Mbl.is birtir fréttir þrátt fyrir verkfall: „Sinn­ir afar þýðing­ar­miklu hlut­verki“

Vefur Mbl.is gegnir „mik­il­vægu ör­ygg­is­hlut­verki“ og lokar aldrei að sögn stjórn­enda, þrátt fyrir að verk­fall blaða­manna á net­miðlum standi yfir. Fimmtán starfs­mönnum var sagt upp í gær.

Mbl.is birtir fréttir þrátt fyrir verkfall: „Sinn­ir afar þýðing­ar­miklu hlut­verki“
Davíð Oddsson Samkvæmt til­kynn­ingu frá Morg­un­blað­inu verða fréttir birtar í allan dag. Mynd: Geirix

Vefurinn mbl.is birtir fréttir þrátt fyrir verk­fall Blaða­manna­fé­lags Íslands sem stendur yfir til klukkan 22 í kvöld. Hefur á þriðja tug frétta birst á vefnum frá því verk­fallið hófst kl. 10. Hið sama hefur verið uppi á ten­ingnum í fyrri verk­föllum. Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur sten­ftn Árvakri, útgáfu­fé­lagi mbl.is, fyrir félags­dóm vegna þessa. 

Mbl.is birti til­kynn­ingu á vef sínum vegna máls­ins. „Þetta er þriðja verk­fallið af þessi tagi sem boðað hef­ur verið til og eins og áður verður frétta­þjón­usta á mbl.is í all­an dag, en frétt­irn­ar skrifa á fyrr­nefndu tíma­bili þeir sem ekki eru fé­lag­ar í Blaða­manna­fé­lagi Íslands,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Mbl.is sinn­ir afar þýð­ing­ar­miklu hlut­verki sem frétta­mið­ill en gegn­ir um leið mik­il­vægu ör­ygg­is­hlut­verki. Af þess­um sök­um er allt kapp lagt á að vef­ur­inn loki aldrei, jafn­vel þó að úr fréttaflæði kunni að draga í langvar­andi verk­falli.“

Á meðal fyr­ir­sagna frétt­anna sem hafa verið birtar eru „Spá 10 stiga hita í Reykja­vík“, „Leynd­ar­dóm­ar upp­þvotta­véla­töfl­unn­ar“ og „Inga Lind og Árni sam­an á ný“.

Fimmtán starfs­mönnum Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100, var sagt upp í gær. Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og við­skipta­rit­stjóri þess hafa tengt upp­sagn­irnar við verk­föll net­blaða­manna, þrátt fyrir að útgáfu­fé­lagið hafi verið rekið með 415 milljón króna tapi í fyrra og 284 milljón króna tapi árið 2017.

Vinnu­stöðvun vef­blaða­manna, ljós­mynd­ara og töku­manna mun standa yfir í 12 klukku­tíma í dag, frá kl 10 til 22. Nær vinnu­stöðv­unin til Morg­un­blaðs­ins, Frétta­blaðs­ins, Sýnar og RÚV að hluta. Hefur Blaða­manna­fé­lag Íslands áréttað að ekk­ert skuli birt á vef á þessum tíma. Stundin og fleiri miðlar hafa þegar náð samn­ingi við Blaða­manna­fé­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár