Sigmundur Davíð: Átti að kynna afnám verðtryggingar í september

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að búið hafi verið að und­ir­búa kynn­ingu á afnámi verð­trygg­ingar. Kynna hefði átt „mjög flott plan“ í Hörpu í sept­em­ber. Þetta kom fram í við­tali við Sigmund Davíð í Bítinu á Bylgj­unni í morgun.

„Fyrri part árs 2014 gerði rík­is­stjórnin sam­þykkt um með hvaða hætti yrði unnið að afnámi verð­trygg­ingar...Fjár­mála­ráðu­neytið átti þar að klára ákveðin verk­efni, það dróst nú langt fram yfir þann tíma sem rík­is­stjórnin hafði sam­þykkt, en það voru rök fyrir því. Þau rök voru að það væri eðli­legt að setja þetta í sam­hengi við aðra stóra hluti sem verið væri að vinna að, eins og hafta­mál og hús­næð­is­mál,“ sagði Sig­mundur Davíð.

„Nú er þessi staða komin upp að það sér til lands í öllum þessum for­sendu­málum þannig að það er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að klára þetta verð­trygg­ing­ar­mál. Við vorum búin að leggja drög að því að halda mikla kynn­ingu í Hörpu, í sept­em­ber þar sem við myndum kynna mjög flott plan í þessu verð­trygg­ing­ar­máli. Svo veit ég ekki hvernig það mál hefur þró­ast, ég hef auð­vitað reynt að fylgj­ast með því en hef ekki verið alveg nógu hrif­inn af fram­vind­unni þar eftir að ég steig út úr þessu um tíma. En þetta er mál sem rík­is­stjórnin verður að klára því það er búið að búa til for­send­urnar fyrir þessu.“

Sig­mundur Davíð var ekki spurður að því í hverju þetta plan hafi átt að fel­ast. Hann sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn ekki hafa verið sam­mála um verð­trygg­ing­ar­málin og tók undir það sem Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður fram­sóknar, sagði um síð­ustu helgi, að til greina komi að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn leggi fram frum­varp um afnám verð­trygg­ing­ar­innar fram­hjá Sjálf­stæð­is­flokknum ef „þetta gangi ekki nógu hratt hjá rík­is­stjórn­inni.“

Sig­mundur Davíð fór um víðan völl í við­tal­inu í morgun. Hann sagði meðal ann­ars að honum sé „alveg sama hvenær kosið er þannig séð, svo fram­ar­lega sem rík­is­stjórnin er búin að klára að standa við sín lof­orð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár