Endurheimtur á ólöglegri ríkisaðstoð viðvarandi vandamál

Íslensk stjórn­völd vissu að þau hefðu gerst brot­leg með íviln­un­ar­samn­ingum við fimm fyr­ir­tæki en sinntu því ekki að end­ur­heimta aðstoð­ina. Eft­ir­lits­stofnun EFTA hefur áhyggjur af stöðu mála á Íslandi.

End­ur­heimtur á ólög­mætri rík­is­að­stoð eru og hafa verið vanda­mál á Íslandi. Þetta segir Gjermund Mathiesen, yfir­maður sam­keppn­is­mála hjá ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, í sam­tali við Kjarnann. ESA hefur áhyggjur af stöðu mála í þessum mála­flokki hér á landi.

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrir helgi var Ísland dæmt fyrir EFTA dóm­stólnum í síð­ustu viku fyrir að end­ur­heimta ekki ólög­mæta rík­is­að­stoð í tengslum við íviln­un­ar­samn­inga við fimm fyr­ir­tæki, Becromal, Verne, Íslenska kís­il­fé­lagið, Thorsil og GMR end­ur­vinnsl una.

ESA hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu fyrir tveimur árum að samn­ing­arnir við þessi fyr­ir­tæki fælu allir í sér rík­is­að­stoð sem gengi gegn EES-samn­ingnum og stjórn­völdum á Íslandi var fyr­ir­skipað að stöðva allar frek­ari greiðslur rík­is­að­stoðar og sjá til þess að öll aðstoðin sem hafði verið veitt fram að því yrði end­ur­greidd innan fjög­urra mán­aða. Íslensk stjórn­völd áttu einnig að til­kynna ESA hver heild­ar­fjár­hæðin af þess­ari rík­is­að­stoð væri og hvernig ætti að end­ur­heimta pen­ing­ana.

Íslensk stjórn­völd upp­fylltu ekk­ert af þessum skil­yrðum og því var ákveðið að fara með málið fyrir dóm. Dómurinn stað­festi nið­ur­stöðu ESA og brot Íslands og íslenska ríkið þarf því að greiða allan máls­kostnað.

Atvinnu­vega­ráðu­neytið gerði lítið úr dóm­inum í frétta­til­kynn­ingu sem það sendi frá sér um málið fyrir helgi. Þar kemur aðeins fram að EFTA dóm­stóll­inn hafi átalið drátt á end­ur­heimt og sagt að íslensk stjórn­völd hafi unnið að lausn máls­ins und­an­farna mán­uði í sam­ráði við umrædd fyr­ir­tæki. Stefnt sé að því að ljúka mál­unum á næstu vikum.

Mathiesen segir við Kjarnann að end­ur­heimtur hafi verið vanda­mál á Íslandi og að verið sé að vinna að lausn þessa vanda­máls í sam­starfi við íslensk stjórn­völd. Eft­ir­litssstofn­unin hafi hins vegar áhyggjur af því að ekki hafi verið brugð­ist fyrr við mál­inu. Samkvæmt því sem kemur fram í dómi EFTA dóm­stóls­ins gerðu íslensk stjórn­völd ekki athuga­semdir við ákvörðun ESA og vissu því að þau yrðu að hlíta þeirri ákvörðun. Engu að síður hafi ekki verið aðhafst við að end­ur­heimta aðstoð­ina á réttum tíma, og að stjórn­völd hafi ekki lagt fram neinar sann­anir fyrir því fyrir dómi að samn­ing­arnir hafi verið ógildir eða að greiðslum til fyr­ir­tækj­anna hafi verið hætt. Þá hafi Ísland ekki sýnt fram á nákvæmar upp­hæðir sem ætti að end­ur­heimta né heldur hvernig stæði til að standa að end­ur­heimt­unum.

Íslensk stjórn­völd héldu því fram fyrir dómi að upp­hæð­irnar sem um ræðir séu mjög litlar. Mathiesen segir að upp­hæð­irnar hafi vissu­lega ekki verið mjög háar, en það veki einmitt upp áhyggjur af því hvað myndi ger­ast í stærri málum. „Myndi þá taka ennþá lengri tíma að end­ur­heimta rík­is­að­stoð­ina? Það er það sem við höfum miklar áhyggjur af.“

Mathiesen segir að ESA leggi áherslu á að ráð­ist verði í kerf­is­breyt­ingar á Íslandi til þess að breyta þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EFTA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár