Karolina fund: Stelpur rokka!

Stelpur rokka! eru sjálf­boða­liða­r­ekin sam­tök sem starfa af fem­inískri hug­sjón við að efla ungar stelpur í gegnum tón­list­ar­sköpun. Kjarninn í starf­inu eru rokk­sum­ar­búð­irnar, þar sem stelpur læra á hljóð­færi, spila saman í hljóm­sveit, kynn­ast far­sælum tón­list­ar­konum, fræð­ast um ýmsar hliðar tón­listar og jafn­rétt­is­starfs og koma fram á lokatón­leikum fyrir framan fullan sal vina og fjöl­skyldu.

Hverjir standa á bak­við Rokk­búð­irnar og hvað standa þær fyrir?

Við erum hópur sjálf­boða­liða sem stofn­uðum Stelpur rokka! fyrir 5 árum síðan. Markmið rokk­búð­anna er að efla og styrkja ungar stelpur og trans krakka í gegnum tón­list­ar­sköpun og verða að leið­andi afli í jafn­rétt­ismið­uðu tóm­stunda­starfi á Íslandi. Í rokk­búð­unum læra þátt­tak­endur á hljóð­færi, spila saman í hljóm­sveit, fara í skemmti­legar vinnu­smiðjur um tón­list og femín­isma, fá hádeg­is­heim­sókn frá far­sælum tón­lista­konum og spila loks frum­samið lag á lokatón­leikum fyrir framan fullan sal vina og fjöl­skyldu.

Fyrir hverja eru Rokk­búð­irnar hugs­aðar?

Rokk­búð­irnar eru fyrir allar stelpur, konur, trans karla og kynsegin ein­stak­linga sem vilja pönk­ast, vera með hávaða og láta rödd sína og hæfi­leika heyr­ast. Við verðum með 7 rokk­búðir á 5 ára afmæl­is­ár­inu okkar og verðum með þrjú stór sam­starfs­verk­efni á Græn­landi, Færeyjum, Tógó og í Póllandi í til­efni af afmæl­inu. Við verðum með rokk­búðir gegn ofbeldi fyrir 16 til 20 ára dag­ana 21. til 24. júlí og á svip­uðum tíma verða sam­starfs­konur okkar í Póllandi með rokk­búðir gegn ofbeldi í Póllandi. Við erum með Karolina Fund söfnun í gangi til að styðja við bakið á bar­áttu­systrum okkar í Póllandi en rokk­búð­irnar þar njóta engra opin­bera styrkja. Það er engin fræðsla um kyn­bundið ofbeldi á vegum hins opin­bera í Póllandi og því eru þessar rokk­búðir sér­lega mik­il­vægar. Við bjóðum vinum okkar og velunn­urum að styðja við söfn­un­ina og fá í stað­inn glæ­nýjan afmæl­is­varn­ing frá Stelpur rokka!, tösku og bol.

Hverju viljið þið koma til leiðar með Rokk­búð­unum?

Lang­tíma­mark­miðið okkar er að leið­rétta kynja­halla í íslensku tón­list­ar­lífi. Við viljum verða leið­andi í jafn­rétt­ismið­uðu tóm­stunda­starfi og mennta þátt­tak­endur bæði um félags­legt rétt­læti og tón­list­ar­sköpun. Við erum líka hluti af alþjóð­legri hreyf­ingu og viljum leggja okkar af mörkum til að styðja við sam­starfs­konur okkar víða um heim. Það eru yfir 80 rokk­búðir starf­andi út um allan heim og stór hluti af okkar starfi er að efla og styrkja þessa alheims­hreyf­ingu. Áfram rokk­búðir út um allan heim!

Verk­efnið er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár