herr­ann sem er yfir mála­flokknum sem sitja ætti fyrir svörum. Það er Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. For­sæt­is­ráð­herra sagð­ist einnig finna fyrir sterkum öflum í sam­fé­lag­inu sem ekki vilja sleppa tökum á verð­trygg­ing­unni. Þeirra sé meðal ann­ars að gæta innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[adspot]

Afnám verðtryggingar var kosningamál í síðustu kosningum

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa und­an­farið minnst mjög reglu­lega á það í störfum þings­ins og undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta að Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, óskaði eftir því í febr­úar á síð­asta þingi að for­sæt­is­ráð­herra ræddi við þingið um afnám verð­trygg­ing­ar­innar, sem var eitt stærsta kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum. Hann varð ekki við því á síð­asta þingi og beiðnin um sér­staka umræðu var því end­ur­nýjuð þegar þing kom saman að nýju í haust.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ræddi mikið um afnám verð­trygg­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í pistli fyrir kosn­ing­arnar, sem nefnd­istFram­sókn­ar­stjórn eða verð­trygg­ing­ar­stjórn, sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði rík­is­stjórn mynduð um skulda­leið­rétt­ingu, afnám verð­trygg­ingar og heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi, eða rík­is­stjórn þeirra sem væru gegn þessum málum. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur hins vegar sagt að það standi alls ekki til að afnema verð­trygg­ingu. Þó væri unnið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og mögu­legt er að það verði lagt fram á haust­þingi. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár. Það frum­varp er ekki á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir kom­andi vetur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár