Donald Trump segir Hillary Clinton vera lygara og bera ábyrgð á ISIS

Donald Trump mun hljóta útnefn­ingu repúblik­ana sem for­seta­efni á lands­þingi flokks­ins sem hófst í gær. Öfl á lands­þing­inu vilja velta Trump úr sessi.

Donald Trump og Melania Trump eftir að hún hafði lokið við að flytja ræðuna sem svipar svo mjög til ræðu Michelle Obama frá 2008.
Donald Trump og Melania Trump eftir að hún hafði lokið við að flytja ræð­una sem svipar svo mjög til ræðu Michelle Obama frá 2008. Mynd: EPA

Donald Trump gekk óvænt á svið á lands­þingi Repúblikana­flokks­ins í Banda­ríkj­unum sem hófst í Cleveland í Ohio-ríki í gær. Trump verður, ef hand­rit lands­þings­ins heldur, form­lega val­inn sem for­seta­efni repúblik­ana fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber.

Fyrst birt­ist aðeins skugga­mynd af Trump og sviðs­myndin var böðuð í ljós­bláu ljósi. Queen-lag­inu We are the champions var þru­mað í hátal­ara­kerf­inu. Svo steig Trump fáein skref fram að púlt­inu þar sem hann ávarp­aði lands­þings­full­trú­ana sem fögn­uðu honum ákaft. Ræðan var stutt. „Við ætlum að vinna. Við ætlum að vinna svo stórt. Takk fyrir allir,“ sagði Trump áður en hann kynnti eig­in­konu sína, Melaniu Trump á svið.

Melania Trump flutti svo ræðu af lít­illi inn­lifun um gildin sem hún og mað­ur­inn hennar standa fyrir. Ræðan var ótrú­lega lík ræðu Michelle Obama, eig­in­konu Baracks Obama, sem hún flutti á lands­þingi demókrata árið 2008 þegar Obama var val­inn for­seta­efni í fyrsta sinn. Fjöl­miðlar hafa keppst við það í dag að bera saman ræður Melaniu og Michelle og benda á að for­seta­frú­ar­efnið hafi raun­veru­lega stolið köflum úr ræðu Michelle Obama.

Melania Trump sagði í við­tali á NBC-sjón­varp­stöð­inni í Banda­ríkj­unum áður en hún flutti ræð­una að hún hefði skrifað hana. „[…]með eins lít­illi hjálp og var mögu­legt.“ Tals­maður kosn­inga­bar­áttu Trump sagði ræðu­höf­unda hennar hugs­an­lega, og fyrir mis­tök, hafa fengið að láni ræðu­búta.

Á lands­þing­inu eru 2.472 full­trúar frá öllum ríkjum. Donald Trump þarf að fá ein­faldan meiri­hluta atkvæða, 1.237 tals­ins, til þess að hljóta útnefn­ingu flokks­ins. Margir lands­fund­ar­full­trú­anna eru bundnir af for­vali flokks­ins sem þegar hafa farið fram meðal flokks­manna í hverju ríki fyrir sig. Það er hins vegar ekki algild regla enda eru flokks­reglur ólíkar milli ein­stakra ríkja.

Á lands­þing­inu hafa and­stæð­ingar og stuðn­ings­menn Trumps hafið deilur um reglur lands­þings­ins, jafn­vel þó aðeins einn dagur fjórum sé lið­inn af ráð­stefn­unni. Nokkur ríki hafa þegar tekið höndum saman um að leyfa flokks­full­trúum þeirra að kjósa eftir eigin sam­visku og hundsa nið­ur­stöðu for­vals­ins í hverju ríki fyrir sig. Donald Trump er ótví­ræður sig­ur­veg­ari for­vals repúblikana­flokks­ins sem haldið hefur verið í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna.

Munnleg atkvæða­greiðsla fór fram um reglur flokks­þings­ins, svo nið­ur­staða feng­ist um það hvort það væri leyfi­legt að hundsa for­val ríkj­anna. Stuðn­ings­menn Trump stilltu atkvæða­greiðsl­unni hins vegar þannig upp að ekki var kosið um frelsi full­trúa ríkj­anna til að kjósa sam­kvæmt eigin sann­fær­ingu. Það end­aði í öskur­keppni milli fylk­inga á ráð­stefn­unni. Þessum leik lauk með ósigri and­stæð­inga Trump.

„Hillary Clinton er lygari“

Donald Trump sat fyrir svörum í banda­ríska frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum 60 mín­útur á sunnu­dag ásamt vara­for­seta­efn­inu Mike Pence sem Trump kippti með sér á kosn­inga­vagn­inn í síð­ustu viku. Pence þessi er eitt­hvað íhalds­samasta vara­for­seta­efni sem kynnt hefur verið til sög­unnar í banda­rískum stjórn­málum. Í við­tal­inu í 60 mín­útum var aug­ljóst hvernig sam­bandi þeirra Trump og Pence er háttað. Trump valt­aði nán­ast yfir Pence og svar­aði spurn­ing­unum sem beindar voru að honum og lagði honum orð í munn. Pence sat vand­ræða­legur hjá og leyfði fast­eigna­mó­gúlnum að njóta sín.

Banda­rískir fjöl­miðlar hafa und­an­farna daga kynnt Pence fyrir les­endum sínum; hann er rík­is­stjóri í Indi­ana­ríki, mjög trú­aður og veru­lega íhalds­samur. Í Indiana hefur Pence til að mynda und­ir­ritað umdeild lög sem leyfa fyr­ir­tækjum að hafna við­skiptum við sam­kyn­heigt fólk, áður en almenn­ingur fór fram á að hann aft­ur­kall­aði lögin sem hann svo gerði. Efna­hagur Indi­ana­ríkis hefur gengið vel undir stjórn Pence, sem hefur lækkað skatta og dregið úr umsvifum stjórn­valda í rík­inu. Trump seg­ist hafa horft sér­stak­lega til þess árang­urs þegar hann valdi sér vara­for­seta­efni.

Donald Trump lét þung orð falla um Hillary Clinton í við­tal­inu. Hann sagði Clinton „bera ábyrgð á því að ISIS sé til“ og að hún væri ein­fald­lega lyg­ari. „Við þurfum seiglu, við þurfum styrk. Obama er mátt­laus. Hillary er mátt­laus,“ sagði Trump þegar hann var spurður hvort þeir Pence væru til­búnir til að takast á við stjórn lands­ins í því árferði sem nú er.

Full­trúar á lands­þing­inu voru hvattir til að ótt­ast Hillary Clinton í gær. Úr ræðupúlt­inu var ítrekað farið fram á að Clinton yrði ein­fald­lega hand­tekin, sem leiddi til þess að fólkið á ráð­stefnu­gólf­inu hróp­aði „lock her up, lock her up“. Margar ræð­urnar fjöll­uðu einmitt um hvað Clinton, for­seta­efni demókrata, hefði gert rangt sem utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Barack Obama.

Það voru ekki aðeins stjórn­mála­menn sem fluttu ræður á fyrsta degi lands­þings­ins í gær. Mæður fórn­ar­lamba skotárása í Banda­ríkj­unum og mæður fall­inna her­manna töl­uðu einnig. The Guardian greinir frá ræðu Pat Smith, móður eins fjög­urra banda­rískra her­manna sem féllu í árásinni á Benghazi árið 2012, þar sem hún sagð­ist kenna Hillary Clinton per­sónu­lega um dauða sonar síns. Fleiri ræður fjöll­uðu um ólög­lega inn­flytj­endur.

Lands­þingið stendur í fjóra daga. Það hófst í gær, mánu­dag, og því líkur á fimmtu­dag með útnefn­ingu Donald Trump sem for­seta­fram­bjóð­anda repúblikana­flokks­ins. Eftir fyrsta dag­inn var hins vegar ljóst að öfl innan flokks­ins ætla að reyna hvað þau geta til að velta Trump úr sessi á lands­þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár