Þorsteinn ætlar í fyrsta sætið í Reykjavík

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætlar að gefa kost á sér til að leiða list­ann í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir næstu Alþing­is­kosn­ingar. Þor­steinn sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem hann segir að hann hygg­ist, á tvö­földu kjör­dæm­is­þingi sem haldið verði í ágúst í Reykja­vík, gefa kost á sér í fyrsta sæti.

„Ákvörðun mín er tekin vegna hvatn­ingar sem ég hef fengið frá Fram­sókn­ar­mönnum í Reykja­vík á fram­boði mínu þar. Einnig hefur brott­hvarf tveggja reyndra þing­manna úr kjör­dæm­inu áhrif á ákvörðum mína en brýnt er að fylla það skarð sem þeir láta eftir. Ég mun senda kjör­stjórn flokks­ins í Reykja­vík til­kynn­ingu um fram­boð mitt innan nokk­urra daga,“ segir Þor­steinn í til­kynn­ing­unni.

Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, eru þing­menn Fram­sókn­ar­flokks í Reykja­vík norður og þau ætla bæði að hætta fyrir næstu kosn­ingar. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, sem er í Reykja­vík suður, ætlar líka að hætta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár