Karolina Fund: Safnað fyrir jógasal

Magda­lena og Serafim eru bæði menntuð hjá NATHA yogacenter í Danmörku, en skól­inn er með­limur í Atman International Federation og yoga and Meditation.

Árið 2007 stofn­uðu þau NATHA yogacenter Reykja­vík og hefur skól­inn starfað óslitið síðan. Einka­hluta­fé­lag með sama nafni var svo form­lega stofnað sum­arið 2015.

Magda­lena og Serafim hófu bæði nám við skól­ann í Danmörku árið 1992, en þekktu þá ekki hvort annað. Í skól­anum kynnt­ust þau og tóku fljót­lega upp sam­band sem er byggt á lífs­gildum yoga. Eftir um það bil fjög­urra ára nám og ástundun hófu þau að kenna við skól­ann í Kaup­manna­höfn og hafa kennt yoga og Tantra síðan.

Í upp­hafi árs 2016, flutti NATHA yogacenter í Reykja­vík inn í nýtt hús­næði, sem einn nem­and­inn gaf skól­anum. Síðan hefur farið fram end­ur­bygg­ing og lag­fær­ing á hús­næð­inu og enn er mikið verk óunnið. Þess vegna stendur skól­inn nú fyrir hóp­fjár­öflun á Karolina Fund til að fjár­magna upp­bygg­ingu á stóra yoga­salnum þar sem fyr­ir­hugað er að aðal­kennsla NATHA muni fara fram í.

Nýja hús­næði NATHA yogacenter, sem er stað­sett á Smiðju­vegi 4B, gefur skól­anum mögu­leika á að kenna stærri hópum og fleiri hópum á sama tíma, sem hefur ekki verið hægt áður. Rýmið veitir nem­endum líka tæki­færi til að starf­rækja hug­leiðslu hópa, karma yoga hópa, leik­listar hópa, dans hópa og fleira, til að efla skiln­ing á þeim grunn­hug­myndum sem yoga fjallar um. Allt þetta styður við það mark­mið NATHA, að verða mið­stöð kennslu og iðk­unar yoga til per­sónu­þroska á Íslandi. Kjarninn hitti Magda­lenu og Serafim og tók þau tali.

Hvað er yoga?

Serafim:

„Það eru til margar mis­mun­andi gerðir yoga en það sem við á vest­ur­löndum venju­lega skiljum sem yoga er í raun Hatha yoga. Í Hatha yoga notum við lík­ama okkar, sem við setjum „í stöður“. Þessar stöður ( asana) vekja með okkur ákveðna orku sem við upp­lifun sem hug­ar­á­stand og til­finn­ingar, Þó að stöð­urnar bæti lík­am­lega heilsu, þá er mark­miðið hug­ar­á­standið og orkan sem við vekjum.

Patanjalis Yoga Sutra segir að „yoga eyðir óró­leika hug­ans“ sem þýðir að hinn sífelldi flaumur hugs­ana hverfur og þegar hugur okkar fer að hljóðna förum við að sjá, að okkar innri heimur er eins­konar garður, þar sem við ræktum per­sónu­leika okkar. Á hverjum degi gróð­ur­setjum við nýja eig­in­leika með hegðun okkar og við­brögðum og styrkjum aðra eig­in­leika sem fyrir eru, það verður aug­ljóst að hegðun okkar frá degi til dags mótar per­sónu­ein­kennin og gerir okkur að þeirri mann­eskju sem við erum, til góðs eða ills. Þessi skiln­ingur hvetur okkur til að vanda okkur við að móta þá per­sónu sem við viljum vera. Við skiljum að ekk­ert er mögu­legt nema þegar við erum vak­andi og með­vituð frá augna­bliki til augna­bliks. Að ein­ungis þegar við erum sjálfs­með­vituð, getum við breytt út af van­anum og gert eitt­hvað annað en það sem við höfum alltaf gert. Fleiri og fleiri eru að vakna til með­vit­undar um að við getum sjálf verið höf­undar lífs okkar og að við þurfum ekki að vera eins og sprelli­gosi sem spriklar í hvert sinn sem umhverfið eða sam­ferð­ar­menn togar í spott­ann (eða ýtir á hnapp­inn okkar).“

Magda­lena:

„Við iðkun yoga vaknar með okkur innri kyrrð, sjálfs­ör­yggi og ósér­plægni sem ekk­ert jafn­ast á við. Yoga eyðir stressi og kvíða, það eykur sjálfs­traust okkar, veitir okkur inn­sæi og samúð, það vekur með­vit­und okkar og sýnir okkur, í gegnum eigin innri upp­götvun, hvernig við getum hagað lífi okkar þannig að við verðum okkur sjálfum og öðrum að sem mestu gagni.“

Hafið þið stundað jóga lengi og hver er gald­ur­inn á bak­við gott yoga?

Magda­lena:

„Við höfum bæði stundað yoga í yfir 24 ár og kennt yoga í 20 ár. Fyrir okkur er yoga­iðkun orðin að hluta af því að vera til og gefur okkur enda­lausa mögu­leika á að bæta líðan okkar og hug­ar­á­stand, Því yoga­iðk­andi reynir með­vitað að hafa áhrif á hug­ar­á­stand sitt en lætur ekki umhverfið ráðskast með sig.

Það eru til svo margir yoga­skólar á vest­ur­löndum að það er auð­velt að vill­ast. Ég myndi segja að gott yoga þurfi að vera blanda af þekk­ingu og iðkun. Þekking kemur aldrei í stað iðk­unar, en iðkun án þekk­ingar verður gjarnan kraft­laus, því fólk iðkar í blindni án þess í raun að vita hvað það er að gera. Það þarf að vanda til iðk­un­ar­innar og hafa ein­beit­ingu til að hún verði áhrifa­mikil.“

Serafim:

„Yoga er í dag gjarnan þekkt sem eins konar leik­fimi og ef það er leik­fimi sem maður vill, þá eru margir yoga­skólar sem upp­fylla þarfir manns. En ef við viljum nálg­ast yoga á þann hátt sem höf­undar þess vildu, þá krefst það dýpri afstöðu, bæði af þeim sem það stunda og kenna.

Hjá okkur er hver yoga­staða sam­sett, fyrst er und­ir­bún­ingur, staðan sjálf með ein­beit­ingu (sem er útskýrð í tímunum) eftir það bein­ist ein­beit­ingin að áhrifum stöð­unnar. Semsagt þrír þættir, sem allir miða að því að efla áhrif stöð­unnar. Ef ein­beit­ing­una vantar, þá vantar meg­in­kraft stöð­unnar.“

Hvernig sjáið þið fyrir ykkur fram­tíð­ina í stóra jóga­salnum?

Magda­lena:

„Salurinn sem við erum að byggja gefur mögu­leika á að halda fyr­ir­lestra, bæði með inn­a­búð­ar­fólki og eða með áhuga­verðum fyr­ir­lesurum utan úr hinum stóra heimi. Salurinn mun hjálpa okkur að stækka hópana sem við erum að kenna og síð­ast en ekki síst, gerir sal­ur­inn okkur kleift kenna fleiri hópum í einu. Þannig getur sam­fé­lag yoga iðk­enda vaxið og hjálpað enn fleirum á leið sinni til auk­innar ham­ingju og per­sónu­þroska.“

Verk­efnið má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár